Lesbók Morgunblaðsins - 29.06.1941, Síða 2
218
LESBÓK M0RGUKBLAÐSIN3
Fremsta röð (frá .vinstri): Magnús Árnason, Halldór Þorsteinsson, Hafþór Guðmunds-
son, Inga Björnsdóttir, Jóhann Hlíðar, Valgarður Kristjánsson, Bjartmar Kristjánsson. —
Önnur röð (frá v.): Sigurbjörn Bjarnason, Brynjólfur Ingólfsson, Vigfús Jakobsson, Jón
Sigtrvggsson, Sigríður Jónsdóttir, Jóhannes Elíasson, Alma Thorarensen, Jóhann Jakobsson,
Jónas Jakobsson. — Þriðja röð (frá v.): Sigurjón Sveinsson, Aðalsteinn Sigurðsson, Kjart-
an Árnason, Helgi Árnason, Skarphjeðinn Njálsson, Ari Kristinsson, Eggert Kristjánsson. —
Aftasta röð (frá v.): Kristján Eiríksson, Björn Bessason, Leó Júlíusson, Sigurður Hannes-
son, Hjalti Þórarinsson, Guðm. Ingvi Sigurðsson, Þórður Gunnarsson, Snæbjörc Jónasson,
Ottó Jónsson. — Tvo stúdenta vantar á myndina.
ir því, að þjóð vorri takist að
samþýða mikilvægar andstæður,
t. d. framsókn og íhald, einstakl-
ingsframtak og vfCunandi skift-
ingu á eign og auði. að hún beri
gæfu til að samræma skipulag og
athafnafrelsi, einstaklingsfrelsi og
löghlýðni í hinni æðstu og dýpstu
merkingu, sem jeg vjek að í hug-
vekju minni um m'kilvægi frels-
isins í dag. Foringjum vorum má
aldrei úr minni líða, að fara verð-
ur variega og stillilega með lýð-
ræði vort og lýðvekli. Reynslan
leiðir í ljós, hversu ábvrgðarsam-
lega foringjar vorir og valdamenn
standast slíka þroskaraun.
En það er góðs viti, að valið á
hinum nýkjörna ríkisstjóra hefir
tekist merkilega vel. Jeg las ný-
lega í öðru hvoru Vesturheims-
blaðinu íslenska, „Lögbergi“ eða
„Heimskringlu“, grein eftir frú
Rannveigu Schmidt, þar sem hún
fór lofsamlegum orðum um þennan
nýkosna æðsta valdsmann vorn.
Mjer þykir vænt r.m, að jeg fæ
hjer færi á að taka undir lofsyrði
frúarinnar um þennan gamla
skólabróður minn og fjelaga, sem
mjer er að mörgu goðu og mörgu
skemtilegu kunnur. Það var altaf
þægilegt að vera samvistum við
hann, með honum lcið manni vei.
Frúin minnist á það í þessari
grein sinni, að Sveinn Björnsson
sje maður lundgóður, hann sje á-
valt í góðu skapi.
Þá er jeg las þessa lýsing frú-
arinnar á hinum fyrsta ríkisstjóra
vor íslendinga, þóttist jeg muna,
að einn vinur okkar beggja hefði
eitt sinn komist þannig að orði
um hann á Hafnarárum okkar:
„Það liggur altaf vel á Sveini“,
og þótti mjer hjer vel mælt og
vel hæft. Drjúg sigursæld fylgir
löngum síglaðri og góðlátlegri
lundu. Mjer virðist Sveinn Björns-
son líklegur til þess í hinni miklo
stöðu sinni, að geta orðið „sættir
manna“, svo að jeg taki mjer í
munn merkilegt orð úr Eddu
Snorra Sturlusonar og fleiri forn-
ritum.
Jeg óska hinum nýja ríkisstjóra
þess, að honum auðnist að verða
mikill og drengilegur kraftur í
stjórnmálum vorum og þjóðlífi.