Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1947, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1947, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 299 Og á eftir honum komu allir hinir negrarnir í hóp. Svo fór hann með okkur í gegn um göng og svo urðum við að þræða mjóa brú og svo opnar hann fyrir okkur járnhurð. Og þegar við vorum allir komnir þar inn, þá skellti hann hurðinr.i í lás — og vöruhúsið siglrti á stað. VI. SKOTI nokkur annaðist öll vöru- kaup hjá stóru firma. — Einhverju sinni pantaði hann feiknin öll hjá sölumanni, og varð sölumaður svo feginn, að honum fannst að hann yrði að launa Skotanum þetta á ein- hvern hátt. Hann vissi þó. að hvorki þýddi að bjóða honum peninga nje prósentur. En hann hafði tekið eftir því að Skotinn var sí-reykjandi vindla. Sölumaður brá sje því út í tóbaksbúð og keypti einn kassa af bestu Havana-vindlum, sem þar var að fá. Kassinn kostaði 15 dollara. — Sölumaður fór með hann til Skotans og bað hann að þiggja þetta af sjer sem vinargjöf. Skotinn sagði að það væri á móti reglum firma síns að starfsmenn þess tæki við gjöfum af viðskiptavinum. Því miður gæti hann því ekki þegið vindlana, enda þótt hann vissi að gefandanum gengi ekki nema gott til. Þá kom sölumanni nýtt ráð í hug: ,,Jeg get ekki verið þekktur fyrir að fleygja þessum Vindlum", sagði hann, „en þeir eru mjer ónýtir, því að jeg reyki aðeins vindlinga. Viljið þjer ekki kaupa þá af mjer? jeg er viss um að þjer megið það“. „Hvað á kassinn þá að kosta?“ spurði Skotinn. „Þá skalt fá hann fyrir 25 cent“. Skotinn opnaði kassann, þefaði af vindlunum og skoðaði þá í krók og kring. „Jæja, fyrst svo er“, sagði hánn, „Þá ætla jeg að fá fjóra kassa“. VII. ÞAÐ var verið að taka manntal og manntalsmaðurinn kom inn á fá- tæklegt heimili. Þar sat bóndinn með margar bækur fyrir framan sig. Það kom upp úr kafinu, er þeir fóru að tala saman, að bóndi hafði látið ein- hvern sölumann fleka sig’til þess að kaupa alfræði orðabók, og til þess að hafa gagn af henni, hafði hann sest við og ætlaði að lesa hana alla spjald- anna á milli. Nú vildi manntalsmaðurinn fara að skrá heimafólkið, og bóndi skýrði honum frá nafni sínu og konu sinnar, hvað þau væru gömul og svo fram- vegis. „Hvað eigið þið mörg börn?“ spurði komumaður. „Við eigum þrjú börn og þjer getið bölvað yður upp á að þau verða ekki fleiri“. „Hvernig stendur á því að þjer eruð svo viss um það?“ „Það skal jeg segja yðiu-“, sagði bóndi. „Það stendur nefnilega svart á hvítu hjer í þessari bók, að fjórða hvert barn, sem fæðist, sje Kín- verji“. VIII. BANKASTJÓRI nokkur í Georgia var alræmdur fyrir það hvað hann var nískur. Hann átti heima á bú- garði utan við borgina. Nú var það einn sunnudagsmorgun, að hann upp- götvaði það að hann hafði gleymt áríðandi skjölum á borði í bankan- um. Hann bað þá einn af þjónum sínum, gamlan Svertingja, að fara fyrir sig að sækja skjölin og fekk honum lyklana. Það var ákaflega heitt í veðri og ryk á veginum, en samt kom Surtur aftur eftir klukkustund með skjölin og lyklana. Bankastjórinn leitaði í vösum sín- um, hverjum af öðrum, og sagði svo: „Þetta er slæmt, Jim minn góður, jeg helt að jeg ætti smáper.ing á mjer handa þjer, en nú finn jeg hann ekki“. „Ó, leitið þjer betur“, sagði Surt- ur. „Ef þjer hafið einhvern tíma eign- ast smápening, þá eigið þjer hann áreiðanlega ennþá“. ^ ^ ^ ^ Ilúmið litar himintjöld, hœkkar myrkurflóðiö, brimið þrumar þungt í kvöld, þyngir veðurhljóðið. Hafið dökknar meir og meir, merlar tunglið bletti. Skuggum líkir skarfar tveir skima A Svartakletti. Maríus Ólafsson. ^ ^ V íW ^ KATTASAGA SAM GOLDWYN þurfti einu sinni að nota 150 ketti í kvikmynd. Hann fól manni nokkrum að útvega sjer kettina. En það var hægar sagt en gert. Þá minntist maðurinn þess, að í borginni voru óteljandi flækings- kettir. Og ná vildi svo vel til að um sama leyti var hafin allsherjar katta- hreinsun í borginni, og þar náði raað- urinn í þessa 150 ketti. Kvikmyndajöfurinn borgaði 2,50 dollara á dag tneð hverjum ketti, en svo kom að því að hann þurfti ekki lengur á þeim að halda. Og nú sat eigandinn uppi með þá og vissi fyrst í stað ekki hvað hann ætti að gera við þá. En svo datt honum gott ráð í hug. Hann auglýsti í blaði að til sölu væri nokkrir kettir, sem hefði leikið í kvik mynd, og kostaði hver aðeins 1 dollar. Sama daginn seldi hann alla kett- ina, og nú hafa þessir flækingskettir komist inn á góð heimili, þar sem þeir njóta dálætis og umhyggju.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.