Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1944, Síða 2
I
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
f 242
I
i
■
í styrk hvers manns er fólginn ættlandsauöur
í orkutaugum vinnufúsra handa-
í fræjum sálar frelsi blóðs og anda,
sem festir tryggð við bernsku sinnar hauður.
Ef geymast stofnsins göfgu eðlisþættir
við glötum aldrei sæmd hins mikla frama.
í gleði velur hjartað trúartama,
því tökum okkar rjett við guðasættir
Og mundu þjóð, í meginstyrk þíns vilja
býr máttur sá er framtíð himinn reisir-
En frelsið nýjan kraft úr læðing leysir
er lærum við hvers annars sál að skilja-
I verkahring sem rjettlát skifting ræður
við rækjum okkar skyldur hver við annann,
með fórnarlund og fjelagsþroska sannann,
sem fegurst rækta hinar göfgji mæður.
Því vaki þjóðin frjáls og stór í starfi
og stundi rjett að vilja á framabrautum.
Með eðlið forna, dirfsku og þrek í þrautum
sem þáðum við með feðra dýrum arfi.
Svo margt er hjer sem þarf að rækta og reisa
í röðulskini nýrra frelsistíða.
Við þurfum landsins björk að bæta og prýða,
af blómans fræjum klaka hlekki leysa-
Nú knýr á hugann fagur frelsisbragur,
þar fagnaðshljómar andansvonir glæða.
Um blessað landið ljóssinsöldur flæða
frá lindum þínum himinnborni dagur.
fni slái í auðmýkt þakklátt þjóðarhjarta,
sem þáði lífsins ráð af guði sínum
I>á vernd, það frelsi er aldrei aftur týnum,
þar cilíf minning lýsi um framtíð bjarta.
í, ý. »<»♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦•••♦••♦^^*