Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Qupperneq 3
LESBÓK MORG UNBLAÐSINS 159 það vorura við Jóhannes, eins og áður er sagt. — Magnúsi hnykkti við frá- sögnina og Ijet í ljós undrun sína yfir ódrengskap hans, að nema ekki stað- ar og gera þeim er á eftir voru að- vart. Fór hann þegar lil vinnuraanna sinna, og bað þá að fara sem skjótast út að hylnum, og vita hvort þar hefðu gerst nokkur tíðindi. Brugðu þeir skjótt við, og hröðuðu ferð sinni. — En frá okkur Jóhannesi er það að segja, að ekki leist okkur að halda lengra. — Komið var á ofsaveður og vatnið óx óðfluga á átini, en koldimm nótt að koma. Tókum við það ráð, að reyna að koma sleðanum upp á vesturbakkann, og heppnaðist það að lokum. — Rjett í þessum svifum komu sendi- mennirnir frá Grund. — Við stóðum nú þarna á bakkanum og ræddum um hvað til bragðs skyldi taka. — Fjöldi Eramfirðinga var fyr- ir neðan, og ef þeir heldu áfram. var voðinn vís. — Þá heyrðum við alt í einu, þrátt fyrir veðurgnýinn og vatnsniðinn, skruðninga út og fram á ísunum. — Þóttumst við vissir um, að þar væru menn á ferð. — Við hlupum fram á ána, þar sem við viss- um að ísinn var sterkur, og ætluð- um að hefta för komumanna og köll- uðum svo hátt til þeirra sem við gát- um, til að vara þá við, en alt kom fyrir ekki. — Aðkomumenn fóru mik- inn og bar fljótt yfir, og ekki urðu þeir okkar varir. — A næsta augna- bliki voru menn hestur og sleði kotnn- ir að vökinni, og svo fór alt á kaf. — Við þutum að vökinni. — Þar svönduðu tveir menn og einn hestur. — Sleðinn, sem trjáviður var á, mar- aði í kafi. — Kassi, sem bundinn var ofan á viðinn, var fullur af vatni, og út úr honum flaut alskonar varning ur, pinklar og skjóður, tóbakspokar, kaffibætisstvkki og margt fleira. — Hv^ið gerðist næstu mínúturnar get jeg varla sagt ,en einhvernveginn, og með einhverjum ráðum, fókst okkur að ná öllu upp á ísinn aftur að und- anskildu ýmsu smádóti, er straumur- inn bar út undir skörina og hvarf. — Svo er sögunni nærfelt lokið. — Vörður var settur við ána um kvöld- ið og frameftir nóttunni, til að af- stýra fleiri skakkaföllum. — Við Jó- hannes fórum til'næstu bæja, og báð- umst gistingar. — Næsta morgun komum við varningi okkar í geymslu þar, og heldum svo heimleiðis, nær- felt slyppir og snauðir. — „Mikill tjrt þú munur, og þó aldrei nema munur“, sagði kerlingin. — Vinnumaður síra Jóns Austmanns Ijet „hlaupa grind“, og kom heim, heilu og höldnu, með 15—16 klyfjar. — Við Ijetum líka „grindina hlaupa“, en komum heim aftur hraktir og hrjáðir, — og það sem verst var, tómhentir. — Nú er sleðaöldin að verða liðin, að minsta kosti í Fram-Eyjafirði, og bráðum deyr hún alstaðar út. — Onn- ur og betri farartæki eru komin til sögunnar. — Sleðarnir eru að hverfa, og verða bráðum að hálfgerðum forn- gripum, að minsta kosti í sumum sveitum. — Innan skamms fer yngra fólkið að hætta að skilja svona ferða- leg. Það er þess vegna að jeg hefi ritað þetta. — Maj-Lis Holmberg: BRJEF FRÁ FINNLAND! Helsingfors, 6. apríl 1947. NÚ VORAR í Finnlandi. Snjór- inn bráðnar óðum í vorregni og vor- sól, og ísana leysir með ströndum fram. Það er mál til komið. ísinn hefur gert oss miklar skráveifur í vetur, eins og öðrum Norðurlönd- um. Þar við bætist svo að ísbrjótar vorir hafa legið iðjulausir að undan- förnu, vegna verkfalls, vegna kröfu um hærra kaup. Þetta verkfall kom einmitt nú, þegar vorið er að levsa skip vor, sem legið hafa innifrosin i suðlægari höfnum við Eystrasalt og þau eru væntanleg heim með vörur, sem oss ríður lifið á að fá. Verkföll, til að knýja fram hærra kaup, ágerast nú í Finnlandi, og er þá ekki alltaf skeytt um fjelagssam- þykktir. I vetur var t.d. boðað verk- fall, sem vakti feikna umtal og heit- ar deilur. Það voru opinberir starfs- menn, sem hótuðu að gera verkfall, vegna þess að þeir höfðu ekki náð samningum við stjórnina um hærra kaup. Slíkt verkfall hefði orðið eins dæmi í sögu hinna löghlýðnu oþin- beru starfsmanna, og hefði getað liaft hinar háskalegustu afleiðingar, þvi að það mundi hafa náð til tug- þúsunda starfsmanna hjá rikinu. Verkfallið átti að hefjast aðfaranótt 1. mars, og þá hefði allar járnbraut- arsamgöngur lagst niður, póst- og símaafgreiðsla svo að segja stöðvast, öllum opinberum skrifstofum verið lokað o. s. frv. Til allrar hamingju varð verkfallinu afstýrt nokkrum klukkustundum áður en það átti að skella á. Stjórnin lofaði þvi að sam- ræma laun opinberra starfsmanna hið allra fyrsta. Hin almenna kauphækkun, sem varð hjer í stríðinu, og einkum eftir stríðið, náði ekki jafnt til opinberra starfsmanna sem annara, svo að sú kauphækkun, sem þeir hafa fengið er ekki í hlutfalli við kauphækkanir annara stjetta. Nú var grunnkaup þeirra, miðað við dýrtíð, ekki nema svo sem þriðjungur af því, sem gold- ið var fyrir heimsstyrjöldina fyrri, og talsvert lægra en kaup opinberra starfsmanna í Svíþjóð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.