Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1947, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1947, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 297 LÁVARÐADEILDIN Af efri deild breska þingsins, eða lávarðadeildinni, fara mikiu minni sögur en af neðri deildinni, og menn þekkja mikhi minna til starfa hennar. — / þessarri stuttu yfilitsgrein geri' Tweedsmuir lávarður nokkra grein fyrir hlutverki deildarinnar. hinni fornu grísku speki, sem of lít- ill gaumur hefur verið gefinn hingað til. Og þá er ekki síður eftirtektarvert og hjálpvænlegt, að á Bretlandi er nú að koma fram ný heimspeki, þar sem látin er í ljós þessi afar þýðingar- mikla hugsun, að mannkyn jarðar vorrar muni ekki geta komist á braut hinna sönnu framfara, ef ekki nýtur við hjálpar frá lengra komnum man. kynjum á öðrum jarðstjörnum al- heimsins. Virðist ástæða til að bíða með mikilli eftirvæntingu næstu bókar Riplev Webbs, þessa stórgáfaða nýa enska heimspekings. — Virðist mega gera sjer vonir um, að þessi stórmerkilegi undirstöðusannleikur, sem Webb gerir varla meir en tæpa á í síðustu bók sinni, muni í þeirri næstu, hafa náð þeim þroska, sem nauðsynlegur er, til þess að fullkom- lega geti að notum orðið. Mundi þá einnig hjer á landi, undirstöðuhugsun þessi, fá þær undirtektir, sem hún á skilið. En það er víst að úr því að svo væri komið, mundi engu þurfa að kvíða um framtíð íslensku þjóðarinn- ar. 18. september. V 4/ íW AÐVÖRUN Kirkja nokkur var eitt sinn svo vel sótt, að vrestur setti vörð við dyrnar og bannaöi honum að hleypa fleirum inn. Rjett á eftir kom maöur þar á harða hlaupum og vildi komast inn. Vöröurinn varnaöi honum inngöngu. Maðurinn sagði þá að hann þyrfti nauðsynlega að finna mann, sem þar vár inni, og þaö gilti líf eður dauða. Vörðurinn var góðhjartaöur, svo að hann gat ekki staðist það. „Jœja, faröu þá inn," sagði hann, „en guð hjálpi þjer, ef jeg sje þig biöjast fyrir.“ HÓGVÆR BEIÐNI Strœtisvagnstjórinn: Gerið svo vé. að ýta hver öðrum aftar í bilinn! í ÖLLUM þingræðislöndum eru þingin í tveimur deildum, en efri deildirnar eru skipaðar sín með hverj um hætti. Jafnvel í bresku samveld- islöndunum, sem hafa myndað stjórn- arfar sitt eftir stjórnarfari Breta, er talsverður munur á því hvernig efri deildir þinganna eru skipaðar. Mestu skakkar um þingin í Ástralíu og Kanada. í Ástralíu eru þingmenn til beggja deilda kosnir á svipaðan hátt, þannig, að þar er raunverulega um tvær þjóðkjörnar þingdeildir að ræða. í Kanada hafa þeir öldungadeild, sem meira svipar til lávarðadeildar- innar bresku. Aðalmunurinn er sá, að þar erfa menn ekki þingsæti. Venju- lega situr hver stjórn í Kanada lengi að völdum. Þingsæti í öldungadeild losna því aðeins að þingmaður deyi. Þegar einhver stjórn hefur setið lengi að völdum í Kanada og skipað sínum fylgismönnum öll sæti, sem losnað hafa í öldungadeildinni, þá hefur hún venjulega tryggt sjer meiri hluta fylgi þar. Þegar ný stjórn tekur við völdum, á hún það því nokkurn veginn víst að andstæðingar hennar sjeu í meirihluta í öldungadeildinni. í lávarðadeildinni bresku gengur þingmennskan að erfðum frá föður til elsta sonar og menn öðlast þár sæti þegar þeir eru aðlaðir. Ýmsum kann að virðast það harla úrelt og íhaldssamt fyrirkomulag. En breska lávarðadeildin er þó vel váxin því hlutverki, sem hún á að gegna. Frá lögfræðilegu sjónarmiði er hún æðsti dómstóll landsins, og forseti hennar er æðsti maður ríkisins annar en konungurinn. Um lagasetningu deildarinnar eru margir í vafa, því að það ber svo litið á því starfi. Neðri deild þingsins er skipuð þjóðkjörnum þingmönnum, og meiri hluti hennar ræður allri lagasetningu. Lávarðadeildin er nokkurs konar endurskoðandi á gerðir neðri deildar. Hún hefur fleiri sjerfræðingum á að skipa, og hún á að sjá til þess að frumvörpin fari þaðan betur úr garði ger heldur en þau koma frá neðri deild. Um það, að lávarðadeildin sje betur mönnum skipuð að þessu leyti heldur en neðri deildin, má þess geta, að þar eiga nú sæti 13 menn, sem eru sjerfræðingar í flugmálum, og hafa ýmist starfað í flugmálaráðuneytinu, eða þeirri deild samgöngumálanna, sem fer með samgöngumál f lofti. Þetta. er aðeins eitt dæmi. Lávarðadeildin vinnur sín verk í friði, og er laus við utan að komandi áhrif. Þar geta menn látið í ljós skoð- anir sínar án tillits til flokksfylgis.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.