Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Side 10
166 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS eiga því láni að fagna að mega ganga yfir netin. Þær gera sjer máske ó- þarflega margar ferðir, að eins til þess að láta aðra sjá hverra forrjett- inda þær verða aðnjótandi. Það eru margir hellar þarna og sumir frægir fyrir það að í þeim hafa fundist forn goðalíkneski. Við ætluð- um eitt kvöldið að áræða að fara inn í einn hellirinn, en komumst ekki nema rjett inn fyrir munnann, því að þá heyrðum við suð í fjöida af leður- blökum og fram hjá okkur hröktist höggormur inn í myrkrið. Það var nóg; við snerum aftur og látum öðrum það eftir að rannsaka hellana. (Úr bókinni „Let us go to Mexito"). ^ V ^ ^ ^ „ÞÚ GERIR þjer allt of títt um það að kynnast framandi fólki“, sagði kaupmaður nokkur í Cleveland við konu sína. „Jeg vildi að þú legðir niður þann ósið að gefa þig á tal við bláókunnuga menn“. Daginn eftir þurfti konan að fara eitthvað út í borgina og náði í bíl. I bílnum sat annar farþegi, mjög gjörfu legur maður. Frúin minntist orða manns síns og heilsaði honum ekki einu sinni. Og svo urðu þau samferða langa leið, án þess að tala eitt orð saman. Maðurinn átti skemmra að fara en hún, og þegar hann var farinn úr bílnum sagði bílstjórinn: „Þetta er líklega mesti einstæðing- urinn í borginni. Hann er gestur hjer og þekkir ekki neinn mann. Hann kann heldur ekki ensku, og er því allt af í vandræðum, því að hjer kunna svo fáir sænsku, en hann er Svíi“. Þá hjet frúin því að fara aldrei framar að ráðum bónda síns. Hún er setn sje sænsk. (/-Jjö rn Ljnomundóóon: ÖRNEFNI OG ÝMISLEGT UM RAUÐNEFSSTAÐI 1 HAUST er leiu liu'tti hr. Árni Óla, ritstjóri, erindi í útvarpið, þar sem hann gat þess, að Skúli heitinn Guð- mundsson á Keldum, hefði skrifað svo skýrt og merkilega um öll örr.efni á Keldum, að í ”aun og veru gætu Keldurnar ekki farið í eyði þó bygð felli þar niður . Jeg heyrði, því miður, ekki þetta erindi, því Árni óla er sá útvarpsfyrirlesari, sem jeg vil síst missa aí. Samt hef jeg góðar heim- ildir fyrir þessu. Skúli heitinn var flestum öðrum vandvirkari. — Helga heitin, dóttir Skúla, safnaði örnefnum um meginhluta Rangárvallahrepps. Hún sagði, sem satt er, að það er erfitt að skrifa örnefni, svo vel sje, þvi slík skrif þurfa að vera lifandi, ef svo mætti segja og væri því ávallt best, að sá sem skrifar væri vel kunn- ugur landinu og bæri auk þess nokkra hlýju til þess staðar, sem hann skrif- ar um. Helga kom nú að máli við mig og beiddi mig um, að skrifa um örnefnin í Rauðnefsstaðalandi, enda væri mjer það skyldast, sagði hún. Jeg lofaði þessu og nokkru síðar skrífa jeg upp örnefnaskrá, sem mjer þótti sjálfum sæmilega vel gerð og sendi Helgu, en hún var þá barna- kennari vestur í Dalasýslu. Svo sem mánuði síðar fæ jeg þykkt póstbrjef. Jeg þekki strax, að brjefið var frá frændkonu og vinkonu minni Helgu Skúladóttur og mjer til undrunar sendir hún mjer aftur örnefnaskrá þá, er jeg hafði búið til. — Fylgdi og gott brjef, en í þessu brjefi segir hún, að jeg hafi búið til örnefnaskrá eða beinagrind, sem allt vanti utan á, Jeg verði því að gera betur og búa til ,,sál“, eins og hún kemst að orði, í þessi örnefnaskril. Jeg skrifa að nýu og lýsi nú betur en áður hverj- um lið skrárinnar og sendi síðan — Fekk jeg svo enn brjef og segir Helga þá, að nú sje sæmilega gert og þó ekki um oí. Örnefni þessi, ásamt öðrum örnefn- um, sem Helga safnaði í hreppnum, eru nú geymd hjá Vigfúsi Guðmunds- syni frá Keldum og er því ekki á glæ kastað og verður sennilega síðar unn- ið úr þessu og haldið til haga öllu því er nýtilegt kann að reynast í þessu efni. Helga var kona stórgáfuð og svo vandvirk á sumum sviðum, að af bar samanber framan skrifað. Hún mun og hafa verið kennari með afbrigð- um í sumum fögum að minnsta kosti og hvergi lítil. Fráfall hennar í jan- úarmánuði 1947, var því þungt reið- arslag, ekki einasta öllum hennar nánustu heldur og líka vinum hennar og mörgum þeim er kynnst höfðu henni með skilningi á skapgerð henn- ar og framkomu allri. Þetta var nú um örnefnasöfnunina í Rangárvallahreppi og skýringin á því hver það var, sem hófst handa um þetta. Kemur þá að því, sem jeg veit, að gerst hefur í sambandi við Rauðnefs- staði. Heklugosið, sem byrjaði 29. mars 1947 og sem fylgdi all-mikið vikur- og öskuregn á allstóru svæði, fór einna verst með jörðina Rauðnefs-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.