Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
37
þeir augastað á Valona í Albaníu
Þetta er lítil borg. Þar voru þá
aðeins 8000 íbúar.
Þegar Rússar gerðu sig nú að
húsbændum þarna, sendi borgar-
stjórinn harðorð mótmæli til al-
bönsku stjórnarinnar, og hershöfð-
ingi setuliðsins á staðnum var bál-
reiður út af því að Rússar höfðu
þýska sjerfræðinga með sjer. En
þá hafði Stalin gert Enver Hoxha
að einvaldstjóra í leppríkinu, og
hann svaraði þessum mótmælum
með því, að ef nokkur færi að æmta
eða skræmta út af framferði Rússa,
þá mundi það skoðað sem upp-
reisnartilraun.
Næsta verk Rússa var svo að
senda þangað flokk manna úr leyni
íögreglunni MVD. — Þessir menn
rannsökuðu „hjörtu og nýru“ Val-
onabúa, og þeir sem ekki voru
„hreinir“ voru fluttir eitthvað á
burt, og varð það um helmingur
borgarbúa. Þeim, sem eftir voru,
var harðbannað að yfirgefa stað-
inn, nema með sjerstöku leyfi, en
ckkert slíkt leyfi hefur verið út
gefið. Þegar hjer var komið þótt-
ust Rússar hafa komið ár sinni vel
fyrir borð og nú fóru að drífa þang
að rússnesk skip. Þau voru full-
hlaðin af tötralegu fólki, sem Rúss-
ar höfðu tekið' í Eystrasaltslöndum
og hnept í þrælavinnu. Þessu fólki
var komið fyrir í íangabúðum, sem
voru reistar i skyndi utan við borg-
ina.
Nú var gefin út fyrirskipun um
það, að allir sem vetling gátu vald-
ið og heima áttu í Valona og í 40
kilómetra umhverfi á báðar hend-
ur, skyldu gefa sig fram til „bygg-
ingarvinnu“. Meðal þeirra, sem
smalað var saman á þennan hátt,
voru 12 ára drengir, 13 ára telpur
og' allir rólfærir vistmenn á elli-
heimilinu. Fólk þetta komst fljótt
að raun um að vinnan var afar erf-
ið, vninutimi langur og fæði bæði
ilt og lxtxð. Fjoldi þeirra reyndi þa
Bulqane,
títkuivfseœráé* MÍ»*»**»*<
•/4 (U/ Itýtnpiíiitttétt'i iHnt’j. J
MWi&KUV »■/ ,,*tt ut**'
x. ’tSAMSK iú.-trár **■*» .
' ikQOCO
U>au ..■* Styttuér xutctí -* *e;
Skut&r i
(Vrj|
jtlbmtíen.
Ji tw
Saiznlkt j
1/ . , *v»* AWlAMM'* < •
“7*. v '&TJíÁ, t'
±\ ue\ n i
Ijílíifcw I Itllli i
^ piuMatvmiFi
í trt’Maj'id
Hjer sjest hvernig Júgóslavia klýfur sundur leppríki Russa á Balkan. —
— og reynir enn — að flýja, og
sumum hepnast það, þrátt fyrir hin
ströngustu varðhöld Rússa.
Þýsku sjerfræðingarnir bentu á
það, að virkjagerð sú, sem ítalir
höfðu framkvæmt þarna, væri
mjög bágborin. Tundurskeytastöðv
unum væri illa fyrir komið og fall-
byssurnar væri gamlar og ónýtar.
En hellarnir og göngin á milli
þeirra væri afbragð, og sýndu að
ítalir væri snillingar í öllu því er
lýtur að steinsmíði. Vegna þess
töldu þeir hægt að gera þarna ó-
vinnandi vígi. Nú hafa verið flutt-
ar þangað stórar rússneskar fall-
byssur af nýustu gerð og' nýtísku
rákettubyssur. Þrælarnir eru látn-
ir hlaða öflugar víggirðingar og
göng á milli þeirra.
Jafnhliða þessu vinna Rússar 'að
því að styrkja varnir á landi. Þeir
hafa gert óteljandi fallbyssulireið-
ur í Karaburun fjöllunum strand-
megin, suðaustur af Valona, og
margar stöðvar fyrir rákettubyssur.
í mýraflákanum innar af borginni
hafa þeir steypt palla fyrir fall-
byssur og loftvarnabyssur. Þrjá
flugvelli hafa þeir og gert þar, og
er eldsneyti flugvjelanna geymt i
neðanjarðar byrgjum, likt og þeir
hafa í VladiVostock.
ÞÝÐINGARMEST við þennan
hernaðar undirbúning er þó talið
það, að Rússar eru samtímis að
gera volduga kafbátahöfn í Vallona
flóanum. Inst við flóann ganga
klettar í sjó fram og eru þar marg-
ir hellar stórir. Hinn nafnkunnasti
þeirra er Pasha Liman-hellirinn,
sem er svo rúmgóður að þar mætti
hafa stórt loftskip inni. Nokkuð
fyrir framan þennan helli skerst
þriggja kílómetra langur tangi út í
flóann og er þarna því sjálfgerð
höfn af náttúrunnar hendi. Undir
yfirstjórn þýsku verkfræðingan ia
er nú hellunum þarna breytt í fe! u-
staði fyrir kafbáta. En í gegn um
tangann eða rifið hafa verið
sprengdar rásir svo að kafbátanur
geti siglt þar beint inn.
Það er nú sannfrjett, að í Pasha
Liman-hellinum geyma Rússar
marga kafbáta, flesta af nýtísku
gerð, liina svokölluðu Walther-
kafbáta, samskonar og þá, er Þjóð-
verjar voru að srníða í stríðslok.
Orðromur kom upp um það í stríðs
lok, að eftir fyrirskipan Dömtz