Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 3
LESBOK morgunblaðsins 159 skála og höfðum fleka með stökk- palli úti fyrir. Páll Erlingsson var kennari og gátum við launað honum sæmilega. Þarna komst fjöldi ma.nna upp á það að fara í sjo og sannfærast um hve heilsusamlegt það er. — Og þarna lærðu menn fyrst dýfingar, þótt í smáum stíl væri. En stærsta átak okkar var það að koma upp íþróttavellinum. Á þessum árum fengum við engan styrk, hvorki frá bæ nje landsjóði. Við urðum sjálfir að afla fjár til hvers eina, er miðaði að auknu í- þróttalifi og bættum skilyrðum fyrir íþróttamenn. Sjálfir lögðum við allt af mörkum, sem við gátum. Það var að vísu lítið, aðallega áhugi og fórn- fýsi. Það er góður höfuðstóll, en ekki nægði hann til þess að koma upp í- þróttavellinum. Lán gátum við ekki fengið, en við björguðum málinu með því, að fara til fjölda bæjarbúa og fá þá til að ganga í ábyrgð fyrir smá- upphæðum. En safnast þegar saman kemur og upp úr þessu fengum við 30 þúsund króna lán, og svo lögðum við íram sjálfboðavinnu. Iþróttavöllurinn var vígður 10. júní 1911 og á aldarafmæli Jóns Sig- urðssonar, viku seinna, fór fyrsta í- þróttamótið fram þar. Það lá við að við hefðum reist oKk- ur hurðarás um öxl, og .’engi var 1- þróttavöllurinn þungur baggi á í- þróttamönnum. En allar skuldir hans voru þó greiddar eftir 10 ár (1921) og þá var eins og þungu fargi væri af okkur ljett. Mikiö skal til mikils vinna Jeg held að mjer sje óhætt að full- yrða það, að á þeim árum lögðum við hart að okkur við þjálfun. Við not- uðum hverja cinustu frístund, cn þær voru ckki aórar en matmálstimar, síðkvöld og sunnudagar. Sumarið 1911 langaði mig til þess að reyna á þol mitt og lagði á stað fótgangandi á laugardagskvöld, að afloknu starfi. Gekk jeg þá fyrst til Þingvalla og var 6 stundir á leiðinni. Þangað höfðu komið um kvöldið nokkrir ríðandi menn frá Reykjavík og verið 10 stundir á leiðinni. Frá Þingvöilum gekk jeg austur fyrir vatn, niður Grímsnes og Ölfus og yfir Uellis- heiði og var kominn til Reykjavíkur kl. 8 á mánudagsmorgun, þegar jeg þurfti að fara í búðina. Þessi vega- lengd, sem jeg gekk, er 165 km„ og jeg mun hafa verið 23(4 klukkustund á gangi, en hvíldi mig hinn tímann. Þegar jeg kom að Kömbum hitti jeg þar nokkra ríðandi menn, sem voru á suðurleið. Þótti þeim ferðalag mitt all einkennilegt og vildu endilega gefa mjer ,,hressingu“, er þeir kölluðu svo, en það var koníak. Jeg afþakkaði boðið, en bað þá að skila til Sigurðar á Kolviðarhóli að hafa til heitan sil- ung og egg handa mjer þegar jeg kæmi. Svo skildum við og jeg fór beint upp Kamba. Á heiðinni var þoka, og þá varð jeg þess fyrst var að jeg var orðinn syfjaður og þreytt- ur, því að mjer sýndust vörðurnar í ýmissa kvikinda líki og að þær höll- uðu sjer og veltu vöngum framan í mig. Ferðin gekk þó vel og þegar jcg kom á Hólinn voru hinir ekki komnir. Þeir komu þangað klukkustund á eft- ir mjer, og urðu alveg forviða er þeir sáu mig. Á Hólnum sval jeg í 4 stund- ir, lagði þaðan á stað kl. 4 um nótt- ina og byrjaði mína vinnu í b.'.ðinni kl. 8 eins og vant var. — Einu sinni stofnuðum við fjórir fjelag sem við nefndum ,,Órag“. Hinir stofendurnir voru Hallgrímur Bene- diktsson og þeir bræður Guðmundur Stefánsson og Eggert Stefánsson, söngvari. Gengust fjelagsmenn undir þá skyldu að fara í sjó kl. 3 á hverj- um einasta degi, hvernig sem veður var, og heldum við þeim hætti í 2 ár. Við fengum húsaskjól í Slippnum, þar var hlýtt og notalegt. Svo gengum við niður á milli skipanna, sem þar voru og steyptum okkur í sjóinn, stundum í hríðum og frosti, svo að íshröngl og krap var i sjónum. Þetta gekk allt af vel, nema einu sinni. Við vorum vanir að halda hópinn á sundinu, en allt í einu sjáum við það að kollarnir eru orðnir fimm, og einn langdekstur. Það var selur, sem slegist hafði í hópinn og vildi skoða þessi nýstárlegu lagar- dýr. En við vildum engan kunning- skap hafa við hann og syntum ,,líf- sund“ í land, en hann glápti á eftir okkur og furðaði sig víst mjög á hug- leysi okkar. Tilgangur okkar með þessum suná- íerðum var sá að sýna, að hægt er að synda í köldum sjó, ef menn hafa æfingu, og að sundkunnátta getur allt af komið mönnum að liði, á hvaða tíma árs sem er. Upp úr þessu var svo efnt til ný- árssundsins, sem þreytt var um nokkur ár. Björgun úr sjávarháska Árið 1913 strandaði kolabarkur mjkill sem Chouillou átti. Hann rak á land í Rauðarárvíkinni snemma morg uns. Þá var vitlaust veður, ofsarok og stórsjór. Tveir menn voru um borð í skipinu. Björgunarskipið ,,Geir“ ætl- aði að reyna að bjarga þeim, fór á strandstaðinn og skaut línu til skip- verja hvað eftir annað. En veðurofs- inn fleygði linunni, svo að hún hitti aldrei skipið og gafst ,,Geir“ upp við björgunina. Þá fekk jeg leyfi hjá Ellingsen að sækja bát vestur í Slipp. Nokkrir menn voru sendir eftir honum og drógu þeir hann eftir göt- um bæjarins, sem allar voru svellað- ar. Svo fekk jeg þrjá menn til þess að fara með mjer út á bátnum. — Við vorum allir syndir, og þorðum því að leggja í þetta. Komumst við út að skipinu og gátum bjargað mönnunum. Á leiðinni í land fyllti bátinn undir okkur, en við höfðum landfesti á honum, og svo vorum við dregnir í land. Jeg efast um að aðrir cn syndir menn hefði haft djöríung til þess að fara út, og má því þetta teljast dæmi þess, að hverju gagni sundkunnátta getur verið. Hitt er annað mál, hvort

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.