Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 7
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 163 INDLAND HIÐ NYA A ÞESSARI mynd má sjá hvernig Indland skiptist milli Pakistan og Hindustan. Pakistan er í tvennu lagi og eru 1500 km. á milli landsvæðanna, sem eru austast og vestast í landinu. Pakistan rikið er með dökkum lit, en Hindustan ríkið stryk að. Svo eru þarna nokkur sjálfstæð furstadæmi og eru þau hvít á Iit. Mikil tog- streita hefur þegar orðið um það að fá eitt af þessum furstadæmum, Kashmír (nyrst í Iandinu), til þess að hverfa frá sjálfstæði sínu og sameinast öðru hvoru höfuðríkjanna. þeirra sem hafa unnið að auknir.gu þekkingar hefur haft mikla og illa þýðingu fyrir sögu mannkynsins. Það er óhætt að segja, að hefði sá slóv- leiki verið nokkru minni, þá hefðu ekki heimsstyrjaldirnar tvær gengið yfii, og hin bjartasta framtíð mundi hafa brosað við mannkyni jarðar vorr ax. En í þess stað er það sem nú blasir við, þriðja heimsstyrjöldin, og býsna erfitt að koma auga á nokkrar horfur til að henni verði afstýrt. En ekki virðist mjer unnt að sjá neinar líkur til að risið mundi verða úr rústum eítir styrjöld þar sem drepið hefði verið og rústað með meir en tíföldum árangri við það sem var í styrjöldinni síðustu. Eins og búast má við að gert mundi verða í heimsstyrjöldinni þriðju. II. Ennþá eftirtektarverðari en það, sem Linné segir um stjörnurnar. eru orð hans um líftegundina mann, sem hann kallar fullkomnastan, æðstan og efstan alls hins skapaða. Og þó er hitt sönnu nær, að maðurinn sje ófull- komnasta veran í lífríki jarðar vorrar. Eða vanskapaðasta, eins og öllu rjett- ar væri að orði komist. Aðalatriðið um mannlegt líf, er, að svo komnu það, að maðurinn er svo miklu ófar- sælli en nokkuð annað sem á þessari jörð lifir, að þar kemst eiginlega eng- inn samjöfnuður að. Maðurinn er því rjett nefndur animal infelix: dýrið ófarsæla. Það sem vandræðunum veld- ur er smíð heilans. Heilinn er svo vandgerður, líffæri vitsins. En það sem manninum er fyrir sett er að eflast svo að viti og þekkingu, að hann geti tekið miklu meiri þátt í sköpunarverkinu en hingað til, og haft fullnægjandi stjórn á náttúruöflum síns hnattar. En þegar því marki er náð, eða jafnvel komið á þá leið svo dugi, þá verður maðurinn ekki fram- ar rjettnefndur dýrið ófarsæla Þá mun það koma í ljós, að kvöl og ör- vænting er vissulega ekki tilgangur mannlifsins, þó að svo hefði mátt ætla hingað til. En engum ætti að geta dulist, að nú er svo kpmið, að ekki má tæpara standa, ef þessu marki á að verða náð. Úrslitatíma- mót eru hjer á jörðu nú, slík að aldrei hafa verið önnur eins, og mundi skiln- ingur á þessu aðalatriði í lífssögu jarðar vorrar ekki hafa dregist svona hættulega lengi, ef að þeir sem hafa unnið að því að afla þekkingar á líf- inu hjer á jörðu og sögu þess, hefðu átt nokkru betri ástæðum og meiri samúð að fagna en hingað til heíur verið. Helgi Pjeturss. Margt smátt Þegar jeg var lítill bannaði mamma mjer að þiggja peninga fyrir það að gera einhverjum smágre ða. Jeg fór oft í sendiferðir fyrir Ömmu og hún vildi jafnan gefa mjer nokkra aura fyrir það, en jeg bað hana í ganni að „leggja það inn í reikning minn“. Þegar amma dó fannst hjá henni sparisjóðsbók með mínu nafni. — í bókinni voru nær 5000 krónur og inn- an á spjaldið var skrifað: „Kæri Jón. Þetta hefi jeg lagt inn í reikninginn þinn á 25 árum“. ^ ^ ^ ^ ^

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.