Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1941, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1941, Side 2
154 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 'L-\ lýst frá hvaða búi þau eru. Ef nautið lítur sjerstaklega vel út, er sterkt og fjörugt, klappa á- horfendur fyrir því og eigandi nautabúsins stendur upp í stúku sinni og hneigir sig. Nautabaninn. Sjálfur leikvöllurinn (Arena) er sterklega umgirtur hringur, alt að 100—120 metra að þver- máli. Illaupa nú nautaatsmenn hver af öðrum og leika sjer að nautinu með dulum sínum (la Maleta). En þetta eru aðeins al- gengir nautaatsmenn, er eiga ekki að gera (nje geta) annað en gefa áhorfendum tækifæri til að sjá hvernig nautið bregst við og muni reynast í hinum síðari og alvarlegri atrennum. Forleikur þessi er og til að gefa sjálfum nautabananum, aðalmanninum, tækifæri til að athuga hreyfingar nautsins og tiltektir. Sjaldan voga þessir menn sjer langt út á völlinn, láta sjer nægja eina um- ferð. Er hún í því fólgin, að þeir halda dulu sinni út frá sjer til hliðar. Ræðst þá nautið á hana og stangar ákaft, en maðurinn víkur sjer undan og er í dauðans angist stokkinn yfir vegginn, en boli froðufellandi af ilsku yfir að hafa gripið í tómt. Nú kemur sjálfur ,matadorinn“, sem á með- an á þessum forleik stóð hefir staðið rólegur upp við girðinguna og athugað bráð sína. Tekur hann nú að leika sjer að nautinu og eru nú alt önnur handbrögð á en fyrri. Hann virðist gera með naut- ið það sem honum sýnist, lætur það hruna á sig í öllum möguleg- um og ómögulegum stellingum, aftan frá, á hlið o. s. frv. Gerir hann þetta svo rólega og stilli- lega, að maður fyrst í stað getur freistast til að halda aðstöðu hans vandaminni en af er látið. En hjer skjátlast manni hrapalega. Alt er þetta leikur við dauðann frá hendi nautabanans, aldrei munar nema fáum sentimetrum, jafnvel millimetrum, að horn nautsins risti manninn ekki á hol. Enda sjest það best á hinum, sem á undan voru (sem eru búnir að vera nautaatsmenn frá blautu barnsbeini), hvað mikill vandi þetta er, því aðeins örfáir af öll- um þeim fjölda, sem iðkar þenna leik við dauðann, verða nauta- banar og þá frægir og ríkir. En það er heitasta ósk allra æsku- manna Spánar að verða slíkir. Margir enda þeir æfina sem ör- kumla menn, ef þeir þá ekki týna lífinu á leikvellinum. Fyrir kem- ur að þessir menn draga sig í hlje, til að njóta auðæfa sinna í friði. En vart er þeim það mögulegt, nema að þeir flýi land. Innan- lands eru þeir svo fyrirlitnir, að þeir geta hvergi komið, án þess beinlínis sje gerður að þeim að- súgur, en flestir þekkja þá í sjón. Sumir hætta líka um tíma, en byrja svo aftur, geta ekki annað vegna þess seiðmagns, sem þessi leikur upp á líf og dauða hefir á þá. Svo fór um gamla Belmonte, sem var frægastur allra nauta- bana, en er hann sýndi sig *að nýju, kostaði það hann lífið. Nú er það sonur hans (Hijo de Bel- monte), sem við hefir tekið og þykir með bestu „matadorum“ Spánar. Ótrúlegt vald virðist manni nautabaninn hafa yfir nautinu. Hann á það til að leggjast á hnje fyrir framan hið trylta naut. Það kemur fyrir, þá er hann hefir um stund leikið með hið æsta naut, að alt í einu staðnæmist hann fyrir framan það, slær dulu þeirri, er hann hefir leikið með við nautið, undir handlegg sjer (eins og þjónn serviettu), gengur beint framan að nautinu og slær með berum lófunum á sitt hvort horn þess, snýr svo í það bakinu og gengur út af vellinum hinn ró- legasti og veifar um leið til áhorf- enda, sem alveg ætla að rifna af hrifningu. En nautið hreyfir sig ekki, stendur sem dáleitt, þar til hann er kominn út, þá tryllist það aftur og hleypur á alt sem fyrir er. Riddararnir. Leikstjórinn gefur nú merki og inn koma riddararnir (Piceador). Nú byrjar það ljótasta við leik þenna, og það er meðferð sú, sem hinir úttauguðu, grindhoruðu hestar verða fyrir. Þó er þetta skárra á seinni árum, síðan hest arnir hafa fengið járnhlífar á síðunum og sjálfur riddarinn á fótleggjum. En fyrir tíð Primo d3 Rivera var þetta afleitt; var þá sagt að fyrir hafi komið, að út úr hestunum hafi komið (er naut- ið stakk þá) hálmur og gömui dagblöð. Höfðu sumir hestarnir verið notaðir tvisvar í sama leik. verið saumaðir saman í skyndi og stoppaðir út, svo þeir gætu dragnast inn á völlinn eina um- ferð í viðbót. Riddarinn stefnir nú hesti sín- um beint á nautið og hefir að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.