Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Blaðsíða 2
170 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS furðu margt frá tímabilinu 1786— 1874. Hann nefnir þrjá af fjórum útgefendum Fjölnis, Brynjólf Pétursson, forstöðumann hinnar íslensku stjórnardeildar í Höfn, málfræðinginn Konráð Gíslason og skáldið Jónas Hallgrímsson. En hann nefnir hvorki tímaritið Fjölni né síra Tómas einu orði, og er það samt ekki af því, að hann sé neitt spar á að telja ýmsa menn, sem lionum virðast hafa skarað fram úr í einhverri grein, og suma lítt kunna almenningi nú á dögum. Tvennt er það einkanlega, sem síðan hefur brugðið alveg nýjum ljóma á minningu Tómasar Sæ- mundssonar meðal íslendinga. Hann var einn af Fjölnismönnum. En upp úr aldamótunum 1900 fara menn almennt að gera sér ljósara en áður, hvern þátt þetta tíma- rit hafði átt í því að glæða smekk og þjóðernisvitund íslendinga. Samt er óhætt að segja, að þekk- ing þjóðarinnar á Fjölni er frem- ur reist á sögu en sjón. Ritið er orðið sjaldgæft, og fátt úr því hefur verið endurprentað nema það, sem Jónas Hallgrímsson lagði til þess. Sama máli gegnir um það, sem Tómas gaf út í bókar- formi, meðan hann lifði, eða var prentað rétt eftir andlát hans: Island fra den intelleetuelle Side betragtet (1834), Fjölnir og Ein- eigði-Fjölnir (1840), Ræður við íms tækifæri (1841), Þrjár rit- gjörðir (1841). Þessi rit eru í fárra manna höndum og lítið lesin. En þegar við lítum á Bréf Tóm- asar Sæmundssonar, sem gefin voru út á aldarafmæli hans (1907), þá gegnir öðru máli og þá komum við að hinum þættin- um í endurreisn síra Tómasar í minningu þjóðarinnar. Það er óhætt að fullyrða, að fáar bækur, sem út komu á fyrstu áratugum 20. aldarLnn^ir, hafi gagntekið ís- lendinga eins og þessi bréf. Þar komust þeir í náin kynni við höf- undinn, og rödd hans lét ekki í eyrum eins og daufur ómur frá fjarlægri fortíð, heldur eins og lúðurhljómur, sem brýndi til nýrrar sóknar. Það væri að vísu æskilegt, að rit Tómasar, prentuð og óprent- uð', yrrðu gefin út í heild, áður en langt liði. Þau eiga það skilið. Það má líka búast við, að mörgu verði enn við það bætt, sem um hann hefur verið ritað. En Tómas fram tíðarinnar hlýtur samt jafnan framar öllu að lifa með íslending- um eins og hanu lýsir sér í þess- um bréfum. Og þau munu ekki fyrnast. Margt hefur vel og mak- lega verið um þau sagt. En eg veit ekki, hvort nokkuð af því lýsir betur áhrifum þeirra en lít- ið bréf, sem norðlenzk sveita- stúlka skrifaði mér fyrir mörg- um árum. Þau voru lesin heima hjá henni á vökunni, og hún var að hugsa um, hvað hún gæti lítið gert af öllu því, sem henni fannst þau hvetja sig til að koma í verk. ,.Og í svipinn gat eg ekkert nema keppzt við það, sem eg var að vinna. En það er víst, að prjón- arnir fóru að ganga hraðara í höndunum á mér en venjulega“. Eg held, að síra Tómas hefði ver- ið ánægður með þessa stúlku og þennan árangur af lestri bréf- anna. II. Dóttursonur Tómasar Sæmunds- sonar, dr. Jón Helgason biskup, sem bjó bréf afa síns til prent- unar á aldarafmæli hans, hefur nú á þessu ári, er hundrað ár eru liðin frá láti Tómasar, gefið út rækilegt rit um æfi hans og störf. Er enginn vafi á því, að sú bók verður mikið lesin, enda er hún hin fróðlegasta. Þar er víða stuðzt við óprentaðar heim- ildir, og þeir, sem lítt þekkja til annara rita Tómasar en bréfanna, geta fengið þar gott yfirlit um efni þeirra og anda.1) Þó að höf- undur bókarinnar sé nákominn Tómasi, ritar hami um hann af fullu hlutleysi og hispurslausri sannleiksást og dregur ekki fjöð- ur yfir neitt það í fari afa síns, sem gerði það að verkum, að samtíðarmönnum hans fannst hann stundum nokkuð óþjáll. Því lýsti eftirmaður hans á Breiðabólstað, síra Jón Halldórs- son, á sinni tíð með þessum orð- um: „Held eg það sé áreiðanleg ur sannleiki, að hann með meiri stillingu og minni ofsa hefði ver- ið enn þá fullkomnari maður“. Það er víst, að Tómasi er engin þörf á neinni launungu um mann- lega bresti hans. Skapið var mik- ið og stórt, en því var framar öllu beift í þjónustu hugsjóna og umbóta. Hitt var aukaatriði, þótt það stöku sinnum kæmi fram í dálítilli óbilgirni og gustmiklu hreinlyndi. Engum getur heldur dulizt, að það var samfara hlýju hjartalagi, hjálpsemi, vinfesti og alúð. Iljer er ekki rúm til þess að lýsa bók dr. Jóns Helgasonar og efni hennar, enda mun Morgun- blaðið bráðum flytja rækilegan rit- dóm um hana. Það er tvímælalaust 1) Tómas Sæmundsson. Æfifer- ill hans og æfistarf. Reykjavík, 1941. ísafoldarprentsmiðja. — 261 bls. Börn Tómasar: Þórhildur Tómasdóttir. Þórður Tómasson læknir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.