Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 2
158 LESBÓK MORGUNLT.ADSINS Fyrstu kynni af íþróttum Fyrstu kynni mín af íþróttum voru þau, að Magnús frá Cambridge kenndi leikfimi í barnaskólanum gamla, sem stóð þar sem Pósthúsið er nú. Magnús var harður kennari. Ef við stunduðum ekki æfingarnar af áhuga, eða gónd- um út í loftið í stað þess að horfa á hann, rak hann okkur út í horn, í svokallaðan „skammarkrók", og þar urðum við að standa þegjandi og nreyfingarlausir og horfa á, og þótti það mikil smán. Næsti kennari minn í leikfimi var Ingibjörg H. Bjarna- son, síðar skólastjóri Kvennaskólans. Henni hlýddu allir. Þá fór kennslan fram í Miðbæjarskólanum. En fyrstu íþróttamennirnir, sem jeg sá, var flokkur sá er Ferguson æfði. Sundkennsla hiá froskum og álum Jeg var ekki nema 12 ára gamall þegar jeg fór í fiskvinnu á Kirkju- sandi. Sundlaugin var þar skamt frá, og mig langaði ákaflega mikið til að læra sund. Fór jeg þá til Páls Erlings- sonar og bað hann að kenna mjer. Og hann tók mjer tveim höndum. Þá var sundlaugin að eins pollur í Laugalæknum og bakkamir hlaðnir úr torfhnausum, en lítill skúr þar sem menn afklæddu sig og klæddu. Þarna í lauginni voru álar og rjett fyrir ofan og jafnvel stundum við laugina, voru froskar, sem sjervitur Englendingur hafði flutt hingað og slept í Laugalækinn. Þeir lifðu þar í nokkur ár, en eru nú aldauða fyrir löngu. Við strákarnir höfðum ákaf- lega gaman af því að sjá þá hoppa og vorum ekki vitund hræddir við þá, en flestar stúlkur voru logandi hrædd ar við þá, og um og ó að synda í lauginni þeirra. vegna. íslenska glímcn Ein var sú íþrótt, sem aldrei lagð- ist niður hjer á landi, og það var þjóðaríþróttin okkar, glíman. En nú var hún hafin til vegs og virðingar að nýu. Glímufjelagið Ármann var endurvakið haustið 1906 og þá var byrjað að glíma í fiskpakkhúsi Elías- ar heitins Stefánssonar. Það var inn hjá Rauðará. Var langt að fara fyrir þá, sem áttu heima í Vesturbænum, og ekki var hægt að byrja fyr en á síðkvöldum, því að þá var vinnutími manna lengri en nú. En áhuginn var mikill, og það dugði. Og ekki minnk- aði áhuginn þegar það frjettist, að sýna ætti kappglímu fyrir konung á Þingvöllum sumarið 1907. Þá fekk fjelagið stundum að hafa glímuæfing- ar í vinnustofu Jónatans heit. Þor- Ewm- steinssonar. En við Hallgrímur Bene- Augu okkar opnast diktsson ljetum okkur þetta ekki nægja. Við fórum á hverju einasta kvöldi, þegar fært var veður, út á Batterí og glímdum þar. Glímuvöll- urinn var graslaut sunnan við hólinn, og þar var oft harður atgangur. Jeg gríp þetta tækifæri til þess að lýsa því yfir, að mjer var það ómetan- legt happ á lífsleiðinni að komast í kynni við Hallgrím Benediktsson. — Drenglyndi hans, framúrskarandi reglusemi, afburðamennska í íþrótt- um og íþróttaáhugi, gerði okkur fljótt samrýnda, og öll þessi ár, sem liðin eru síðan, hefur aldrei nokkur snuðra hlaupið á vináttuþráð okkar. Árið 1907 fekk Ármann leigt hús- næði til glímuæfinga í Fjalakettinum. Jafnframt fengum við og stundum fyrir náð að glíma í fimleikahúsi barnaskólans. Og eftir konungsglím- una veitti Pálmi Pálsson, kennari, okkur leyfi til þess að hafa æfingar í fimleikahúsi Menntaskólans. Þeir komu stundum á „dönskum stíg- vjelaskóm“, ef þeir timdu þá að leggja þá í það. Í.R. stofnaö Árið 1907 var íþróttafjelag Reykja- víkur stofnað og voru þar m.a. Böðvar Kristjánsson, Matthias Einarsson, Magnús Magnússon, skipstjóri o. fl. Kennari var Andreas Bertelsen. Jeg gekk þegar í fjelagið og höfðum við æfingar í barnaskólanum. Þessi íþróttahreyfing, sem hjer er talin, var vísirinn að því mikla í- þróttastarfi, sem nú er komið á hjer. Við þóttumst nú karlar í krapinu og urðum upp til handa og fóta þegar okkur gafst kostur á því að fara á Olympsleikana í London 1908. — Við æfðum af miklu kappi undir þá för. En árangurinn af henni var nokkur annar og jeg vil segja betri heldur en við höfðum búist við. Okkur varð bað þá Ijóst hve mikið við áttum ólært, er við sáum á hve hátt stig íþróttirn- ar voru komnar erlendis. Og við kom- um heim fullir áhuga fyrir því, að íslendingar reyndu að ná öðrum þjóð- um á þessu sviði. Við sáum hvað okkur skorti til þess að geta talist sannir íþróttamenn og hlutgengir á alheimsmótum. Varð þetta því sann- arlega góð reynsluför, því að hún stælti okkur upp í því að setja mai kið hærra en við höfðum gert áður. Knattspyrna á íslenskum skóm Upphaflega var knattspyma stund- uð á Melunum, án þess að þar væri nokkuð lagað til að öðru en því, að við tókum stærsta grjótið upp úr leik- svæðinu og hlóðum því að marka- stöngunum, til þess að festa þær. Þá komu flestir á íslenskum skóm til æfir.ga, nema þeir, sem efnaðir voru. Sundskáli og íþróttavöllur Upp úr þessu gerðust ýmsir merkir viðburðir. Jeg gekst fyrir því að bók- in „Min aðferð", eftir I. P. Möller var þýdd á íslensku. Höfðu margir gott af því, sjerstaklega þó vegna þess að þá sáu menn það svart á hvítu, sem fáir virtust hafa hugsað um áður, hve nauðsynlegt er að hirða vel lík- ama sinn, hvað þrifnaður og böð eru mikils virði fyrir heilsu manna. Svo rjeðumst við í það að koma upp sundstað við Skerjafjörð, reistum þar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.