Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Síða 8
112 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS / sumri og só/ Yngismær nýtur sólar og sumars við Kaliforníustrendur. inn að skipi til róðurs, ef einn eða fleiri hásetar voru þá ekki komnir á vettvang. Þau voru fólgin í kaldjTrðum til þeirra, er næstir honum voru. Þau vöruðu þó að- eins á meðan skipið var sett á flot og komið til gangs á sæ út. Þegar hann var sestur við stýri, hafði lokið bæn sinni og smeygt sjer í skinnstakkinn, tók hann til niáls á þann hátt, er gaf ótvíræðtt til kynna, að skapbrigðin voru horfin og áttu ekki afturkvæmt að sinni. Annars var það Torfi, sem venju lega lauk fyrstur bæn sinni og um leið og hann skaut höfði upp úr skinnstakk sínum, hóf hann kröft- uglega frásögn af dægurmálum, æfintýrum og einkamálum Reyk- víkinga. Varð Jón þá ætíð fyrstur til andsvara eða til að leiðrjetta það sem þótti of eða van í fvrstu frásögn. Oft var hann þá fyr eu varði, búinn að taka frajnsöguna á sitt vald. Virtist hann ótrúlega oft hafa gert sjer glögga grein fjrrir málavoxtum; sjerstaklega ef um almenn mál var að ræða. I einkamálum — t. d. ástamálum í meinum, sem þá voru ekki mjög sjaldgæft umræðuefni — talaði Jón með meiri gætni og meiri vel- sæmishneigð en flestir aðrir. Mál- efni voru mjög margbreytt. Fór Jón vel með frásögn í flestum greinum og þótti mjer skemtun á að hlíða. Oft kom mjer þá í hug, að góður rithöfundur hefði átt að eiga sæti innanborðs hjá okkur þessar 2 vertíðir, er jeg var með Jóni, og mundi sá hafa fundið þar óttæmandi uppsprettu- lindir til skáldsagnagerðar. I öðru lagi komu skapbrigði Jóns í ljós á þann einkennilega hátt, að þegar allir menn á skipi hans voru við fiskidrátt á hald- færi og fiskur ör í drætti — hann dró manna mest sjálfur — var hann önugur og smáhreytti kald- yrðum að þeim sem næstir honum sátu. Þetta var ástæðulaust og ó- sjálfrátt nöldur, sem óþarft var að láta á sjer festa. Það varaði að- eins meðan á drætti stóð og aldrei varð jeg þess var, að það raskaði góðu samkomulagi að öðru leyti, eða rýrði gagnkvæmt traust og vinarþel, hans og þeirra í milli. Jafn skjótt og hætt var fiski- drætti og ferð til lands hafin, var eins og fargi væri ljett af Jóni og ljek hann þá við hvern sinn fengur, hóf gamanræður eða sagði sögur ef veður var gott. Væri nokkuð verulegt að veðri tók hann alla stjórn skips og áhafnar traust- um tökum. Fyrirmæli hans voru stutt og ákveðin, laus við alt hik og óþarfa mælgi Aldre. fengum við hrakför eða áfelli og vorum þó oft, á rúmsjó í slæmu veðri. Vertíðin 1888 var hin síðari, er jeg var með Jóni og hin síðasta, er jeg reri suður. Þessa vertíð fór hann aldrei suður í verbúð sína í Leiru. Fiskifrjettir þaðan munu ekki hafa gefið tilefni til þess. Alla vertíðina voru því róðrar á Ljettfeta stundaðir heiman frá Hlíðarhúsum og aðeins með hald- færum. Aflabrögð voru mistæk; en aldrei raskaði það skapgerðar- jafnvægi Jóns, þótt afli væri lítill eða enginn í sumum róðrum. Ver- tíðaraflinn varð góður í heild að lokum; mun það aldrei hafa brugð- ist og þar af dregið nafnið „Fiski- guð“ eins og hann var nefndur að almannarómi. Eins og áður segir, geðjaðist mjer í allan máta vel að vistinni hjá Jóni. Jeg fann ætíð gleðikend og samúð í návist hans og þægi- legt öryggi í allri stjórnsemi hans. Og að lokum þótti mjer vegur minn hafa vaxið mjög við það, a'ð hafa verið undir handleiðslu og í þjónustu þessa viðurkenda atorku- og drengskaparmanns. Pjetur Þórðarson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.