Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1948, Blaðsíða 15
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
203
SVALADRYKKIR
VALDA TANNSKEVIDUM
NÝJASTA uppgötvunin á sviði tann-
lækninga er ap, að tannskemdir stafi
aðallega af ýmsum efnum, sem í munn
inn koma. Menn vita þó ekki enn um
öll þau efni, sem tannskemdum geta
valdið, en þau eru mörg, og stundum
í venjulegum mat.
Rannsóknir á þessu hafa farið fram
í efnarannsóknastofu bandaríska flot-
ans í Bethesda. Tveir vísindamenn,
sem þar vinna, prófessor C. M. McCay
við Cornell háskóla og tannlækninga-
sjerfræðingur flotans, gerðu meðal
annars þá tilraun, að láta tvær manns
tennur niður í glas, sem var fylt með
coladrykk. Tveimur dögum seinna
voru tennurnar orðnar meirar og að
miklu leyti leystar upp
Út af þessu hefur tannlæknir við
Mayo klinikina skýrt svo frá, að 26
ára gömul stúlka, sem hafði drukkið
að minsta kosti eina flösku af cola-
drykk á dag í f jögur ár, hafði svo að
segja mist allar tennur sínar. Þær
höfðu orðið meirar og skörð dottið >
þær, svo að hún átti erfitt um að
tyggja.
Enda þótt þessar tannskemdir verði
raktar til coladrykkja, þá geta aðrir
svaladrykkir, svonefndir gosdrykkir,
haft sömu afleiðingar, sje þeirra neytt
að staðaldri.
Margir, sem gæta vel heilsu sinnar,
drekka ekki annað en gosdrykki og
stæra sig af því. Þeir iiafa ekki vitað
að slíkir drykkir eru hættulegir fyrir
tennurnar. Og ekki eru sumir ávaxta-
drykkir betri.
Tveir vísindamenn hjá Mayo hafa
skýrt frá því i „Joumal of the Ame-
rican Dental Aásociation“ að þeir haíi
skoðað 50 sjúklinga, sem höfðu skémt
tennur sinar með því að drekka lemon-
safa. Flestir höfðu drukkið safann
blandaðan vatni þegar þeir komu á
fætur á morgr.ana og talið það heilsu-
samlegt. Þessi siður er eflaust mjög
útbreiddur, því að þessir 50 sjúklingar
voru frá 22 ríkjum.
Hjá öllum voru hin sömu einkenni.
Sýran í drykknum hafði leyst upp gler
ung tannanna og þær svo molnað nið-
ur. Sjerstaklega voru framtennur illa
farnar hjá þeim, sem lögðu það í vana
sinn að naga lemon-ávöxt.
Sumir höfðu neytt þessara drykkja
að læknisráði, sjerstaklega vegna þess
að mikið er í þeim af C-fjörefni. En
læknarnir segja að hægt sje að afla
líkamanum Cfjörefna á skynsamlegri
hátt, en með því að ónýta í sjer tenn-
urnar á því að drekka lemonsafa.
Þá hefur og komið í ljós að menn
geta eyðilagt í sjer tennurnar með bví
að eta súran brjóstsykur og hósta-
töflur.
Dr. F. H. Mc-Clure í Bethesda gerði
tilraunir með nolckra drykki á rottum.
Hann skifti rottunum í hópa. Einn
hópurinn fekk aðeins vatn að drekka,
annar engiferöl, þriðji coladrykk,
fjórði grape-lög og fimti trönuberja-
lög. Frá þessu hefur hann skýrt í
„Journal of Nutrition“ og segist hafa
alið rotturnar þannig í 80 daga, en
þá slátrað þeim og rannsakað tennur
þeirra og vegið þær. Með öðrum hætti
var ekki hægt að fá öruggan saman-
burð. Tennurnar úr þeim rottum, sem
fengu vatn, vógu að meðaltali 15,3
milligröm, en tennurnar úr þeim, sem
höfðu fengið engiferöl vógu ekki nema
14,2 milligröm. Tennurnar úr þeim,
scm fengu coladrykk voru h'eldur lak-
ari, vógu ekki nema 14,1 milligram.
En þó kastaði tólfunum þegar kom að
þeipi rottum, sem höfðu fengið hinn
heihiæma grape-dryldc. Tennumar úr
þeim vógu aðeins 13,2 milligr. Þó
höfðu þær rottur, er Iifðu á tranberja-
leginum goldið mest afhroð, því aö
tennurnar úr þeim vógu ekki nema
9,7 miiligröm. Sýrurnar í leginum
höfðu tært burt þriðjung af þungá
tannanr.a.
Aliir ávaxtasr.far eru óhollir fyrir
tennumar. En nú er svo að þeir eru
taldir nauðsynlegir við alls konar mat-
reiðslu. Vísindamennirnir tóku sig þá
til, og reyndu að finna eitthvað sem
gæti komíð í stað þeirra og skemdi
ekki tennur. Þeim tókst að hafa upp á
því. Það er rabarbarlögur. Sje honum
blandað saman við ávaxtasafa, er ekki
hætt við tannskemdum. Þetta upp-
götvaðist þegar verið var að gera til-
raunir á rottum. Menn komust að því,
að ef blandað var örlitlu af „oxalate“
í ávaxtadrykki, varð ekki vart við
tannskemdir. Þá var að finna ein-
hverja fæðutegund, sem auðug væri
að „oxalate“, en í rabarbar er einmitt
míkið af því. Og þegar nú rabarbar-
safa var blandað saman við ávaxta-
drykkina, bar ekkert á tannskemdum.
Vel má vera að þessi uppgötvun
verði til þess, að rabarbar komist til
vegs og virðingar og verði mjög eftir-
sótt verslunarvara.
^ ^
ÞAÐ er mælt að bændur í SuÖur-Afr-
íku hafi fundið upp nýa aðferð til
þess að kenna hundum sínum að verja
sauöfje fyrir bitvargi.
Hvolparnir eru teknir ungir og
vandir undir ær. Þegár þeir stálpast
er þeim gefinn matur heima, en þeir
eru annars látnir vera með sauðf jenu
allan sólarhringinn.
Með þessu móti verða kindumar
ekki hræddar við hundana, og þeír
gerast sjálfkjörnir verjendur þeirra.
Þegar hundarnir fara heim til að
heimta mat sinn, elta allar kindurnar,
eins og þeir væri forystusauðir. ^