Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Blaðsíða 5
LKSBÓK MORGUNBLAÐSINS 173 jeg ungan stúdent, sem fylgdi mjer dag og nótt. Hann var djarf- ur og öruggur og hafði til brunns að bera óbilaudi og traust lundar- iar. Við áttum margar góðar stundir saman. ★ Rás styrjaldarviðburðanna var skjót. Strax daginn eftir komu Þjóðverja hófst fyrsta breska á- rásin. Um svipað leyti og daginn áð- ur heyrðum við fallbyssudrunur frá höfninni. Einnig nú var skygni slæmt, en þó ekki eins slæmt og daginn áður. Jeg sá greinilega marga þýska tundurspilla á höfn- inni bæfða og standa í ljósum logum. En enska flotadeildin fór út aftur. Daginn eftir var gerð loftárás. Ef jeg man rjett, voru það 7 flugvjelar, sem tóku þátt í árásinni á skipin. Munu þær hafa verið bæði enskar og norsk- ar. En aðeins lítill norskur gufu- bátur, sem Þjóðverjar höfðu tek- ið í sínar þarfir, varð fyrir sprengju. Hörð loftvarnaskothríð mætti flugvjelunum. Engin þeirra var samt liæfð. Þennan dag gat jeg komið frá mjer hinni fyrstu frásögn af því, sem gerst hafði. Jeg hafði lromist á snoðir um, að járnbrautarstöð- in hafði símasamband við Kiruna og að sú lína lægi ekki um aðal símstöðina. Hinir þýsku verðir voru raunar á járnbrautarstöðinni, er það var ómaksins vert að reyna l>etta. Jeg náði sambandi við Kiruna og talaði við sænskan liðsforingja. Jeg sagði honum, hver jeg væri og! bað hann að flytja norsku og sænsku stjórninni ákveðnar upp- lýsingar. Hann fjekk síðan þær upplýsingar, sem jeg hjelt að þýð- ingu hefðu um hernaðarstöðu Þjóðverja, fjölda þeirra, skotvopn og að ennþá hefðu ekki sjest hjer þýskar flugvjelar, og yfirleitt lýs- ingu á ástandinu í Narvik. I þeirri einangran, sem Narvik nú var í, var mikið undir útvarpi komið. Seinna þegar aflstöð bæj- arins hafði verið skotin í rúst og Þjóðverjar leituðu uppi öll raf- hlöðu útvarpstæki, höfðum vi? smátæki í ráðhúskjallaranum og dreifðum þaðan út frjettunum. Morgun einn um miðjan apríl voru boðaðar frá útvarpsstöðinni í Tromsö nýjar hernaðaraðgerðir, sem gerðu það nauðsvnlegt að fólk ið flytti úr bænum. Þar sem nxi Þjóðverjar höfðu bannað alla brottflutninga, ríkti um skeið nokkur kvíði og ótti, en á skömmum tíma tókst að lægja þær öldur og koma á fullkomnu jafnvægi í bænum. Allir, sem komu til ráðhússinn og grjetu og börmuðu sjer, voru látnir bíða þangað til þeir höfðu vald yfir sjer. ★ Laugardaginn þann 13. apríl hófu Bretar stórkostlega árás á sjónum. Allstór bresk flotadeild kom og gjöreyðilagði hina þýsk-u flotadeild, Ekki eitt einasta þýskt skip komst undan. Orustan stóð frá hádegi til kl. 5 síðdegis. Höfnin var eins og skipakirkjugarður. Inn við Rombakkeu hafði nokkrum þýskum tundurspillum verið rent á land. Hópar af þý§k- um sjóliðum leituðu inn í bæinn frá ströndinni. Flestir þeirra höfðu synt í land frá sokknum skipum sínum. Þeir^reikuðu ráð- viltir um göturnar. Reglu- og agalaust leituðu þeir áfram upp í Fagranesfjallið. Hvít- ar snjóbreiðurnar voru þaktar endalausum svörtum röðum slcip- reika manna. Þeir fttluðu að reyna að finna stystu leið yfir til Sví- þjóðar. Yið áttum tal við nokkra þeirra. Þeir fundu, að þeir voru læstir inni og örvinglan ríkti með- al þeirra. Seinni hluta dagsins voru eng ir Þjóðverjar í bænum. En undir kvöldið kom hópur fótgönguliðs- manna og var jeg þá tekinn til fanga fyrir smágrikk, sem jeg hafði leikið við nokkra þýska varðmenn, sem gæta áttu sím- stöðvar bæjarins. Jeg hafði fyr um daginn sagt þeim, að allir Þjóðverjar hefðu j7firgefið bæinn og Bretar væru á leiðinni frá höfninni upp í bæinn. Þeim myndi því ráðlegast að hypja sig, sem þeir og ekki ljetu segja sjer tvisvar. Jeg galt nú þessara bragða og var geymdur á gistihúsi um nóttina. Varðmað- ur minn var 18 ára gamall pilt- ur. Hafði hann tekið þátt í her förinni í Póllandi. Skýring hans á öllum viðburðum var ofur ein- föld, aðeins þetta: Foringinn hef- ir boðið að svo skuli vera. Um morguninn var mjer til kynt, að jeg hefði gerst sekur við 36. grein hinna þýsku herlaga og refsingin fyrir slíkt brot væri aðeins dauðinn. Jeg trúði varla mínum eigin eyrum. Sú kend, sem ríkust var hjá mjer, varð undr

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.