Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1947, Page 1
UNDRAMÁLMURINN
ALUMINIUM
/Skip meö yfirbyggingu úr aluminium.
Á STRÍÐSÁRUNUM jókst alumin-
ium notkun geisilega mikið, því að
þessi málmur var mjög handhægur tii
ýmissa hernaðarþarfa. í Kanada eru
auðugar aluminiumnámur, og þar var
reist verksmiðja, sem kostaði 300
milljónir dollara. Það var mikið fje,
og margir spáðu því þá, að verk-
smiðjan mundi hætta störíum þegar
að stríðinu loknu. Menn sögðu sem
svo:
„Það þarf að framleiða ókjörin
öll af pottum og pönnum til þess að
þessi verksmiðja geti borið sig“.
En það ætlar að fara á annan veg.
Enda þótt verksmiðjan bræði nú
fjórða hluta alls aluminium, / sem
framleitt er í heiminum, þá er svo
komið að nú þarf að stækka hana, og
er gert ráð fyrir að sú stækkun muni
kosta 450,000 dollara. Þetta er eina
dæmið þar í landi um það að orðið
hafi að stækka hergagnaverksmiðju
síðan stríðinu lauk.
Þetta stafar af því, að nú er farið
að nota aluminium til mörgum sinn-
um fjölbreyttari framleiðslu en áður
var; og eftirspurn að aluminium
eykst stöðugt. Er talið aö verksmiðj-
an framleiði nú aluminium í 4000
mismunandi vörutegundir.
Nú er ekki talað um potta og
pönnur eins og áður. Það er allt of
smátt til þess að um það sje talað.
Nei, nú er farið að smíða bíla, járn-
brautarvagna, hús, skip og kjarnorku
vjelar úr aluminium.
Framleiðslan á aluminium er um
200,000 smálestir á ári í Kanada, en
var 70,000 smálestir á ári fyrir stríð.
Og verksmiðjan í Arvida veitir 4500
manns vinnu. Samt er búist við að
tvöfalda verði vinnukraftinn áður en
langt um líður. — Pantanir streyma
þangað frá öllum löndum heims, jafn-
vel frá Bandaríkjunum, sem eru þó
auðug að aluminium. Ástæðan til þess
er sú, að Kanacla getur framleitt ó-
dýrara aluminium en nokkurt annað
land nú sem stendur, og það stafar
aítur af því, að þar er raímagn miklu
ódýrara en annars staðar, og er feng-
ið með vatnsafli. Aluminium bræðslu-