Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Síða 16
172 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS T BIFKEIÐASLYS. — Bifreiðaslysum fer ori ijoiganai njer a íanai og siaia lang- flest af ógætilegum akstri. Mörg bifreiðaslysin kosta mannslíf, og er því ekki að furða þótt rcynt sje að finna einhver ráð tii að fyrirbyggja slíkt í framtíðinni. Fyrir skömmu rákust tvær bifreiðar saman á Bústaðaveginum, sunnan við Reykjavik. Myndin er af öðrum þessum bil og sýnir hvernig hann var útlítandi eftir slysið. Bifreiðarstjórinn beið bana. MAGNÚS í ÖGRI Jónsson, átti Ragnheiði, dóttur Egg- erts Hannessonar. Hann var ágætur höfðingi. Hann reið jafnan svo á Al- þing að fylgd hans var auðkend, þvi að þeir höfðu allir lagvopn, 40 menn eða fleiri, og setti hver vopnin upp fyrst. er hann reið á Þingvöll. Var það svo hvert sumar meðan hann sat uppi, og vildu sem flestir vera í hans för (Arfc). STEINBÍTAHAMAR Á Seiárdalshlíðum hinum nyrðri, gengur klettur einn í sjó fram, sem heitir Steinbítahamar, og er allmikið dýpi við hann. Sagt er að nafn dragi hann af því að þar hafi menn dregið steinbít fram af hamrinum. Eitt sinn lá maður þar við um vortíma og dró mik- ið af steinbít og öðrum fiski. En á hvítasunnudag hvarf hann og var talið að hann hefði fengið flyðru á færið og hún kippt honum fram af hamrinum. HRAFNAÞINC- Það er víst sumstaðar almenn mein- ing manna, að hrafnar haidi þing á haustin og skipti sjer til vetursetu niður á bæina, pari sig og rífi í sundur staka hrafninn, ef hann verður nokk- ur. Á Hörðuvöllum í Fljótum sá jeg í ungdæmi mínu tvívegis, eitthvert haustið, 60—30 hrafna saman komna, sem að litlum tíma liðnum flugu allir burt í ýmsar áttir, 2 og 2 eða 4 og 4 saman, en í engum hóp sá jeg fleiri en 4. Hvort r.okkur hrafninn varð stakur, man jeg nú ekki með vissu, enda þó mig minni, að í annað skiptið væri stakur hrafn, sem nokkrir hrafnar sóttu að, en forðaði sjer það er jeg til sá. (Sjera Jón Norðmann). JÓN BISKUP VÍDALÍN átti Sigríði dóttur Bauka-Jóns Hóla- biskups. — Hún var svinn mjög og þótti ekki bæta um fyrir manni sínum. Einu sinni rak hval á reka biskups og var mjög hart i ari, en samt seldi bisk- up allan hvalinn dýrum dómum. Mar- grjet, móðir hans, frjetti þetta og þótti ill tíðindi. Hún tók sjer ferð á hendur í Skálholt. Þegar biskup frjetti að hún var komin, gekk hann út að fagna henni, en kerling rak honum þá utan undir og sagði um leið, að hann mætti ekki láta skurðgoðið frá Leirá draga sig til helvítis. Að svo mæltu fór hún leið- ar sinnar, en biskup mælti: „Reið er móðir vor nú“. Skömmu seinna rak aftur hval á reka hans og gaf biskup þann hval allan. STEINBOGINN Á BRÚARÁ Fjöldi manna flosnaði þá upp (árið 1602) og er þess getið að mikil aðsókn varð í Skálholtsstað. Hugði brytinn að henni myndi ljetta, ef brúin sú hin sjálfgerða, eða steinboginn á Brúará, sá er hún hefur nafn af tekið, væri brot inn. Fór hann þá til með vitund eða ráði Helgu Jónsdóttur biskupsfrúar, en án vitundar Odds biskups, og braut brúna með mannafla. Biskupi líkaði illa er hann fekk slíkt að vita, og hvað hvorki sjer nje honum happ mundi af verða. Drukknaði brytinn litlu síð- ar í Brúará; en mönnum þótti bending á hinum yngri börnum biskups, að Eiríkur hafði vitsmunabrest mikinn, en Margrjet var kvenna fríðust öðrumeg- in á andlitinu, svo að kinnin var fagur- rjóð og blómleg, en önnur hvít og visin (Árb. Esp ). EBENEZER HENDERSON enskur prestur, sem var hjer iaust eftir aldamótin 1800, lýsir Reykjavík svo: „Reykjavík er eflaust versti stað- urinn á íslandi, sem menn geta dvalið í að vetrarlagi. Fjelagsbragurinn er hinn auðvirðilegasti, sem hugsast get- ur. Hinir útlendu íbúar sitja vanalega allan daginn auðum höndum, með tó- bakspípur í munninum, en á kvöldin spila þeir og drekka púns“. — Reykja- vík mátti þá kallast dönsk. SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ gisti einu sinni á Hjalla í Ölfusi hjá nafna sínum Sigurði Hinrikssyni. Fekk hann þar góðar viðtökur, en eitthvað bar þeim á milli því að Breiðfjörð kvað þessa vísu um nafna sinn: Ef það væri ekki synd að jeg likti saman. hefir rjetta marhnútsmynd mannskrattinn í framan.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.