Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Page 11
LESBÓK MORG UNBLAÐSINS
W,
' 4 3ð
Frá fyrsta
vísindalcið-
angri ís-
lendinga
erlendis. Á
efri mynd-
inni er dr.
Finnnr
Guðmunds-
son hjá hús-
inu sem þeir
fengu til af-
nota í Meist
aravík í
Grænlandi.
Á neðri
myndinni
sjást þeir
félagar þrír
að kaffi-
drykkju.
Fimleikastúlkur úr Ármanni komu
heim úr sýningarför um Norðurlönd og
Holland og höfðu getið sér gott orð
(15.)
Hollenzkt landslið í frjálsum íþrótt-
um kom hingað og keppti við landslið
íslendinga. Var það tvísýn keppni, en
lauk svo að Hollendingar sigruðu með
111 stigum gegn 103 (23.)
Golfmeistaramót var háð á Akur-
eyri og unnu Akureyringar sameinað
lið Reykvíkinga og Vestfirðinga. Is-
landsmeistari varð Hermann Ingi-
marsson (23. og 26.)
íslandsmót kvenna í handknattleik
var háð á Akureyri og kepptu aðeins
tvö lið. Flokkur frá KR sigraði (24.)
LANDHELGISBROT
Belgiskur togari, Van Dyck, var
tekinn að veiðum í landhelgi eftir
mikinn eltingaleik. Tvívegis áður
höfðu flugvélar kært hann fyrir land-
helgisbrot (5.)
Brezkur togari, Valafell, var tekinn
að veiðum í landhelgi og sektaður um
74 þús. kr. Var hann nýkominn frá
Englandi og hafði farið rakleitt inn
í landhelgi, því þetta var fyrsta kast
hans (22.)
FRAMKVÆMDER
Fyrir milligöngu Búnaðarfélags ís-
lands réðist 200 manns úr Reykjavík
til landbúnaðarstaría í sumar (3.)
Nýr viti var fullgerður á Höfðamun
hjá Húsavík í Þingeyarsýslu (5.)
Skólabáturinn Þórarinn frá Reykja-
vík var mánuð á veiðum. Á honum
voru 13 drengir og varð hlutur þeirra
1000 kr. og frítt fæði. Skipstjóri sagði
að mörg ágæt sjómannsefni væri með-
al þeirra (10.)
Flakið af enskum togara, sem sökk
fvrir mörgum ái'um út af Laugames-
töngum í Reykjavík. hefir nú verið
sprengt og flutt burtu (12.)
Nýlt hraðfrystihús tók til starfa á
Sauðárkróki (13.)
Nýtt heilsuhæli Náttúrulækningafé-
lagsins tók til starfa í Ilveragerði (27.)
Nýtt gistihús tók til starfa í Borg-
arnesi (28.)
Hafin var lagning háspennulínu frá
orkustöð ísafjarðar tii Súðavíkur (30.)
FLUGMÁL
Flugfélpg íslands hefir fengið um-
boð hér á lahdi fyrir þýzka flugfélagið
Lufthansa (3.)
Minnst var þess, að nú voru liðin
10 ár síðan fvrsta íslenzka farþega-
flugvélin fór milli landa (10.)'
Dómsmálai-áðherra Luxemburg og
flugmálastjórinn þar, komu hingað í
heimsókn í sambandi við að nú eru
komnar beinar loftsiglingar á milli
landanna (12.)
Nýtt flugfélag var stofnað í Reykja-
vík. Heitir það Vængir og hefir eign-
azt tvær flugvélar (15.)
Loftleiðir h.f. hefir keypt nýa Sky-
Ingunn Gisladóttlr
hjúkrunarkona