Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Blaðsíða 13
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 41 Á VILLUSTIGUM í BÓK sinni „Úti í heimi“ minn- ist dr. Jón Stefánsson á skólamál- in og er mjög athyglisvert það, sem hann segir um þau. Er von- andi að íslenskir skólamenn taki það til rækilegrar íhugunar. Hann segir: „Á síðasta þriðjungi 19. aldar urðum við sjálfir að bera okkur eftir björginni. Okkur langaði til þess að vita meira og meira. Skól- ar höfðu ekki skemt hjá okkur melt ingarafl heilans. Við Hafnarháskóla vorum við keppinautar Dana, sem höfðu verið í skóla 7, 8 og jafnvel 9 ár, en við bárum ætíð sigur úr býtum. Hvers vegna? Af því að skóhnn hafði skaðskemt þessa Dani, svo að heili þeirra var orð- inn hrærigrautur, þar sem öllu ægði saman. Mjer finst það vera fólskugys að ausa út mörgum milj- ónum króna á ári hverju til þess að skemma hina uppvaxandi kyn- . slóð .. .. Hve lengi ætla íslend- ingar -að líða það, að skólarnir drepi þá námfýsi, sem raunverulega er sterkari hjá íslendingum en öðrum þjóðum? Afturför vofir yfir, ef við lofum skólunum að murka lífið úr hinni gömlu fróðleiksfýst, sem gert hefir garðinn frægan .... (Börn) sitja á skólabekkjum mestallan daginn í sex eða sjö ár. í þau er troðið margskonar fróðleik á hverj- um klukkutíma, fróðleik, sem þau fá ekki melt. Öllum börnum er meðfædd sterk forvitni og fróðleiks fýst. Þau vilja vita hvernig stend- ur á hinu og þessu og eru natin við að komast að því. Þessa fýst, þessa forvitni drepur skólinn oft og tíðum — og altaf, þegar meira er í börnin troðið en þau geta melt. Ofát er altaf óholt. Skólinn veldur andlegu meltingarleysi hjá börn- unum. Undir eins og þau eru slopp- in úr skólanum, flýta þau sjer al- veg ósjálfrátt að gleyma eða varpa fyrir borð öllu, sem í þau hefir verið troðið, en þau gleyma ekki því, sem þau bera sig sjálf eftir og læra á náttúrlegan hátt í for- eldrahúsum“. 2. Enginn efi er á því, að börnum er ofboðið með námi, eins og kenslu er nú háttað hjer í landi. Þetta ættu allir kennarar að vita og það er skylda þeirra að kippa því í lag. Skal því ekki fjölyrt um það. En ummæh dr. Jóns Stefánsson- ar benda til annars, að það sje skólunum að kenna hvað móður- máhnu okkar stórhrakar ár frá ári, mæltu máU, rituðu máli og hugs- un. Því afturför í hugsun er eðli- leg afleiðing af afturför tungunn- ar. — Hnignun tungunnar stafar af óheppilegri kensluaðferð. Það er byrjað á því að troða „gramma- tík“ í börnin, námggrein, sem þeim er ofviða og þau fá þegar skömm á, og þá um leið skömm á ís- lenskunámi. „Þau flýta sjer alveg ósjálfrátt að gleyma því þegar þau losna úr skólanum“. Því fer sem fer. Þessa kenslugrein kalla kennarar málfræði. En það er til önnur og miklu þýðingarmeiri málfræði, en fram hjá henni er gengið. Það er sú málfræði, sem kennir börnun- um að þekkja og skilja merkingu orðasambanda, þekkja hin óendan- legu blæbrigði málsins eftir því hvernig hugsanir eru orðaðar, merkingu orða innbyrðis eftir því hvernig þau standa og hvernig á- hersla legst á þau. Þetta mætti kalla líffræði tung- unnar, ekki síður en málfræði. Hjer er einn vísuhelmingur til dæmis um þetta: „auðurinn vex, en grasið grær í götunni heim að bænum“. „Grammatíkusinn“ brýtur þetta upp og skipar orðunum í flokka, nefnir tíðir þeirra, föll, bendir á nafnhætti sagnanna o. s. frv. Hon- um tekst að gera úr þessu ólífrænt efni, sem börnunum leiðist og láta sem vind um eyrun þjóta. En sá kennari, sem hugsar um líffræði málsins, bendir börnunum á þá duldu og djúpu merkingu, sem í þessum fáu orðum liggur. Hann gerir efnið lifandi, hann opnar fyr- ir börnunum lífheim íslenskrar tungu. 3. Fyrir 50 árum voru engir skól- ar í sveitum Þingeyarsýslu. En þar kunni hver maður að lesa og skrifa. Og þeir kunnu meira. Þeir höfðu náð þeim tökum á málinu að þeir gátu orðað hugsanir sínar ljóst og skipulega. Þeir gerðu það sjer til gamans í fásinninu að skrif- ast á og segja hver öðrum frjett- ir. Það voru merkileg brjef, vegna frásagnarlistar og hreinnar ís- lensku. Jeg fekk einu sinni brjef frá gamalli konu, sem barist hafði við örbirgð alla ævi. Brjefið var skrifað með sótbleki. En málið á því og frásagnarstíllinn var arfur frá Snorra. Alþýðumentun var þar í. besta lagi. Menn voru að læra alla sína ævi og fróðleiksþráin var tak- markalaus. Til voru þeir bændur er af sjálfsdáðum höfðu lært eitt eða tvö erlend mál. Almenningur ritaði fegurra mál og lýtalausara en annars staðar, átti fegurri rithönd. Hver var ástæðan? Þeir, sem skrifuðu best, voru fengnir til þess að gefa börnum forskriftir. Völdu þeir þá vanalega hin fegurstu Ijóð,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.