Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Blaðsíða 4
424 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Sæluhús i túninu á Hólmi, bústað Bjarnar Hítdælakappa. Hólmurinn til hægri. E* berginu eru þó ekki hornóttir steinmolar, heldur mest lábarið hnullungagrjót. Að svo stöddu er ekki gott að skera úr hvernig á þessum móbergsfellum stendur.“ Þá ráðgátu leysti dr. Helgi Péturss seinna með uppgötvunum sínum á myndun móbergsins. Mikil hraun eru í dalnum og hafa aðallega komið úr fjöllunum austan megin dalsins. Eru gamlar gosstöðvar í Grafheiði, neðst í Þór- arinsdal, í Rauðukúlu og sennilega er svonefnd Fjártapsgjá í Svörtu- tindum gömul gossprunga. Allt er þetta apalhraun, ógurlega úfið og illt yfirferðar og með gínandi sprungum og djúpum gjótum. Hef eg hvergi séð önnur eins kynstur af kynjamyndum, eins og fram koma í þessu hrauni og fjöllunum þar um kring. Þar má líta ægileg nátttröll kagandi í hlíðum, skrið- dýr og skoffín, hafstramba og hlé- barða, rostunga og refkeilur, fugla og finngalkn, margygi og mam- múta, eðlur og umskiftinga, dreka og dverga, hrímþursa og mennska menn. Stór landspjöll hafa orðið að uppblæstri í miðjum dalnum fyrir neðan og norðan Hróbjörg. Er það léttur og dökkleitur vikur sem fýk- ur og sverfur landið og breytir grónum grundum í svartan sand. En nú er byrjað á að hefta þessi landspjöll með sandgræðslu. Var sandfaxi sáð þar í stóra skák í vor og mátti nú frá veginum sjá þar íðgrænan blett og fagran í svartri auðninni. Vegurinn frá Staðarhrauni að Hítardal er fremur mjór, en sæmi- legúr yíirferðar. Þar eru tveir bæir á milli, Múlasel og Helgastaðir. Hjá Helgastöðum var fyrrum ölkelda, en hún var eyðilögð fyrir löngu af handvömm. Hjá Rauðukúlu á einn- ig að vera ölkelda og er mælt að fyr á öldum hafi verið bragðmikið vatn úr henni. í Konungsskuggsjá er talað um Hítardalsölkeldu og sagt að hún sé bezta ölkeldan á Islandi, vatn hennar sé jafn kraft- mikið og munngát og verði menn ölvaðir af því, ef þeir drekki mikið. Einhver dularmáttur átti að fylgja þessari keldu, því að ekki mátti byggja yfir hana, en væri það gert, þá ílutti hún sig og kom upp aftur utan við húsið. Talið er að lýsing þessi geti ekki átt við ölkeldurnar í Hítardal, heldur muni átt við Rauðamelsölkelduna, sem jafnan hefur verið talin bezta ölkelda á íslandi, en höfundir.um hefur þó verið kunnugt um að til var ölkelda í Hítardal. Við steínum beint á Húsafell, sem nú er alltaf kallað Bæaríell. Tilsýndar hafði það virzt marglitt, en dökknar alltaf er nær kemur og þá ber við loft stróka og strýtur upp úr því, er setja á það afar ein- kennilegan svip. — Undir fellinu stendur bærinn Hítardalur, hvítt steinhús á grænu og sléttu víð- feðma túni. Svörtu og rauðbrúnu litirnir í fellinu, snjóhvítt húsið, sem sólin glampar á og breið græn spildar neðst, fer vel saman undir heiðbláum himni. --- Þórhaddur sonur Steins mjög- siglanda, er nam Skógarströnd, nam allan Hítardal og telja menn að hann hafi byggt þarna undir fellinu. Bersi goðlaus, afi Bjarnar Hítdælakappa, hafði numið Langa- vatnsdal og reist þar bú, en svo Veðurbarðir strókar í Bæarfelli. Hæð- ina má sjá af samanburði við stúlkuna er stendur í skriðunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.