Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1949, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1949, Blaðsíða 1
Þar sem sjóbúð Þuríðar formanns stóð á Stokkseyri, hafa menn nú reist aðra sjóbúð með sama lagi og nefnist hún Þuríðarbúð. Þar á að verða sjóminjasafn. Búðin var vígð 26. júní s.?i og flutti Guðni Jónsson skólastjóri eftirfarandi ræðu við það tækiiæri. ÞURÍÐARBÚÐ Á STOKKSEYRI Þuríðarbúð. I. í'RA alda öðli hefur þrotlaus bar átta verið háð á þessari strönd Sjór og land hafa þrevtt fangbrögð sír. án aíiáts. Þungir, langdrægir brim- sjóir löðrunga sker og granda, brotna með hvítum kömbum og sleikja freyðandi tungum hvern krók og hvern kima meðfram ströndinni, eins og þeir vildu seðja cilíft hungur. En viðnám lai.dsins er hart. Það hefur endur fvrir löngu sent öflugan forvörð fram á fimmtugt djúp, hraunstrauminn mikla, sem nú myndar skerjagarð- inn fyrir ströndinni til þcss að lama hina þungu úthafssjói, áður en þeir i>á landi. Því segir i viðlaginu: Þó brimið sje óðlátt, það brýtur ekki lönd, en brotnar hjer á neðansjávar- skerjum. I þessari endalausu baráttu nátt- úruaflanna hefur fólkið á strönd- inni tekið sinn óslitna þátt. Eng- inn hefur komist hjá að leggja fram lið sitt og krafta. Þessi bar- átta fólksins hefur annars vegar komið fram í vörn og ræktun lands- ins, en hins vegar í sókn á hendur Ægi, hinum mislynda herra hafsins. Fólkið lærði snemma að þekkja duttlunga hans, lærði snemma að sigla fleyjum sínum milli skers og báru og láta krók korm móti bragði Allir vissu, hve mikið var í húfi, hvernig sóknin tækist, — það var oft um líf og dauða að tefla. En þrátt fyrir það hjeldu kynslóðirnar áfram öld af öld að tefla á hættuna og sóttu ótrauðar björg sína a tmð- in, „upp þó skvettist ýsu frón“, eins og í formannsvísu einni segir. Þessi líísbarátta ól upp hrausta menn og harðgerðar konur. Margoft mundu þær hafa mátt taka undir með Ólöfu ríku: „Eigi skal gráta Björn bónda.“ í verstöðunum sunnlensku hentaði körlum eigi deigt brjóst konum eigi vol eða víl. En undir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.