Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 191 þeir næðu sér eftir sjóvolkið og hrakningana. Fimm daga héldu þeir kyrru fyr- ir þarna á bænum, og þegar veðrið tók að skána, komust þeir um borð í togarann til þess að líta þar eftir. Síðan var það afráðið, að átta menn skyldu sendir heim til Eng- lands, en skipstjóri og aðalvél- stjóri skyldi verða eftir hjá skip- inu. Stórkostlegir erfiðleikar urðu á leið hinna átta manna áður en þeir kæmist heim til sín. Fyrst urðu þeir að fara yfir vegleysur og fjöll á íslandi og það verður ekki farið öðru vísi en á hestum. Þetta var um 160 km. vegarlengd, mennirn- ir voru illa út búnir og veður hörð þarna á norðurslóðum. Tveir bænd- ur gerðust leiðsögumenn þeirra og landið var allt snævi þakið og gaddað. Þrjá daga voru þeir á leið- inni til Reykjavíkur og máttu heita uppgefnir er þeir komu þangað. Þarna hittu þeir aftur fyrir góða vini. í höfuðborg íslands var ágæt- lega tekið á móti þeim, þar var þeim komið fyrir í góðum stað og dekrað við þá þangað til þeir fóru heimleiðis. Þeir komu til Leith hinn 14. febrúar og sjö þeirra fóru heim til Grimsby næsta dag. Sá áttundi var danskur og hann kaus heldur að halda áfram heim til ættlands síns. Þegar Grimsby-menn komu heim gátu þeir varla nógsamlega dáðst að því og þakkað hve góðar viðtökur þeir hefði fengið á fslandi, bæði í sveitunum og í Reykjavík. _O------- Þetta er þá greinin úr enska blaðinu og er hún undirskrifuð T. H. S. og er það einhver sem hefir haft fregnir af þeim félögum. Þess má geta að strandmenn- irnir af báðum ensku togurunum, ,,Banffshire“ og „King Edgar“, voru samtímis hér í Reykjavík, og voru allir sendir út með póstskip- Finnbogi J. Arndal: TIL ÍSLANDS Fögur ertu, fóstra mín, fjöllin þín og jökulbungur. Þegar sumarsólin skín saell ég dvel við brjóstin þín, og þitt mjúka mjallar lín mér var kært, er lék eg ungur. Fögur ertu, fóstra mín, fjöllin þín og jökulbungur. Harpa þín í hverjum dal hljómar alla daga og nætur. Ljúft er þinna linda hjal — lifsins mál í fjallasal — þar, sem broshýrt blómaval björtum daggartárum grætur. Harpa þin i hverjum dal hljómar alla daga og nætur. Aldan liður upp að strönd eins og hóglát mey í dansi, strýkur sandinn hlýrri hönd, hvít hún strengir löðurbönd skuggaleg um skerjalönd, skraut það likist brúðarkransi. Aldan líður upp að strönd eins og hóglát mey í dansi, Fögur ertu, fóstra kær, fanna er þú skrýðist klæðum. Iliminbláminn hreinn og skær helgiblæ á landið slær, norðurljósin logaskær loftið hjúpa gullnum slæðum. Fögur ertu, fóstra kær, fanna er þú skrýðist klæðum. Vetur, sumar, vor og haust, vegleg ertu, fjalladrottning. Fegurð þín og tign er traust, tígulegan búning hlauzt, býr þú hljóð við brimsins raust, barna þinna áttu lotning. Vetur, sumar, vor og haust, vegleg ertu, fjalladrottning. Vagga mín þú varst — og gröf veröur þú, er lýkur degi, fögur er það friðargjöf ferðlúnum um reynslu höf, er ég legg frá ystu nöf út á þoku hulda vegi. Vagga mín þú varst — og gröf verður þú, er lýkur degi, f J f I I S f 1 f } =<<P<Q=^ð:=<Ci=<C7=<Q=<CP<Q==<(PCQ=<CP<Q=><CP<Q==<(?^Q=={CP<Q==í(P<^.CP*'Q=<<P<Q=<(r^Q=<(p<Q=»<(/ inu „Laura“, sem fór héðan 10. febrúar. Þá var síminn ekki kom- inn, og fréttist því ekkert til Eng- lands um ströndin fyr en skipverj- ar komu heim — tvær skipshafnir, sem íslendingar höfðu bjargað. Q_^í>®®®<j^>—5 „ANNAÐ KOMIÐ UPP ÚR DÚRNUM“ PRESTUR er að spyrja börn og fræðir þau meðal annars um það, að Skírdag- ur dragi nafn sitt af því, að þá hafi Kristur verið skírður. — Söfnuðinum hafði nú annað verið kennt áður, af fyrirrennara hins unga prests og öðr- um góðum mönnum, og hugsaði fyrst að þetta væri mismæli eða meinloka í presti. En hann helt áfram þessari kenningu við barnaspurningar, hvenær sem svo bar undir. Þá tók sig til einn nefndarmaður í sókninni og fekk færð- an presti heim sanninn í einrúmi, að kenning þessi mundi hæpin. Við næstu barnafræðslu kemur prestur enn með hina sömu spurningu. Barnið svarar sem því hafði verið kennt áður. „Ónei“, segir prestur þá, „það er nú komið annað upp úr dúrnum“. Þetta var síðan oft haft að viðkvæði þar í sókn: „Það er nú komið annað upp úr dúrnum“ (eða „túrnum“, sem sumir segja að prestur hafi orðað það, honum mun hafa verið það orðið ein- hvern veginn tamara en hitt). Hvar gerðist þessi saga og hvenær? í biskupsdæminu íslandi ár 1887, ekki margar þingmannaleiðir frá höfuð- staðnum. (ísafold).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.