Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.1955, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
371
Forsetahjónin
fyrir framan
Hotel Alexandra
í Molde. í baksýn
hornaflokkur.
Ýmsir sögustaðir aðrir eru hér
um slóðir. Á eynni Fræði, sem fyr
getur, er Rastarkálfur. Þar barðist
Hákon Aðalsteinsfóstri við Gunn-
hildarsonu. Þar fell Gamli konung-
ur og bar fell Egill ullserkur. Há-
kon konungur lét leggia fallna
menn sína í skin og verpa hauga
vfir. „Hávir bautasteinar standa
hjá haugi Egils ullserks“, segir
Snorri. Hann segir einnig að haug-
arnir siáist fyrir sunnan Fræðar-
berg. í Heimskringluútgáfu Forn-
ritafélagsins (1941) segir: „Á Rast-
arkálfi og í fjörunni suðvestan við
Fræðarberg eru haugar og dvsiar,
og á Rastarkálfi hefir verið bauta-
steinn. kenndur við Egil ullserk“.
Á Moldefirði eru margar evar.
Ein beirra heitir Sekkur og fvrir
austan hana er Véey: bar var fyrr-
um kaupangur. Þar á sundinu stóð
sjóorusta 1162 milli Hákonar kon-
ungs herðibreiðs og Erlings skakka,
og féll Hákon þar. Sverrir kon-
ungur bróðir hans, lét flytja lík
hans seinna til Niðaróss og leggja
í vegg Kristskirkjunnar (dóm-
kirkiunnar) fyrir sunnan kórinn.
Þar hvíla bein hans.
MOLDE
Viðtökurnar í MoMe voru hinar
hjartanlegustu. Manngrúi hafði
safnazt saman fyrir utan hótelið
og hornaflokkur lét íslanzka og
norska þjóðsönginn. Staðurinn er
nefndur „Rósaborgin“ vegna þess
að þar er mikið um blómarækt. í
hverju herbergi stóð þá einnig
blómvöndur á borði með áletrun:
„Velkommen til Hotel Alexandra".
Þar lá einnig umslag með mynd-
um frá Molde og upplýsingum um
staðinn og stóð á „Velkommen til
Molde“. Það var frá Turisttrafikk-
foreningen for Molde og Romsdal
— svsturfélagi þess, er við íslenzku
blaðamennirnir höfðum verið gest-
ir hjá í Ósló.
Molde er ekki gamall bær og
hans er ekki getið í sögum. Kaup-
staðurinn þarna í firðinum var í
Véey og það er ekki fyr en eftir
Svartadauða að farið er að tala um
Molde. Hvggja menn helzt að stað-
urinn hafi hafizt með því, að sett
hafi verið sögunarmylna við ána
og timburútflutningur hafizt það-
an. Nú eru þarna rúmlega 7000
íbúar. Þangað er mikill straumur
ferðamanna. Þangað á nú að leiða
rafmagn frá Aura-orkuverinu hjá
Sunnudalsevri.
í stríðinu 1940 mátti Molde heita
höfuðborg landsins nokkra daga.
Þangað flýði konungur og ríkis-
Stiórn og þangað var guTlforði Nor-
egsbanka fluttur. En Þjóðverjar
fengu fljótt pata af þessu og hinn
29. apríl gerðu þýzkar flugvélar
árásir á borgina og létu sprengjum
og eldsnrengium rigna vfir hana.
Flutningabílar, hlaðnir gulli,
þevstu á stað milli brennandi húsa,
konungur og ríkisstiórn heldu á-
fram norður í land og íbúar Molde
flvðu bæinn. Varð bví ekki mikið
manntión. en 200 hús lágu í rúst-
um. Nú hafá ný hús verið reist í
þeirra stað og hefir bærinn því á
sér nýtízku svip.
Bærinn stendur á fögrum stað
sunnan undir skógi vaxinni hlíð,
en fyrir framan er fjörðurinn með
mörgum skógi vöxnum eyum og
hólmum. Sunnan fjarðarins rísa
hin miklu Raumadalsfiöll fann-
hvít eins og „risar á verði við sjón-
deildarhring“, 87 tindar í einr.i
fylkingu og sumir rúmlega 2óóö