Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1945, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
429
með tímanum yrði hægt að knýja
hafskip umhverfis jörðina með at-
ómorku, sem fælist í einum bolla af
vatni.
Tilbúin geislaverkun.
A’ÍSINDAMENN byrjuðu á því
að gera tilraunir með atómkjarna
köfnunarefnisins. Með geislaverk-
andi efnum tókst Rurherford að
breyta nokkrum köfnunarefiiisat-
ómum í súrefni.
Árið 1932 uppgötvaði Englending
urinn James Chadwick neutronurn-
ar, agnir, sem hafa enga rafhleðslu
og komast þess vegna auðveldlega
í gegti um hinn öfluga rafmagnaða'
varnargarð, sem er fyrir utan þung ,
atóm og inni í þeim. Brátt tók hinn
stórgáfaði Itali, Enrico Fermi (semi
htfur dvalið í Bandaríkjunum síð-
an 1939) að gera árásir á allskonar
þung atóm m. a. í uranium með
neutronum.
Þannig voru neutronurnar notað-
ar sem nokkurs konar skotvopn.
Árið 1934 tókst þeim Jean-Frede-
rie og Irene Joliot-Curie og gera
boron, magnesium og aluminium
geislaverkandi (radioaktíf). Atóm
þessara efna hjeldu áfram að senda
frá s.jer smáagnir í nokkrar mín-
útur eftir að búið var að sk.jóta á
þau. Tilbúin geislaverkun er ]tað
grundvallaratriði, sem framleiðsla
atómsprengjunnar byggist á.
Óvænt uppg'ötvun.
SEINT á árinu 1938 var frægur
þýskur efnafræðingur, Otto llahn
að nafni, starfsmaður við stofnun
Vilhjálms keisara í Berlín að reyna
að kljúfa uranium með „hægfara"
neutronum, sem höfðu litla orku.
Við þessar tilraunir sínar komst
hann að raun um, að efnið barium
myndaðist. Þetta kom honum í nokk
urn bobba og hann skrifaði grein
í Natui’wissenschaften, þar sem
hann lýsti vandræðum sínum.
Hann hafði verið að endurtaka
tilraunir, sem áður höfðu ver-
ið framkvæmdar af fyrri starfsfje-
laga hans, Lise Meitner, gyðinga-
konu, sem hafði flúið ríki Ilitlers
og haldið til Kaupmannahafnar.
Tilraunir Lise Meitner höfðu einnig
komið henni í bobba — en þegar
hún sá skýrslu Hahns gat hún s.jer
þess til, að hið geysistóra uranium»
atóm hefði klofnað í tvo næstum
því jafna hluta.
llún kom þessari hugmynd á fram
færi við hinn mikla danska atóm-
fræðing Niels Bohr, sem þá var í
þann veginn að leggja af stað til
Princeton. Bohr flutti bandarísk-
um vísindamönnum hugmyndina.
Þeir tóku þegar til við að rannsaka,
hvort tilgáta þessi væri rjett og
komust að þeirri niðurstöðu, að svo
mundi vera. Þeir drógu sig kurteis-
lega í hlje á meðan dr. Meitner
skýrði frá fyrstu niðurstöðum sín-
um um umbreytingarnar á urani-
um. Ilún nefndi fyrirbrigðið klofn-
ingu, vel þekkt orð meðal lífeðlis-
fræðinga, en lítt notað fram að því
í heimi eðlisfræðinnar.
Orkusparnaður.
KLOFNINGIN olli fullkominni
byltingu, hún var stórk.ostleg —■
ekki aðeins fyrir þá sök, að hið
þyngsta atli'a efna hafði verið klof-
ið, heldur vegna hins gífurlega
orkusparnaðar. Fram að þessum
tíma höfðu vísindamenn alltaf orð-
ið að nota meiri orku í „skevti“
sín en orku þá, sem leystist úr læð-
ingi vij) klofninguna. Nú mýndaðist
200,000,000 eletrónvolta orka af
neutronum með minna en einnar
eleftrónvolta orku. Efni, sem jafn-
gilti hjer um bil einum fimmta af
massa -neutronunnar var breytt í
orku í samræmi við formúlu Ein-
steins.
Hugsanlegur möguleiki.
VIÐ FÝRSTU uranium sprenging
arnar mynduðust nýjar neutronur,
sem virtust hafa hæfileika til að
myiida enn fleiri neutronur o. s. frv.
Þessar keðjuverkanir virtust geta
bent til þess, að takast mætti að
leysa atómorkuna í stórum stíl. -
Joliot-Curie tókst raunverule^ ú
framleiða þessar keðjuverkt ' en
]tær voru ekki nógu langvarandi.
Nú þurfti að finna upp ráð til þess
að kom'a í veg fyrir að þær dæju
út og rmð til að láta þær aukast
og margfaldast.
Þetta er erfitt verk, en þó var
von til þess pð það mætti takast.
Dr. Louis A. Turner í Princeton á-
lyktaði sem svo í grein, sem hann
birti í Reviews of Modern Physics.
— Nú virðist í fyrsta skifti vera
hugsanlegur möguleki fyrir því að
hægt verða að notfæra orkuna, sem
fellst í kjarna þungra atóma. Hin
tæknilegu vandkvæði verðasjálfsagt
ekki lengi neinn Þrándur í Götu.
Skömmu eftir þetta hættu að ber-
ast frjettir af atómsjerfræðingun-
um. Þeir voru að finna lausn á
„hinum tæknilegu vandkvæðum".
Á bak við tjöldin tóku vísinda-
mennirnir á móti skipunum sínum.
örfáir voru svo skelkaðir yfir því,
sem fara átti að gera, að þeir neit-
uðu að'hlýða fyrirskipununum. En
flestir lögðu sig alla fram, vitandi
það, að úr því sem komið var, var
ekki hægt að koma í veg fyrir upp-
götvunina og Bandaríkin urðu að
verða fyrgt til. Margir vonuðust til,
að tilraunirnar mundu mistakast og
það svo eftirminnilega, að aldrei
yrði byrjað á þeim aftur.
í síðustu viku skýrði hermála-
ráðuneytið frá árangri þeirra. Pró-
fessor II. D. Smyth forstjóri eðlis-
fræðideildarinnar í Princeton, sá er
skýrsluna skrifaði, gat ekki skýrt
frá öllum rannsóknunum. En það
sem hann gat skýrt frá á sínu leynd
ardómsfulla máli, var þó stórkost-
legasta og þýðingarmesta sagan,
sem nókkur maður hefur sagt á
sf vr j ald ar árunum.
Niðurlag í næstu Lesbók.
i