Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1955, Side 5
r LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
kvr*0i
Fólkið umhverfis bautasteininn í Hrífudal. Bátarnir og ferjan.
(Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
hinn mjóvi átti heima. Er það enn
mikill bær, og liggur þjóðvegurinn
skammt frá honum. En líkur eru
til, að héraðið hafi allt verið kallað
Gaular, svo sem nú er. Landnáma
getur um Þorbjörn gaulverska og
að hann hafi varðveitt hof á Gaul-
um. Flosi sonur hans nam Rangár-
völlu jna eystri, en Loftur systur-
sonur Flosa nam fyrir vestan
Þjórsá og við hann og menn hans
er kenndur Gaulverjabær. Há-
steinn sonur Atla jarls nam þar
fyrir vestan og bjó á Stokkseyri.
Hafa því Gaulverjar numið land
allt frá Ölfusárósum að Þjórsá og
einnig um Rangárvöllu.
Um þá frændur Flosa og Loft er
merkileg saga í Landnámu. Flosi
hafði orðið að flýa land og átti ekki
afturkvæmt til Noregs, og þess
vegna fór Loftur „utan ið þriðja
hvert sumar fyrir hönd þeirra
beggja Flosa móðurbróður síns að
blóta að hofi því, er Þorbjörn móð-
uriaðir hans hafði varðveitt á
Gaulum“. Þessi saga sýnir hve
sterk hafa verið tengslin við feðra-
landið, er menn fara pílagrímsferð-
ir til þess að færa guðunum fórnir
í hoíi feðra sinna, en láta sér ekki
nægja að færa fórnir í hinum nýu
hoium á íslandi.
Skallagrímur var úr Firðafylki,
en ekki vita menn hvar þeir feðgar
hafa búið. Má þó ætla að ekki hafi
verið langt milli bústaðar þeirra
og bústaðar Ingólfs Arnarsonar.
Sagan segir að þá Skallagrím hafi
fýst að leita íslands vegna þess að
þangað voru áður komnir „vinir
þeirra og kunningjar, Ingólfur
Arnarson og förunautar hans“. —
Hrosskell, sem nam Hvítársíðu, var
einnig úr Firðafylki.
INN AÐ SOGNI
Hjá Kleppsnesi var snúið við, en
um leið kváðu við skothvellir í
hlíðinni. Það var virðingarkveðja
og árnaðarósk til forsetahjón-
anna, eins og í Sunnylvenfirði
áður. Var nú haldið til Dals og
ekið úr Dalsfirði um nýan veg
áleiðis að Sogni. Liggur sú leið