Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1955, Blaðsíða 12
f 140
r LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
masterflugvél til millilandaferða og
hefir hún hlotið nafnið „Saga“ (19.)
h»
MENN OG MÁLEFNI
Islenzkt „lingvafón“-námskeið er
komið út (1.). Menntamálaráði var
fsert eitt eintak að gjöf (5.) og háskól-
anum annað (10.)
Rússland og Tékkóslóvakía efndu til
vörusýninga í Reykjavík (2.)
Vilhjálmur Finsen sendiherra í Vest-
ur-Þýzkalandi lét af embætti sökum
aldurs (2.)
. Listmálararnir, Bragi Ásgeirsson og
Karl Kvaran, hafa fengið styrk frá
„Berlingske Tidende", 1500 kr. hvor,
til framhaldsnáms í Danmörk (3.)
Kínversk vörusýning var opnuð í
Reykjavík (5.)
Sveinn Sveinsson bóndi á Sveins-
stöðum í Alftaneshreppi á Mýrum,
varð bráðkvaddur er hann var að reka
fé á fjall (5.)
Ólö.f Pálsdóttir myndhöggvari hefir
fengið styrk til námsdvalar í Ítalíu
(6.)
Þjóðminjasafninu barst að gjöf frá
danskri konu skrautofinn altarisdúkur,
er á sínum tíma var í Sandakirkju í
Dýrafirði (7.)
Fimmtán danskir kennarar komu
hingað í kynnisför (7.)
Magnús Þ. Torfason fulltrúi hjá
borgardómara í Reykjavík, var skip-
aður prófessor í lögum við háskólann
(9.)
Ung hjúkrunarkona, Ingunn Gísla-
dóttir, fór héðan til Eþíópíu og verður
við íslenzka kristniboðið í Konso (10.)
Frosti Sigurjónsson cand. med. hlaut
námsstýrk frá háskólanum í Kiel og
verður þar við skurðlækninganám í
vetur (14.)
Brynleifur Tobíasson áfengismála-
ráðunautur og Pétur Sigurðsson rit-
stjóri, sóttu þing Hástúku IOGT, sem
haldið var í Bournmouth í Englandi
(21.)
Tíu menn sóttu um bæarfógeta-
embættið í Kópavogi. Var ákveðið að
veita það Jóni Steingrímssyni, sýslu-
manni í Borgarnesi, en þá afturkallaði
hann umsókn sína (23.)
Tveir norskir prófessorar frá há-
skólanum í Björgvin, komu hingað til
þess að rannsaka innvortis sníkjudýr
í fuglum og fiskum (24.)
Landsbókasafninu bárust að gjöf
900 bindi af rússneskum bókum (27.)
Leiðangur dr. Finns Guðmundsson-
ar kom heim frá Austur-Grænlandi
og hafði orðið vel ágengt (28.)
íslenzkir bókaútgefendur gáfu Nor-
ræna bókasafninu í París 600 bindi af
íslenzkum bókum (28.)
Tveir danskir mælingamenn, sem
heldu til á Eiríksjökli, fengu hið
versta veður vikum saman. Seinast
kól þá báða á fótum og leituðu þeir
þá byggða (28.)
Fjölmennur „ballet“-flokkur frá
konunglega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn, kom hér við á vesturleið og hafði
sýningar (2.)
Edvard Mitens lögfræðingur og
menntamálaráðherra Færeya, kom
hingað til þess að kynna sér útvarps-
mál. Jafnframt flutti hann erindi í út-
varpið. Mitens var fulltrúi Færeya á
Alþingishátíðinni 1930 (8.)
Kveðjusamsæti héldu Dalamenn
Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni og
frú hans í tilefni af því að Þorsteinn
lætur nú af embætti vegna aldurs (22.)
Minnisvarði um Hjálmar Jónsson
skáld í Bólu var reistur og afhjúpaður
við þjóðveginn fyrir neðan Bólu. —
Skagfirðingafélagið á Akureyri gekkst
fyrir þessu (26.)
Gunnar Ólafsson arkitekt hefir ver-
ið ráðinn skipulagsstjóri Reykjavíkur
(29.)
Ný frímerki, 75 au. og 125 au. hafa
verið gefin út og eru á þeim íþrótta-
myndir (29.)
Þrír ítalskir kvikmyndatökumenn
komu hingað til þess að taka fræðslu-
kvikmyndir (29.)
Biskupinn yfir íslandi, herra Ás-
mundur Guðmundsson, vísiteraði
Skagafjarðarprófastdæmi (30.)
MERKISDAGAR OG FUNDIR
Minnst var 40 ára afmælis Hafnar-
fjarðarkirkju og við það tækifæri var
vígt nýtt forláta orgel, sem kirkjan
hefir fengið (2.)
Búnaðarbankinn minntist 25 ára af-
mælis síns. í tilefni af því gaf hann
starfsfólki sínu 200.000 kr. sjóð, sem
verja skal til styrks þeim, er leita
þurfa lækninga erlendis (3.)
Þing UMFÍ var háð á Akureyri.
Séra Eiríkur J. Eiríksson var endur-
kjörinn forseti (5.)
Rauði kross íslands helt aðalfund
sinn á Akureyri. Formaður var end-
urkjörinn Þorsteinn Sch. Thorsteins-
son lyfsali, en formaður framkvæmda-
ráðs var kosinn dr. Gunnlaugur Þórð-
arson (6.)
Minnst var 25 ára afmælis Mjólkur-
bús Flóamanna, sem nú er elzta og
stærsta mjólkurbú landsins (23.)
ÝMISLEGT
Verðlaunum, 10.000 kr., hefir verið
heitið fyrir bezta leikþátt til sýning-
ar á Skálholtshátíðinni næsta ár (12.)
Verkfall gerðu vélstjórar við frysti-
húsin í Vestmanneyum, en það stóð
ekki nema nokkra daga (13. og 17.)
Úr danska sáttmálasjóðnum hefir
verið úthlutað styrkjum til 24 manna,
alls kr. 20.000 (20.)
Skipverji á mb. Síldinni, sem var að
því komin að sökkva hjá Gróttu fyrir
nokkru, hefir nú játað að hafa opnað
botnventla bátsins í því skyni að
sökkva honum (21.)
Mikil laxveiði, hefir verið sunnan
lands í sumar, .en ekki nema í meðal-
lagi nyrðra (23.)
Vatnavextir voru með meira móti
í olfum ám landsins seinni hluta mán-
aðarips. Á Suðurlandi og Vesturlandi