Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 193 með árunum og hefur haft mikii áhrif á allt líf mitt. í æsku minni var ekki auðhlaup - ið að því að fá tilsögn í frönsku, þótt hún að nafninu til væri kennd í latínuskólanum. En það er nú önnur saga. ★ Það þurfti hvorki meira né minna til en sjálfa þjóðhátíðina að gjörbreyta Austurvelli. Var ég þá orðin stór stúlka, 8 ára gömul, svo um hana gæti ég skrifað heila bók með mörgum skringisögum, því að þar stóð ég vel að vígi til að fylgjast með og sjá margt og heyra. Faðir minn, Halldór Kr. Friðriksson, var mikið við þá hátíð riðinn, og auk þess var ég tíður gestur í landshöfðingjahúsinu, þar sem þeir gistu Kristján konungur 9. og Valdemar prins.. En hér tala ég einungis um Austurvöll, í sam- bandi við árin 1874 og ’75. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, Láritz Sveinbjörns- son, var jafnframt bæjarfógeti í Reykjavík, en bæjarsjóður átti þá ekkert til, og varð því að treysta því, að bæjarbúar gerðu á eigin kostnað það sem hægt væri til að gjöra bæinn eins þrifalegan og auðið var eftir ástæðum öllum. Samt voru eitthvað lagfærðar götu- rennurnar (rennusteinarnir, sem þá voru kallaðir) í miðbænum, með því að hátíðahöldin áttu að hefjast um nónbil með skrúðgöngu frá Austurvelli upp á Öskjuhlíð. Þá var vellinum sá sómi sýndur að hann var hreinsaður og sléttaður, og frönsku húsin voru tjörguð og settir á þau hvítmálaðír gervi- gluggar, ósköp ljótir. Svo illa vildi til, að aðalhátíðis- daginn, 2. ágúst, var mikið norðan- rok, svo rykið þyrlaðist himinhátt, en fólk lét það ekki á sig fá og þyrptist að hvaðanæva. Sat ég við stofugluggann og skemmti mér prýðilega, þótt ekki fengi ég að fara út. í tilefni af þúsund ára afmælinu gáfu Kaupmannahafnarbúar hið undurfagra eirlíkneski af Bertel Thorvaldsen. Minnist ég þess, að prófessor Martin Hammerich, sem hafði verið lærisveinn föður míns í íslenzku á Hafnarárum hans, skrifaði föður mínum nokkur bréf af þessu tilefni og sendi honum bók þá, sem hann hafði skrifað um Thorvaldsen nokkrum árum áður (Thorvaldsen og hans Kunst — Kjöbenhavn 1870). Þáverandi bæjarstjórn var ekki í nokkrum vafa um, hvar ætti að staðsetja þessa merkilegu afmælis- gjöf. í Ingólfsbæ var ein óbyggð lóð, þótt illa hefði verið með har.a farið — leifar af túni, sem í upp- hafi var ræktað af fyrsta landnáms- manni íslands. Þar átti myndin af fyrsta og mesta listamanni ís- lenzkrar ættar að standa, að minnsta kosti r.æstu þúsund árin. Það var því ekki aðeins óhugnan- legt ræktarleysi, heldur og hinn mesti „vandalismi“ að setja þetta klassiska listaverk í skammarkrók í hljómskálagarðinum við hliðina á afskræmdri mynd af listaskáldinu okkar góða. ★ Ef til vill er ég einasti núlií- andi Reykvíkingur, sem hef haft persónuleg kynni af Jóni Sigurðs- syni, forseta, því eins og alkunna er, var faðir minn einn af hans nánustu vinum. Um þingtímann á sumrin kom hann á hverjum degi heim til okkar, og stundum oftar. Ég man ofurvel eftir honum. Per- sónuleikur hans hlaut að hafa var- anleg áhrif á mann, jafnvel á ungl- inga eins og mig, og ég er þess full- viss, að hefði Jón Sigurðsson verið uppi þegar myndin af Thorvaldsen var rifin burt af Austurvelli, hefði hann fyrstur manna andmælt þeirri smekkleysu. En í sambandi við Jón Sigurðsson og Thorvaldsen, langar mig til að rifja upp, að Jón Sigurðsson kom til Kaupmanna- hafnar sem ungur stúdent áiið 1833, og það er því fullvíst, að hann og allir íslenzkir stúdentar, sem þá voru við Hafnarháskóla og flest- ir hverjir hafa skráð nöfn sín í sögu íslands, hafa eflaust verið við- staddir er Bertel Thorvaldsen var fagnað við heimkomu hans frá Rómaborg, því að sjálfsagt hef-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.