Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Blaðsíða 1
^JJannei ^jjónáion jrá ^JJíeJarcja. ki: ÞEGAR JEG UET „HLAUPA GRIND w hann ákveðið að hann færi til Akur- Rjett eftir 1870 komu harðindi. — Vetiirinn lagðist snemma að með hríð- um og frostum. — Snjór varð mikill svo varla varð komist bæja á milli, • l>ar sem verst var. — Eyjafjarðará var á helluís fram í gegn. — Varð ,,augalaus“, eins og karlarnir orðuðu það. — Samgöngur og aðflutningar teptust, svo horfði til vandræða. — Stöku menn réyndu að brjótast með reiðingshesta til Akureyrar til að ná í nauðsynjar, og einstaka göngugarp- ur lagði líka leið sína þangað, til þess að bera kannske 5 fjórðunga bagga á bakinu heim aftur. — En svo kom alt í einu hláka og hlýindi. — H'eitur loftstraumur að sunnan flæddi yfir landið, og snjór- inn bráðnaði óðfluga. Stórir lækir beljuðu niður á sljettlendið svo vatnið huldi alt — en þetta stóð ekki lengi, það kólnaði aftur í veðri, hörkufrost kom, og bjartviðri. — Hlákuvatnið fraus, og varð að svelli. — Ilvert sem litið var'sást ekki annað en svell — eintómt svell — það var komið ágæt- is sleðafæri til Akureyrar. — Þá var það árla einn morgun, að síra Jón Austmann, síðar prestur að Stöð í Stöðvarfirði, en þá í Saurbæ í Evjafirði, vaktr einn vinnumanna sinna, og tjáði honuin að nú væri gott veður og tryggilegt, og því hefði evrar, og ljeli hlaupa grind. — Vesalings vinnumaðurinn horfði svefnugum, en þó undrándi augum á húsbónda sinn. — llvað var nú á seið'i. Hann skildi þetta ekki. — Að láta „hlaupa grind", það hafði hann aldrei heyrt áður. — Ilverskonar hundakúnstir voru þcttaP cða var blessaður presturinn að verða eitt- hvað ruglaður? En fnálið upplýstist fljótt. — Hann átti að fara með hcst og sleða í kaup- staðinn, og flytja heim trjávið, korn- mat og aðra þunguvöru. — Og vinnumaðurinn fór, og ljet „grindina hlaupa“. Hann kom heim um kvöldið með 15—16 klyfjar á henni. Færið var hið ákjósanlegasta, sljettir og glærir ísar alla leið. — En Eyfirðingar hentu gaman að þessari mállýsku prests, cn hún mun hafa átt rót sína að rekja til annara hjeraða cða landsfjórðunga. — Svona sleðafæri gafst samt ekki að jafnaði, að minsta kosti ekki til fram- fjarðarins. Oftast voru sleðaferðirnar erfiðar mönnum og hestum, og stund- um hættulegar. — Var það ckki ótítt að menn færu hinar herfilegustú hrak- farir, lentu í óveðrum og yrðu að yfirgefa varning sinn, og halda slvppir og snauðir heim. — Isar reyndust oft óiraustir, brotnuðu niður, svó mcnn, “ hestar og sleðar fóru á bólakaf. — Þá var á hangandi hári með að slys yrðu ekki, og þá þurfti oft snarræði og karl- mennsku til að bjarga öllu saman. — Trjáviðarflutningar voru erfiðastir. — Þegar flytja þurfti löng og digur trje, 10—12 álna eða lengri, ])á vand- aðist málið. — Tvær Ieiðir voru hclst fyrir hendi. — Sú betri var að láta „hlaupa grind", mcð öðrum orðum aka þcim á slcðum ef mögulegt var. — Ilin var sú, er þeir Halli hinn hvíti og Bárður sonur hans notuðu, er þeir fluttu „timbrið" úr Mjaðmárdal, cft- ir því sem Víga-Glúmssaga hermir, en það var að flytja það í „drögum". — Tvö 12 álna trje þóttu „drápsklyfj- ar“, og ekki nerna úrvalsgripir þoldu þann drátt langa lcið. — Margt mætti segja um sleðaferðirn- ar gönilu, í Eyjafirði, Og margt ævin- týrið gerðist í þeim. — Frásögn sú, er hjer fer á eftir, er dálítið sýnishorn af þeim. Það var veturinn 1897. — Jeg hafði fyrir stuttu lokið námi við búnaðaj-- skólann á Hólum í Hjaltadal og var kominn heiin til að taka við búsfor- ráðum mcð móður minni, því að faðir minn var þá látinn. — Veturinn hafði verið fremur óstiltur, og ekki frosta- mikill svo Eyjafjarðará lagði seint og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.