Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Qupperneq 7
LESBOK morgunblaðsins 111 í stað róið með færi og fiskaðist lítið eða ekkert, en 14. mars var farið með netin inn á línu; en svo var fiskur tregur þar, að eftir eina viku var hætt að vitja um netin nema einu sinni eða tvisvar í viku og var þó stutt að fara. Seint í mars fiskuðu einhverjir á lóð í Garðsjó; varð brátt úr því alment hlaðfiski af vænum þorski. Jón Ólafsson var fljótur að snúa sjer að þessari veiðiaðferð og nóg- ar voru lóðir í veiðarfawabirgð- um hans. Ekki man jeg hverju beitt var á fyrsta kostið, en að því búnu var eingöngu beitt hrogn- unum úr fiskinum jafnóðum og hann var veiddur. Þessi aflahrota stóð um þriggja vikna skeið og er hún var þrotin, var komið fast að sumarmálum. Aflavon var þá meiri á Seltirningasviði en syðra. Jón Ólafsson bjóst því til heim- ferðar með menn sína og farangur. Var farið á fyrsta sumardag og lent í Hlíðarhúsasandi síðdegis þann dag. Næsta dag eftir heimkomuna voru hrognkelsanet „steinuð“ og lögð skamt vestur af Akurey. Síð- an var róðrum haldið áfram, í fremur hagstæðri tíð, fram á loka- dag 11. maí. Nú var sjóleiðin á fiskimiðin að minsta kosti helm- ingi lengri en syðra. Þorskveiðin stunduð einungis með haldfærum; til þess þurfti mikla beitu og til tryggingar því, að beitu skorti ekki, varð að stunda hrognkelsa- veiðina jáfnhliða, enda var hún út af fyrir sig nokkurs virði. Dag- legar annir og atvik gerðust nú á þessa leið: Jón ólafsson klæddist klukkan 2 árdegis, vakti okkur heimamenn sína og hraðaði svo ferð sinni um Vesturbæinn til að kalla há- setana; þurfti hann að vekja menn á 6 stöðum nokkuð dreifð- um og lauk hann því venjulega á 18—20 mínútum. Klæddust menn í skyndi, tóku sjer lítinn árbít með kaffi eða öðrum drykk þess- konar. Voru svo allir furðu fljótt komnir að skipi í naustum; klædd- ust þar skinnbrókum og sjóskóm utan yfir á fótum. Gekk svo hver maður að skipinu sem næst sæti sínu innanborðs. Ljetu menn hlunna fyrir, settu fram skipið og ýttu á flot. Báru í það nokkra fjörusteina til seglfestu svo og far- við allan þ. e. möstur, sprit, árar o. fl., sem hafa þurfti meðferðis. Mæltu menn fátt meðan á þessu stóð, en voru samhentir og greiðir í starfinu. Formaður gaf öllu gæt- um og stjórnaði, ef þurfa þótti, með fáum og snöggum hvatning- arorðum, oft í áhuga- og áminn- ingartón, enda lagði hann hönd að verki, hvar sem hann var nær- staddur og með meira fjöri og æfðari hreyfingum, en nokkur ann- ar maður á skipinu. Eftir stutta stund var alt tilbúið og menn allir fóru á svipstundu upp í skipið. Formaður settist við stýrið, frammí-menn tóku að seglbúa við fram-siglu og hinir settust undir % árar og sneru skipinu frá landi, eða öllu heldur fram með landi í vestur. Þá voru engir hafnargarð- ar o gjafnan farið yfir grandann milli Reykjavíkur og Efferseyjar. Þegar búið var að setja út fram- segl og fokku, gaf formaður merki um að bæn skildi lesin; því var svarað með því að taka ofan sjó- hattana. Las hver í hljóði bæn sína, lagði upp ár og fór í skinn- stakk sinn á meðan á bænalestri stóð. Því næst hófust umræður, sem síðar mun getið. Nú var siglt á framseglum og róið undir vestur fyrir Akurey; þar voru segl feld og vitjað um hrognkelsanet. Yenju lega fengust 100—130 stykki; var það nóg til beitu í róðurinn og nægilegt til seglfestu, þó ekki fengist annar afli. Þá voru sett upp öll segl og siglt vestur, sunn- arlega á Seltirningasvið. Þar var lagst við stjóra og' þegar í stað beitti hver sinn öngul og rendi færi sínu í sjóinn. Stundum leið nokkur stund þar til einhver varð fisksvar; en miklu oftar var það — á þessum vertíðarkafla — að fiskur var viðlátinn jafnskjótt og beittur öngull kom í botninn og flesta daga fiskur dreginn stans- laust á 9 færi, uns skipið var fult af fiski undir þóttur enda á milli. Voru það 550—600 fiskar eftir vænleik. Ætíð var þó fiskur farinn að tregðast í drætti áður en til ofhleðslu kæmi. Og örsjald- an var hinum fáu seglfestustein- um varpað útbyrðis vegna of- hleðslu. Og svo voru hrognkelsin að auki, en þá var búið að ljetta þau með því, að taka alt innan úr þeim til beitu. Þegar fiskidrætti var hætt, var þegar í tað haldið til lands, afli losaður úr skipinu, það sett upp í vör, gert að afla — með aðstoð kvenna — fiskur og hrognkelsi saltað o. s. frv. Flesta daga varð vinnutíminn 18—19 stundir og svefntími 4 stundir í sólarhring. Helgidagavinna var engin og þeir voru að mestu leyti notaðir til svefns. Viðurgerningur allur hjá Jóni ólafssyni, svo sem fæði, rúm, þjón- usta o. fl. bæði heima og í Bakka- koti, var hinn ákjósanlegasti og virtist mjer meiri menningarbrag- ur á öllu er þar til heyrði, en jeg hafði áður þekt. Á heimilinu voru kynni mín af Jóni og fjöl- skyldu hans — þ. e. móður, konu og einkadóttur — fyrri vertíðini mjög takmörkuð, en síðari vertíð- ina nokkru nánari; átti jeg þá og jafnan síðar er jeg kom þar — hjá þeim, sínu í hvoru lagi og sameiginlega — að mæta vinsam- legri hreinskilni og fylstu kurt- eisi, enda þótt eitthvað bæri á milli í skoðunum. En í tómstund- um, sem fáar voru heima, en næg- ar syðra (hægari sjósókn, minni afli o. s. frv.), kyntist jeg Jóni mest og best. Á smá-samkomum úti eða inni, t. d. er við komum saman til máltíða; í svefnlofti eða við önnur tækifæri og þá sjer- staklega á hægri siglingu úr landi eða í land, var honum einkar lag- ið að vekja ljettar og lífgandi umræður, eða taka fjörugan þátt í umræðum um daginn og veginu. Slíkar ræður Jóns, um margvísleg efni, voru þá daglega, mjer oa öðrum, engu síður menningarmeðc og gleðiefni, en útvarpserindi nu á tímum. Sumir höfðu orð á því, að Jón væri kaldlyndur, einkum á sjó; en mjer fanst að kaldlyndi væri algert auðatriði í skapgerð hans, og ætti sjer ekki djúpar rætur. Það kom í ljós undir sjer- stökum kringumstæðum og hvarf skyndilega með þeim. Þykir mjer rjett að skýra þetta nánar. Þessi geðbrigði Jóns komu í Ijós, í fyrsta lagi, þegar hann var kom-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.