Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 5
- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 385 Bannfæringin — Þar sem Kristur heíir falið kirkju sinni hér á jörð hina réttu himnaríkislykla og gefið henni það vald, að allt sem hún bindur hér á jörð skal á himnum bundið vera, og allt sem hún leysir hér á jörð, skal á himnum leyst verða, og eftir upprísu sína lýst yfir því að þeim, sem kirkjan fyrirgefur syndirnar skuli þeim verða fyrirgefnar, en þeir, sem dærndir eru til syndar- innar skuli og í syndinni vera, þá hefir og einnig hinn heilagi guðs maður, Páll postuli, hvattur þar til af sama guðs anda, strengilega og alvarlega fyrirskipað, að þeir sem syngda opinberlega skuli og opin- berlega straffaðir verða, svo að menn gæti sín og hið illa verði út rekið úr söfnuðunum. Það er • því nauðsynlegt að vér í þessum söfn- uði höldum dyggilega uppi þessum myndugleika kirkjunnar, guði til dýrðar, syndurunum til afturhvarfs og söfnuðinum til góðrar uppbygg- ingar. Og þar sem hér í þessum söfnuði er nú sá mikli og hneikslanlegi syndari, Gísh Ólafsson, sem hefir vanvirt boð kirkjunnar, þá ber oss sem kristnum möimum aö utrýma þessu súrdeigi og hrekja frá oss þennan hneikslanlega syndara, svo að hann skuli eigi lengur með synd sinni hneiksla eða gjörspilia öllum söínuðinum og koma yfir oss guðs réttlátri reiði, sjálfum sér til enn stærri reísingar og fordæmingar. Og þar sem ég efast ekki um að þér öll, sem eruð sannkristnar manneskjur, séuð mér sammála um þetta, eftir því sem segir í guðs orði um slíkan djöfullegan verkn- að og fúlustu andstygð, þá vil ég nú í nSfni herrans Jesú Krists og með hans fulltingi, og í nafni embættis míns og kristilegrar kirkju, kunngera og tilkynna op- inberlega, að Gísli Ólafsson er fyr- ir syndir sínar hérmeð bannfærð- ur og útilokaður frá kristilegum söfnuði og kristilegu sakramenti sem heiðingi, og undir reiði guðs sem hann hefir fellt á sig sjálfur með harðlyndi sínu og betrunar- leysi. Og hér með afhendi ég hann í Satans hendur til líkamlegrar tortímingar, í von um að sál hans megi eftir sanna umvendun verða frjáls og sæl á hinum efsta degi. ESSI bannfærsla var eins dæmi hór í lúterskum sið og hafði því vopni ekki verið beitt hér síð- an í kaþólskum sið. Jón biskup Vídalín vildi ekki beita því. Séra Jón Halldórsson lætur að vísu lýsa til banns yfir Gísla, en það virðist frekar gert til þess að vita hvort hann glúpni ekki, heldur en að því hafi fylgt alvara, því að séra Jón vill að því loknu skjóta mál- inu til veraldlegra yfirvalda. En nú sat á biskupsstóli sá maður, sem ekki hikaði við að beita bannfær- ingunni. Ekki er svo að sjá að Gísla hafi brugðið meira við bannfæringuna heldur en hótanirnar áður. Hann vill ekki beygja sig fvrir kirkju- valdinu. Hafði það enga þýðingu þótt séra Bárður kæmi til hans' hvað eftir annað og reyndi að tala um fyrir honum og hvetja hann til að taka aflausn. Eigi virtist það heldur bera neinn árangur þótt oft væri beðið fyrir honum í Árbæar- kirkju og nágrannakirkjunum. Leið svo og beið fram til 7. maí 1724. Þá kemur Gísli til Árbæar- kirkju og stóð úti fyrir kirkjudyr- um meðan guðsþjónustan fór fram. Ætlaði hann síðan að halda heim- leiðis án þess að tala við nokkurn r#ann, en prestur elti hann og náði tali af honum. Þá sagði Gísli: „Ég þakka þér, prestur minn, fyr- ir prédikunina, en ekki þurftir þú að tala allt, sem þú talaðir, og ekki þakka ég þér fyrir það að þú sagðir mig viltan“. Má af slíku marka að prestur hefir talað til hans af stólnum. En ekki fór þeim fleira milli að því sinni. Það var auðvitað ófært að láta bannfærðan manninn ganga af- skiftalausan, og því var gefin út réttarsteina í Skálholti hinn 6. júní og Gísla steint fyrir allsherjar prestastefnu á Þingvöllum þá um sumarið. Viku seinna reið Þorleif- ur prófastur Arason að Rauðalæk til þess að birta stefnuna og voru í fyigd með honum lögréttumenn- irnir Kort Magnússon í Árbæ og Grímur Jónsson á Brekku. Þeir munu hafa verið svokallaðir „kirkj uverj arar“, því að í Norsku lögum var svo íyrir mælt a,ð velja skyldi „tvo af þeim guðhræddustu, beztu og bezt megandi sóknar- mönnum til kirkjuverjara, sem og skulu vera prestsins meðhjálparar“ og veita aðstoð til þess að halda uppi kirkjuaganum. Þegar þeir komu að Syðra Rauða- læk fannst Gísli hvergi, hvernig sem leitað var. Lásu þeir því stefn- una íyrir bæardyrum. Margrét systir Gísla var heima og sat við vef. Ætluðu þeir að afhenda henni afrit af stefnunni, en hún vildi eigi við taka. Varð það því seinast fangaráð prófasts að leggja afritið á veíinn fyrir í'raman hana, og að því búnu fóru þeir heimleiðis. Málið var tekið fyrir á presta- stefnunni um sumarið (1724) hinn 21. júlí. Gísh kom þar ekki, en eftir ósk amtmanns var Hákon Hannes- son'sýslumaður kallaður fyrir rétt- inn og beðinn að gefa upplýsingar um Gísla. Kvaðst hann fús til þess, þótt ekki væri hann talsmaður Gísla, og benti á að upptakanna að máh þessu væri lengra að leita en í kærunni stæði. Þegar Oddur Ey- ólfsson hafði verið prófastur í Rangárþingi (1692—1702) þá hefði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.