Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1947, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
179
Jl
vemicj-
menn
a o búa til
SKYR
Fyrir rúmum 5000 árum var arab-
iskur kaupmaður, Kanana að nafni,
á ferð og. þurfti að hafa hraðan á.
Hann lagði á stað snemma morguns.
Farangur sinn og nesti reiddi hann á
asna, en til drykkjar ætlaði hann að
hafa mjólk, sem hann ljet í sauðar-
vömb.
Segir nú ekki annað af ferðum
hans en að hann helt áfram allan
daginn..Og þótt vegurir.n væri erfið-
ur og hiti mikill, stilti hann sig um
það að bragða á mjólkinni, hugsaði
sem svo, að hann kynni að hafa meiri
þörf fyrir hana næsta dag.
Seint um kvöldið settist hann að,
og ætlaði þá að fá sjer ofurlítinn
mjólkursopa. En honum brá heldur
en ekki í brún, er hann fekk ekki
annað úr vömbinni en svolítið af
vatnsþunnum legi. í einhverju fáti
þreif hann hníf sinn og risti gat á
vömbina. Innan í henni fann hann
hvítt mauk, og þegar hann bragðaði
á því, fann hann að þetta var herra-
manns matur.
Hann sagði kunningjum sínum frá
þessu fyrirbæri, og þeir undruðust
mjög. Reyndu þeir svo að leika þetta
eftir, og komust þá að þeirri niður-
stöðu, að þetta, sem þeir kölluðu
kraftaverk, gerðist ekki nema því að-
eins að mjólkin væri látin í vömb úr
nýslátraðri kind, og vömbin mætti
ekki þorna, eða á meðan kæsirinn er
ehn óskemdur.
Á þennan hátt lærðu menn að búa
til skyr.
(Macleans Magazine).
^ ^ ^
ocj bama
Árið 1934 voru hafin brjefaskifti
milli sjómanna og barna í skólum
í Englandi. Það byrjaði þannig, að
fjórir skólar kusu sjer sitt skipið hver
til þess að eiga brjefaskifti við. Fyrst
í stað voru það skipstjórarnir, sem
svöruðu brjefum barnanr.a og lýstu
fyrir þeim ýmsum stöðum úti í
heimi þar sem þeir komu. En brátt
fóru aðrir skipverjar að taka þátt í
þessum brjefaskiftum og reyndist
þetta svo vel, að börr.in lærðu miklu
meira í landafræði á þessu, heldur en
þau gátu lært í skólanum.
Siður þessi breiddist út og altaf
fjölgaði þeim skólum og skipum, sem
þátt tóku í brjefaskiftunum. Er nú
svo komið að börn í 900 skólum í
Bretlandi skrifast á við sjómenn, sem
eru í siglingum. Á stríðsárunum voru
það svo miklu fleiri skip en ensk, sem
áttu brjefaskifti við börnin. Þess er
t. d. getið að fyrir skemstu fengu
börnin í einum skólanum stóra send-
ingu af allskonar leikföngum. Þetta
var gjöf frá dönsku stjórninni í þakk-
arskyni fyrir það, að börnin í þessum
skóla höfðu átt brjefaskifti við áhöfn
á dönsku skipi, meðan á stríðinu stóð.
Það er einnig sagt, að fyrir þessi
brjefaskifti hafi aukist mjög áhugi
drengja í skólunum fyrir sjómensku,
og fjöldi þeirra hafi ráðist í siglingar
er þeir höfðu þroska til.
íW 5^ ^ íW 5W
Ástin
Manninum er ástin aðeins brot
af lífinu, konunni er ástin allt.
(Byron).
Verði maðurinn fyrir vonbrigðum
í ást, verður hann pipfirsveinn. En
konan, sem verður fyrir vonbrigð-
um í ást, giftir sig.
ójómayma
- Molar -
Frú N. mætti frú P. á götu og frú
P. gekk kengbogin.
Frú N.: „Já, slœm er gigtin viö þig
núna, þaö sje jeg á þjer,“
Frú P.: „Þaö er ekki gigtin. Það
eru nýju sokkarnir mínir. Þeir eru
svo stuttir aö sokkaböndin œtla alveg
aö drepa mig.“
Þaö er víöar en hjer á íslandi, aö
mönnum þykir seint ganga fyrir hinu
opinbera um húsabyggingar. Breskur
maöur Ijet í Ijós gremju sína meö því
aö líkja stjórninni viö Salomon kon-
ung og vtsaöi til biblíunnar I. Kon. 9.
10. En þar stendur: „Og aö 20 árum
liönum, þegar Salomön haföi bygt tvö
hús . .
Enskur bóndi kom inn í banka á
striösárunum og var meö fötu t hend-
inni, fulla af peningum. Hann steypti
úr fötunni á boröiö og sagöi aö þarna
vœri 1000 Sterlingspund, sem hann
œtlaöi aö láta t stríöslániö. En þegar
bankamaöurinn taldi fjeö, sagöi hann
aö þetta vœri ekki nema 900 pund.
Bóndi vildi ekki trúa þvt, svo aö þeir
töldu báöir, og niöurstaöan varö sú
aö þetta voru 900 pund. Þá var eins
og Ijós rynni upp fyrir bónda og hann
sagði: „Æ, konan hefur þá fengiö
mjer skakka fötu.“ .
\
Mannkynssagan er röö atburöa,
sem betur heföi aldrei skeö.
Þaö eru til fleiri leiöir aö tapa pen-
ingum, en græöa peninga.
Á 13. öld voru um 3 miljónir íbúa
t Englandi, en þá voru þar 57.000
prestvígöra manna, eöa nær einn af
hverjum 50. Nú hefur íbúatalan tví-
tugfaldast, en prestum hefur ekki
fjölgaö. Nú er einn prestvígöur maö-
ur af hverjum 1000 tbúum.