Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1941, Side 1
JflorðnnMaððiits
18. tölublað. Sunnudagur 4. maí 1941. XVI. árgangur.
í«afol<Urpr*otam<0^ h.».
Nautaat á Spáni
Eftir Þórð A/bertsson
Nautaatsmenn ganga inn á völlinn, ,,matadorar“ þrír fremstir.
Nautaat er ekki eins ómann-
úðlegur leikur og margur
heldur. Hefi jeg sjeð fjölda nauta-
ata víðsvegar um Spán.
Til eru tvennskonar nautaöt,
„Corrida de Toros“, þar sem att
er fullorðnum nautum, og „Nov-
illada“, sem er kálfa-at. Er hjer
mikill munur á. Ætla jeg að lýsa
hjer hinum fyrtöldu.
Venjulega eru drepin 6 naut í
hverju nautaati. Leikvöllurinn
(Plaza de Toros) er mjög stór og
tekur fjölda áhorfenda. Er áhorf-
endapöllunum skift í tvent,
skuggapláss og sólarpláss. Eru
skuggasætin vitanlega dýrari. Það
er svo í sólarlöndum, að allir
vilja vera í skugganum, sólin of
heit, enda segja Spánverjar um
gæfumann, að hann sje „skugga-
barn“, m. ö. o. einmitt það sem
við í sólarleysinu köllum sólskins-
barn.
Á. nautaat fara allir, sem vetl-
ingi geta valdir, háir sem lágir,
til að sýna sig og sjá aðra. Kven-
fólkið tjaldar þar því besta, sem
það á í klæðaburði, en eins og
menn vita er hinn spánski kven-
búningur mjög skartmikill og
tignarlegur.
Er skemtun þessi í augum Spán-
verja sannkölluð spönsk „fiesta“
(hátíð). Stór hljómsveit spilar á
undan og eftir leikunum fjoruga
spánska músik og fjöldinn iðar
af kátínu og tilhlökkun. Ekki'
hefir veðrið- brugðist frekar en
endranær, heiðblár himinn. Hin
glóandi spánska sól er í full-
komnu samræmi við hið heita
blóð áhorfendanna.
★
Loks hefst leikurinn með því,
að allir þátttakendur (la cuad-
rilla) ganga í fylkingu inn á völl-
inn. Er það mjög tilkomumikil
sjón. Hinir skrautlegu gull- og
silfurprýddu klæðnaðir nautaats-
manna glitra í sólskininu. Stað-
næmist öll fylkingin fyrir fram-
an stúku leikstjórans. Gengur þá
fram sá frægasti í hópnum, með
viðeigandi kurteisi og hneiging-
um, biður um lykilinn að nauta-
klefanum, sem þá er kastað niður
til hans. Fer svo fylkingin aftur
út af vellinum, nema eftir verða
þeir, er leika eiga við fyrsta naut-
ið, ásamt þeim nautabana (mata-
dor), er vega á þetta naut. Þeir
eru alls 3; og verða tveim nautum
að bana hver. Þessir, er eftir
verða, eru einu nafni nefndir
nautaatsmenn (Toreros).
Er nú fyrsta nautinu hleypt
inn. Er það alveg trylt, meíra en
mannýgt, því það æðir á alt, sem
fyrir er, jafnvel girðinguna um
völlinn. Sagt er að naut þessi sjeu
höfð í myrkri marga daga á und-
an leiknum. Nautin eru stór og
eftir því sterkleg, enda alin upp
sjerstaklega með þessa leiki fyrir
augum. Altaf er vandlega aug-