Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1948, Síða 7
LESBÓK MORGIJNBLADSINS
595
MEÐAL VIÐ
ÞRÍR kanadiskir læknar við Shute
Institut for Clinical and Labora-
tory Medicine, þeir dr Arthur
Vogelsang, dr. Evar Shute og Wil-
frid Shute, hafa fyrir nokkru fund-
ið nýja lækninga aðferð við sykur-
sýki. Er búist við því að þessi lækn-
inga aðferð muni get hjálpað þús-
undum manna og að mikhi leyti út-
rýmt hinni illkynjuðu sykursýki og
þeim kvillum, er sigla í kjölfar
hennar. Reynslan, sem þegar er
fengin, bendir til þess. Af 60 sjúk-
lingum sem þeir hafa haft undir
höndum, hefur 57 batnað mikið.
Aðferðin er sú, að gefa sjúkling-
unum hreint E-vítamín (aipha
tocopherol) ásamt insulin. Hið
ágæta meðal, insulin, læknar ekki
sykursýki. Það heftir aðeins sjálfa
veikina, en fylgikvillarnir, svo sem
hjartaveila, nýrnaveiki og æðakölk-
un, læknast ekki við notkun þess.
Seinustu læknaskýrslur herma að
68% af þeim, sem sykursýki verður
'að aldurtila, látist í raun og veru af
einhverjum þessara fylgikvilla. —
Aðrar rannsóknir hafa sýnt, að af
350 sykursýkis sjúklingum, sem
höfðu fengið insulin reglulega í 20
ár eftir að veikin byrjaði, höfðu
200, eða rúmur helmingur fengið
æðakölkun.
Læknarnir byrjuðu á því að nota
E-vitamín handa hjartveikum
sjúklingum. Sumir þeirra höfðu
sykursýki. Og þá tóku læknarnir
eftir því, að sykursýkin læknaðist
um leið, og þannig fanst þetta með-
al, sem menn gera sjer nú svo
miklar vonir um. Þó hafði annar
læknir orðið á undan þeim í því að
veita því athygli, að E-vitamín væri
gott við sykursýki. Það var ítalski
læknirinn dr. Ugo Butturini. Hann
hafði ritað grein um þetta í ítalskt
læknarit á stríðsárunum. en vegna
þess að Ítalía var einangruð þá.
SYKURSYKI
höfðu aðrir vísindamenn ekki tekið
eftir þessu fyr en eftir að kanad-
isku læknarnir voru byrjaðir á til-
raunum sínum.
Meðalið er tekið inn í 30—75
milligramma töflum með ofurlítilli
sykurhúð utan á. (Hjer er um
hreint E-vitamín -— alpha tocopher
al — að ræða, en ekki blandað
tocopheral sem einnig er selt í lyfja
búðum sem E-vitamín, en er gagns
laust við sykursýki). Enginn niað-
ur skyldi þó taka inn þessar töflur
nema eftir læknisráði og undir
læknis umsjá, því að það getur ver-
ið hættulegt.
Meðal fylgifiska sykursýkinnar
er æðastífla og átumein, sem hætt
er við að kolbrandur hlaupi í. Menn
hafa líka læknast af þessu við notk-
un E-vitamínsins. Þannig er t d.
getið um miðaldra konu, sem hafði
þjáðst af sykursýki í 16 ár og verið
rúmliggjandi seinustu tvö árin. —
Hún hafði fengið beinátu, eina tá
hö'fðu læknar tekið af henni og bein
úr annari, og allur hægri fóturinn
á henni var að spillast og stór sár
höfðu dottið á hann. Þá var það
að dr. Vogelsang kom til skjal-
anna og ljet hana fá E-vitamín, Brá
þá svo við, að eftir rúman hálfan
mánuð var henni að mestu batnað
og komin á fætur. —
Af hverju stafar sykursýki og
hvernig stendur á því að hægt er
að lækna hana með E-vitamín?
í fæðu þeirri, er vjer neytum,
er allmikið af kolvetni (sterkju-
efnum) sem breytast í svkur við
meltinguna og fara út í blóðið. Þar
brenna þessi efni og veita líkam-
anum hita, en berist svo mikið af
þeim út í blóðið að þeim er ekki
öllum brent, breytist afgangurinn
í fitu. Sykursýki stafar af óreglu á
brenslunni, þannig að annaðhvort
brenna sykurefnin ekki nógu fljótt
eða ummyndast ekki í fitu. Skiljast
þau þá frá blóðinu og fara út í
þvagið. Þegar líkaminn getur ekki
lengur hagnýtt sjer sykurinn úr
fæðunni, nema að litlu leyti, fer
að bera á acetone (eða acet-ediks-
sýru) í þvaginu. Jafnframt því
myndast einnig allmikið af amm-
oníaki. Þegar svo er komið, fer alt
lútarefni (natron, kalí og amraon-
íak) að þverra í líkamsvefjunum,
en af því leiðir aftur,- að sýru- \
eitrunar einkenni fara að koma í
ljós.
Þetta stafar af því, að eitthvert
ólag er á briskirtlinum, sem á mik-
inn þátt í efnabreytingu allra kol-
vetna í líkamanum. En auk melt-
ingarsafans, sem myndast í brisinu,
myndast þar einnig örvandi efni
(hormón), sem rennur til blóðsins
líkt og úr öðrum innrensliskirtlum.
Það er þetta bris-hormón, sem
hjálpar líkamanum eða blóðinu til
þess að brenna sykurinn úr fæð-
unni, svo að hann komi líkamanum
að notum. Þetta hormón myndast
í litlum hluta brisins, sem kallaður
er Langerhans-eyar, og er samsafn
af einkennilegum frumu-hópum.
Engir kirtilgangar liggja frá þess-
um „eyum“, heldur fer safi þeirra
til blóðsins. Ef eyarnar eyðileggj-
ast, eða safarenslið stíflast, þá.rfá
menn óðar sykursýki.
Gagnsemi E-vitamíns er nú í því
fólgin, að það örfar starf þessara
eya, og opnar blóðæðar sem þang-
að liggja, ef þær hafa stíflast svo
að þessi hluti brisins getur aftur
farið að starfa reglulega.
Insulin, hið ágæta meðal, er unn-
ið úr Langerhans-eyum hjá ný-
bornum kálfum. Þar af „insulín“-
nafnið. Því er spýtt inn í æðar
manna, sem hafa sykursýki, . og
hjálpar þá blóðinu tiL þess að
brenna sykurefninu. En sjúkling-
urinn þarf að fá það daglega til
þess að halda brunanum við Það
kemur í staðinn fyrir „eya-hor-