Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
35
Gísla treysti jeg mjer ekki að
rengja, því hann er margfróður og
sjerstaklega minnugur á allt það,
sem að þessu efni lýtur. Gísli seg-
ir: Það, sem menn vita næst um
ferðir manna í Hagafell er þoð, að
fyrir 80—90 árum, fór þangað fyr-
ir forvitnissakir ungur röskleika-
maður, Þorsteinn Þorsteinsson frá
Úthlíð, bróðir sjera Árna síðast
prests á Kálfatjörn, voru þeir bræð
ur ættaðir frá Úthlíð. í þessari ferð
fann Þorsteinn einn veturgamlan
hrút, höfuðsóttarveikan (vanki).
Talið var víst að kind þessi hefði
þangað ranglað sökum höfuðsótt-
arinnar, því alkunna er það að
kindur með þá veiki eigra með ám
og vötnum og komast þá stundum
á ólíklegustu staði. Svo líða 30—40
ár, sem enginn veit til að farið
væri á fellið. Næst fer þangað Þor-
steinn Vígfússon frá Helludal, og
fann þar tvo lambgeldinga frá
Hrosshaga, svartan og mórauðan.
Frá því var farið að fara í fellið
við og við, — en þó liðu ár svo að
ekki var farið, og þar sem vatnið
lá stöðugt upp að jöklinum, trúðu
menn því, að fje færi ekki út á
hann til þess að komast á fellið. S''ð
ustu 20 árin, eða sem næst því,
hefir verið farið árlega þangað, og
er það hluti af fjallskilum þeirra,
sem þangað fara. Þeir, sem leita
fellið eru ekki bundnir við almenn-
ar göngur nje lögrjettir, enda illt
að sameina það, sökum þess hve
oft hefir verið erfitt að komast í
fellið, og ekki síður vegna hins, hve
það tekur venjulega langan tíma
að ná þeim kindum, sem þar eru
úr fellinu, og gæti því leit í heild.
tafist um of, af þeim sökum. Mjög
er það áberandi, hve kindur, sem
ganga í Hagafelli yfir sumarið, eru
styggar og erfiðar viðureignar. Þær
mega helst ekki menn sjá, fyrr en
þeir hafa umkringt þær svo, að
helst sje ekki undankomu auðið.
Fyrir kemur það, að menn verði
að fara 2—4 ferðir í fellið á hausti,
svo illar viðureignar eru á stund-
um þessar sárfáu kindur, sem
halda sig á þessum einstæða af-
rjetti. Þegar dönsku landmælinga-
mennirnir voru þar 1905—’07 fund-
ust beinagrindur nokkurra kinda,
sem úti höfðu orðið þar.
Flest mun hafa komið úr fell-
inu á einu hausti nær 20 kindur.
Engin sjást þar merki eftir menn.
utan ein lítil varða, sýnilega forn,
og er hún á litlum hól framarlega á
fellinu, og getur hún vel hafa verið
byggð, meðan jökullinn lá lengra
fram á fellið. Nú mun vera um
einnar stundar gangur inn fellið,
þar til á jökul kemur.
Þannig sagðist Gísla frá, og sann-
ar þessi fróðlega frásögn, sem jeg
tel að nefna mætti „landnám í
Hagafelli", enn einu sinni, hve
greindir og fróðir alþýðumenn
geta lengi lúrt á óskráðum sögum
úr lífi og starfi íslenskrar alþýðu.
Engin fann jeg ellimörk á frá-
sögn þessari þrátt fyrir það, þótt
sögumaðurinn sje kominn á átt-
ræðisaldur, svo ljett sagði hann
frá og hiklaust. Þó hygg jeg þessi
ljettleiki í frásögninni stafi ekki
frá því, að þessi saga hafi svo oft
verið áður sögð, og dreg jeg það af
því, að við Gísli erum búnir að
þekkjast allvel nær tuttugu árurn,
og stundum verið samvistum um
lengri tíma, þó hefir hann ekki
fyrr sagt mjer þessa sögu, og var
það tilviljun ein, að hana bar á
góma í haust. Eftir að það varð
að fastri venju, að senda menn til
leita hvert haust í Hagafell, varð
það að samkomulagi milh Tungna-
manna og Laugdæla, að senda
þangað sitt árið hvor, þar eð talið
er að fellið sje í mörkum tjeðra
hreppa. Flestar kindur sem úr fell-
inu koma, eru úr Biskupstungum,
þó ber til, að kindur eru
þar úr Laugardal. Venjulega fara
þangað, þ. e. í fellið, þrír menn
til leita og hafa þeir um það nokk-
urt sjálfdæmi hvenær farið er, en
venjulega mun það vera snemma í
október, og þá eftir tíð og tungli í
Helgafell fara tæplega nema fráir
menn og reyndir smalar.
Að lokum vil jeg geta þess, að
jeg hef nokkuð leitað, bæði í forn-
sögum okkar, svo og ýmsum ferða-
bókum, eftir nöfnunum, Hagafell
og Hagavatn. íslendingasögurnar
geta hvergi um þéssi nöfn. í ferða-
bókum Sveins Pálssonar og Eggerts
Ólafssonar, er aðeins minst á Haga-
vatn, en Hagafells hvergi getið, svo
að jeg gæti fundið. 1 ferðabók Þ.
Thoroddsen I., bls. 197, segir: .,Upp
af Hagavatni gengur langpr og
breiður hamrarani (Hagafell) snjó-
laus langt upp í jökul, íiafa skrið-
jöklarnir klofist um þetta fell.“ í
umgetnum bókum hef jeg ekkert
fundið, sem bent gæti á uppruna
þessara nafna, og verða menn víst
að hafa sínar meiningar þar um,
enn um sinn, en gaman væri ef
einhver gæti komið með líklegri
skýringu á nafni Hagafells, en þær
sem hjer hafa nokkuð verið rædd-
ar, en verði það ekki, verður víst
hver að trúa því, sem honum þyk-
ir trúlegast þar um. Saga sú, sem
að framan er sögð, er meira sögð
hjer til gamans og fróðleiks, heldur
en fullgild sönnun, þótt jeg telji
hana ekki allólíklega.
Drykkjuskapur og sjálfsmorð.
Fyrir hálfri öld var svo talið, að
náið samband væri milli drykkju-
skapar og sjálfsmorða. Þá var í
sjálfu vínlandinu Spáni minni
drykkjuskapur heldur en í nokkru
öðru landi í Evrópu og jafnframt
minst um sjálfsmorð,aðeins 30 af
hverri miljón manna á ári. í þðr-
um löndum voru tölurnar þessar:
Englandi 175, Frakklandi 186,
Svisslandi 239, Danmörk 251 og
Saxlandi 392 af hverri miljón. —