Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Síða 6
430 LESBÓK MORGTJNBLAÐSINS 100 ára Framh. af bls. 427. veru, tók hann sjer ferð á hendur til _ Vatnsdals sumarið 1901. Var hann þá enn hinn veglátasti er hann. ásamt fvlgdarmanni, reið á þessar slóðir. En þegar norður kom blasti hverfleiki lífsins við honum á allar hliðar. Benedikt bróðir hans, stórbóndinn í Hvammi, orðinn hrumur og heilsu laus. og stóðu þeir bræður þá tveir tippi af svstkinunum ellefu, seiu náðu fullorðins aldri. Gömlu grannarnir og æskuvinirnir allir horfnir. Varð því ferðin ekki sárs- aukalaus. þótt hann sjálfur væri þá enn hinn hraustasti. Ári síðar sá jeg Pál Blöndal í síðasta sinni á reið. Var það sumarið 1902, að hann var sóttur upp í Revkholts- dal til konu í barnsnauð. Fvlgdist jeg þá með honum nokkuð af leið. En nó bar nýrra við. TTndir þeim kringumstæðum var hann vanur að láta gæðinga sína taka á því, sem til var. en 1 þetta sinn reið hann aðeins fet fvrir fet. Vaknaði þá hjá mjer grunur um það, að heilsa hans væri á förum. Konunni gat hann bjargað og varð þetta hans síðasta ferð í embættiserindum. Eftir það hnigu- aði heilsu hans smátt og smátt. þótt hann Ijeti ekki á slíkn bera og talaði við fólk sitt og gesti. sem ekkert væri að. Sáu þó allir. að um alvarlega hjartabilun var að ræða. Andaðist hann úr þeim sjúkdómi 16. janúar 1903, sextíu og tveggja ára gamall. Við andlát Páls Blöndals varð hjer mikill hjeraðsbrestur. Hann vár búinn að gegna hjer embætti í víðáttumiklu og erfiðu umdæmi og glíma þar við hættur í ýms- um myndum, bæði í sambandi við vötn og veður. Hann var búinn að bjarga mörgum konum í barns- nauð og bæta á margan hátt úr meinum manna. Og hann var bú- inn að njóta óskifts álits og vin- sælda hjeraðsbúa þau 33 ár, sem hann gegndi hjer læknisembætti. Páll Blöndal giftist 19. júlí 1870 Elínu dóttur þjóðskáldsins Jóns Thoroddsen, sýslumanns á Leirá, en hálfsystur hinna þjóðkunnu minning Páls J. sona Jóns Thoroddsen. Móðir Elín- ar var Ólöf, dóttir Hallgrím* Thorlaciusar prófasts að Hrafna- gili. Hún var gáfukona, eins og hún átti kyn til, og margt var vel um hana, en ekki var hún að öllu levti við alþýðu skap. Hún vildi stjórna heimili sínu eftir bestu sannfæringu. en kunni lftt að semja sig eftir hinni brevti- legu skapgerð hjúa og verkafólks. sem leiddi til þess, að hún varð oft í andstöðu við það. Hún var bermál og hreinlynd og sagði hug sinn allan í eyru, en ámælti eng- um á bak. Mann sinn virti hún og elskaði og bar aldrei skugga á sambúð þeirra hjóna. Tvö voru börn þeirra. Dóttir þeirra, Guð- laug að nafni, dó fárra ára. Og sonur þeirra var Jón Blöndal, sem gekk mentaveginn og lærði lækn- isfræði. Gerðist hann aðstoðar- læknir föður síns áður en hano ljest og var síðan veitt það um- dæmi. Jón læknir Blöndal líktist mjög að vtra útliti móðurföður sínum. Jóni skáldi Thoroddsen. Hann var ölkær sem frændur hans fleiri, en þrátt fyrir þá veilu naut hann almennra vinsælda. Hann var frá- bær að glöggskvgni og þekkingu á ölln, sem að lækningum laut og á flesta lund óvenju vel gefinn. Það þótt því vel skipast og vera framhald á hamingju Páls Blön- dals þegar þessi' einkasonur erfði óðal hans og stöðu. Fvrri kona Jóns Blöndals var Sigríður Björns dóttir. Lúðvíkssonar Blöndals. Voru þau hjón að öðrum og þriðja að frændsemi, því móðir Sigríðar var Guðrún Blöndal, dóttir Sigfúsar prests á Tjörn og Undirfelli og Sigríðar Björnsdóttur Blöndals sýslumanns. Af sex börnum þeirra náðu fimm synir fullorðinsaldri. en tveir þeirra ljetnst frumvaxta, Sigurður og Þorvaldur, sá síðarnefndi þá nýútskrifaður læknir. Á lífi eru: Páll búfræðingur, bóndi í Rtaf- holtsev; Björn búfræðingur, bóndi í Laugarholti, nýbýli í Langholts- landi, og Jón hagfræðingur. Jón læknir Blöndal giftist öðru Blöndal. sinni Vigdísi Gísladóttur prests í Stafholti. En sambúð þeirra hjóna varð stutt, því Jón druknaði á því sama ári, ásamt reiðhesti sínum. um ís í Hvítá, 2. mars 1920. Voru þeir feðgar Páll Blöndal og Jón sonur hans búnir að gegna hjer læknisstörfum í hálfa öld. Hafði jeg, sem þetta rita. náin kynni af þeim og er þessi lýsing mín, það sem liún nær, bygð á eigin reynslu. Geymi jeg minningu þeirra fegða í hlýjumi huga og það munu allir gera, er nutu verka þeirra og mannkosta. Elín, kona Páls Blöndals, varð háöldruð, dó 28. maí 1934. Lifði hún það að sjá á bak manni sín- um og einkasvni, sem hún elskaði báða. Bar hún liarm sinn í hljóði og sökti sjer í lestur góðra bóka. Var því við brugðið hvað mikið htín las og mundi í ellinni. Jeg sá hana síðast 90 ára gamla. Sat hún þá við að skrifa frjettabrjef til hálfsystur sinnar, sem þá var 85 ára gömul. Vini átti hún aldrei marga og hjelt sjer lítið fram, en var þeim fáu ósvikin. Stafholtsey er nú búin að vera 66 ár í ábúð Páls Blöndals. sonar hans og sonarsonar. Bendir alt til þess, að ættbogi þessi verði fast- ur í sessi í Bæjarsveit um langan aldur. Er það merkilegt um son- arsyni Páls Blöndals, að þeir eru komnir frá þremur börnum Björns sýslumanns í Hvammi, Páli, Lúð- vík og Sigríði, og ennfremur af Sigfúsi presti frá Reykjahlíð og Jóni skáldi Thoroddsen. Eru hjer því greinar af góðum stofni, sem gefa vonir um framhald á ósvikn- um ættarkostum. Drengurinn: Af hverju galar haninn, pabbi? Faðirinn; Hann galar í hvert sinn óg sagt er ósatt. Drengurinn: Af hverju galar hann þá á morgnana, þegar fólk sef ur ? Faðirinn: Af því að þá er verið að prenta morgunblöðin, góði minn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.