Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1946, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS § T' '¥■ <i r
117
Er hún hafði lokið því námi að
mestu veiktist hún að nýju. Þá
þufti hún langa sjúkrahússvist. —
Þar kyntist hún jóskri konu. Tókst
kunningsskapur með þeim. Bauð
hún Nínu til sín út á Jótland, er
hún væri orðin ferðafær.
Á Jótlandi kyntist Nína danskri
listakonu er var myndhöggvari. —
Hafði hún ekki áður haft nein
kynni af myndlist. Þessi viðkynn-
ing hreif hana, gágntók hana. Hún
fjekk sjer leir og fór að móti mynd-
ir. Hún mótaði m. a. barnshöfuð.
Þetta verk hennar vakti mikla at-
hygli. Hún fór með það til kenn-
ara við Tekniska skólann í Höfn.
H. Grönvold. Hann var ágætur
kennari. Hann spurði hana hvar
hún hgfði lært. Hún sagði sem var,
að hún hefði engrar tilsagnar notið.
Þetta varð til þess, að kennarinn
studdi hana til náms, svo og frænka
hennar. Helga Guðmundsdóttir. —
Síðan gekk hún á Lista-akademíið
í Höfn í fjögur ár. Var Utzon Frank
aðalkennarinn hennar Hann örvaði
þenna nemanda sinn mjög til
sjálfstæðra verka og jók á sjálf-
traust hennar. Frá Höfn fór hún að
afloknu námi til Róm og Parísar.
Dvaldi lengi í París. Þar gerði hún
myndina Móðurást. Hugmynd sína
að þeirri mynd fjekk hún frá skáld
sögu Sigridar Undset, Jenny.
Nokkru eftir að hún kom til Ncw
York, gerði hún m. a. mynd af Vil-
hjálmi Stefánssyni, er síðar var
gefin hingað. En þá fyrst vakti hún
almenna eftirtekt vestra, er hún
sigraði í samkepni þeirri, er stjórn-
endur Waldorff-Astoría gistihúss-
ins gerðu um mynd, sem prýða
skyldi aðalinngang að stórhýsi
þessu. . '
Eftir nokkurra ára dvöl í New
York fluttist hún til Hollyvood.
Þar gerði hún mynd af Leifi Eiriks-
syni, sem sett var í .,Griffith Park“
í Los Angeles. og ál'hjúpuð á fyrstu
Nína Sœmundsson aö vinna við síðasta listaverk sitt, Hafmey.
„Eiríkshátíð" er þar var haldin.
Aðra standmynd og stærri hefir
hún gert er táknar Prometheus í
West Lake Park.
Hún hefir, sem fyr segir mótað
fjölda mynda af kvikmyndaleik-
urum í Hollyvood. Eitt sinn er hún
hafði verið lengi veik og hafði ekki
líkámsþrek til að fást við að móta
myndir eða höggva í stein, tók
hún að mála. Hefir hún fengið góða
dóma fyrir mörg málverk sín.
Nýlega hefir frk. Nína fengið
langtum meira verkefni en nokkru
sinm áður, er inun endast henni í
mörg ár til úrlausnar.
Oliukongur einn í Houston í Tex-
asfylki Mc. Carthy að nafni, hefir
ákveðið að reisa mörg stórhýsi ut-
an um fagurt torg í borg þessari.
Torgið á að bera nafn hans. Hin
fyrirhuguðu stórhýsi eiga að vera
fyrir útvarpsstöð. gistihús og leigu-
hús með dýrindis íbúðum. Forstöðu
menn þessa mikla byggingafyrir-
tækis. hafa ráðið frk. Nínu Sæmund