Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS kvæntist hann Þórdísi dóttur Þór- hadds í Hítardal og fekk með henni Hólmslönd og fór þá byggðum þangað, „en átti annað bú í Langa- vatnsdal langa ævi.“ — í Hítardal bjuggu niðjar Þórhadds mann fram af manni og urðu auðsælir. Nafn- kunnastur þeirra er Þorleifur beiskaldi, höíðingi mikill á Sturl- ungaöld. Haustið 1148 kom Magnús biskup Einarsson úr yfirreið um Vest- fjörðu með fjölmenni til Hítardals og tók þar gistingu. Þorleifur tók þeim með hinni mestu rausn. Var þar skáli stór og í honum var öll- um búin veízla og var drukkið fast. En er allir voru ölvaðir orðnir kom upp eldur í skálanum. Þetta var um náttmál. Varð eigi komizt út um dyrnar vegna eldsins. Þá var tekið það ráð að brjóta gat á skálann að baki biskupi, og voru nokkrir menn dregnir þar út með snar- leik. „Vildu menn að biskup hefði þar út farið, en hann sagði að sér hæfði eigi að rýma sitt sæti, því þetta væri guðs vilji.“ Brann hann svo inni og með honum 70—80 manns. (Konungsannáll segir að þeir hafi verið 72, Lögmannsannáll 74, en Hungurvaka segir að þeir hafi verið 82). Er þetta hið stór- kostlegasta slys, sem orðið hefur af eldi hér á landi. Þarna brann inni Tjörvi prestur Böðvarsson, er alltaf hafði þjónað biskupi, og 7 prestar aðrir og allir göfugir. En Þorleifur bjargaðist út úr eldinum og lifði lengi eftir þetta (d. 1200). Fram á þessa öld var vallgróin og forn tópt austan við bæinn í Hítardal og fylgdu henni þau munnmæli, að þar hefði staðið skálinn mikli, sem brann, og hefði aldrei verið byggður upp. Nú eru öll ummerki þessa hoi^in, hefur verið sléttað yfir tóptina. — "5W---- Lítið vinfengi var með þeim Þor- leifi beiskalda og Hvamm-Sturlu, % 425 Kynjamyndir í efstu egrgjum Bæarfells því að Þorleifur veitti Einari Þor- gilssyni að málum. Um óvild þeirra eru tvær skemmtilegar smásögur í Sturlungu. Eitt sinn komu þeir Þorleifur og Einar stefnuför í Hvamm. „Sturla kvað Þorleif hafa jafnan stórræði fyrir henc(j, þótt ekki mætti við það jafnast, er hann brenndi inni Magnús biskup í Hítardal, en var sjálfur dreginn grátandi út úr eld- inum. Þorleifur svarar: Engum munu þau tíðindi verri þykja en mér, en eigi erum við enn þaðan komnir, að það sé víst, að sá hafi betur, er einkis þykir um þau tíð- indi vert.... En þess vilnumst eg, að færri gangi höfuðlausir fyrir mig á dómsdegi, en fyrir þig, er þú hlærð nú að glæpurp þínum.“ Nokkuru síðar gekk landfarsótt. Næturgestur kom í Hvamm og spurði Sturla hann margs og meðal annars hvort hann hefði komið í Iiítardal. Jú, hann hafði þar komið. „Hversu mátti Þorleiíur?“ segir Sturla. „Því var betur að hann mátti vel,“ segir ferðamaður. „Já,“ segir Sturla, „svo má vera, því að allar kvalir munu honum sparaðar til annars heims.“ Gestur þessi fór síðan vestur á fjörðu og kom ekki aftur fyr en um haustið og gisti þá í Hítardal. Þor- leifur spurði hvort hann hefði komið í Hvamm og hvernig Sturlu liði. „Vel mátti hann,“ segir ferða- maður, „er eg fór vestur, en nú lá hann er eg fór vestan og var mjög tekinn.“ „Svo mun vera,“ segir Þorleifur, „hann mun nú hafa illt, en hálfu verra síðar.“ ■ Þess er getið, að ferðamaður þessi hafi verið sumrungur (kaupa- maður) og má af því ráða að hann hafi verið talinn heldur lítilmót- legur. En hann hefur þó haft þá greind og kímnigáfu, er löngum hefur einkennt þá íslendinga er bezt kunna að segja frá smáatvik- um. Og að þessi saga hans hafi þá þegar þótt skemmtileg, sést bezt á því að höfundur Sturlusögu skuli hafa haldið henni til haga. — Þorleifur beiskaldi var. höfðingi mikill, sem áður er sagt. Má meðal annars marka það á því, að hann var einn af þeim höfðingjum, er Páll biskup kvaddi í Skálholt til þess að vera við er bein Þorláks biskups helga voru tekin upp 20. júlí 1198. Þá hefur Þorleifur verið gamall maður og andaðist tveimur árum seinna. Til er þjóðsaga um það hvernig ævi Þorleifs hafi lokið. Segir þar frá því að hann hafi átt svo margar kýr, að enginn ketill fekkst nógu stór til þess að taka alla nýmjólkina úr þeim. Einu sinni kom svo ó- kenndúr maður til Þorleifs með nógu stóran ketil og setti ekki ann-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.