Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Page 1
11. tbl. Sunnudagur 18. marz 1956 XXXI. árg. Oddný móðir Skúla fógeta missti tvo menn sina með sviplegum hætti og voru báðir að sækja rekavið QDDNÝ JÓNSDÓTTIR frá Keldu- nesi, móðir Skúla landfógeta, var tvígift og fórust báðir menn hennar voveiflega. Fyrri maður hennar var Magnús sonur séra Ein- ars Skúlasonar í Garði. Magnús var prestur í Húsavík. Um andlát hans segir svo í Árbókum Espólíns við árið 1728: „Á þorra sótti Magn- ús pestur í Húsavík Einarsson Skúlasonar, rekavið á báti, hann stjakaði með ár, og brotnaði árin, en hann hraut útbyrðis og drukkn- aði, en aðra sakaði ekki, var hann þó gildlegur maður að öllu, og sökk þar með aldrei í vatni, varð hann harmdauði frændum sínum.“ Seinni maður Oddnýar var Þor- leifur prófastur Skaftason í Múla. Frá afdrifum hans segir í Árbók- unum við árið 1747: „Það bar til, að Þorleifur prófastur Skaftason hafði riðið nokkuð, og af sér fylgd- armanninn; hann reið góðum hesti, og var stundum vanur að setja hann á lítt fært; sagði hann svo, er hann hafði riðið veikan ís, og er að því var talið, að vötn eða ár mundu ekki verða sér að bana, en heldur veita nokkur lítil; hann fannst í blevtukíl einum og var þar örendur, en hesturinn stóð á bakk- anum; hann hafði verið einna mest virður af prestum norðanlands, en til þess hafði hann talsgáfu, og söng og aðrar gáfur, álit og stórmennsku og oft hafði hann þjónað að presta- vígslum, auk þess er hann var stift- prófastur.“ Séra Jón Ingjaldsson í Húsavík ritaði leiðréttingar við Árbækur Espólíns um andlát ýmissa manna, þar á meðal manna Oddnýar. Séra Jón var fæddur í Þerney, en fór 11 ára gamall til móðurbróður síns, séra Arnórs Jónssonar og ólst upp hjá honum á Hesti og í Vatns- firði. Húsavíkurprestakall fekk hann 1848, eða réttum hundrað ár- um eftir lát Þorleifs prófasts. Hefur hann því fengið upplýsingar sínar eftir að hann kom norður og má telja víst að frásagnimar um in sorglegu afdrif þessara merkis- presta, hafi gengið þar mann fram af manni lítt brjálaðar. Slysin höfðu bæði skeð í námunda við Húsavík og hafa mönnum orðið minnisstæð og margt um þau rætt. Þessar frásagnir séra Jóns eru því svo merkilegar, að rétt þykir að þær komi almenningi fyrir sjónir. Drukknan Magnúsar prests Einarssonar Síðla vetrar 1728 sótti Magnús prestur morvið inn á sjávarsand og var hann við 4. eða 5. mann. En er þeir voru langt á leið komnir aftur heimleiðis í logni veðurs, sat prest- ur aftur á morviðarbunkanum, lík- lega við stýri, en hinir reru út með Kaldbaksskerjum (sem liggja í leiðinni) hvar oft er brimsúgur við. Lítur þá einn maðurinn upp (það var Skúli, 18 ára, sonur prests) og segir: „Hvar er hann faðir minn?" Líta hinir þá upp og sáu ei prest, en er þeir hugðu gjör að, sáu þeir hann fljóta skammt aftur af bátn- um, og var hann örendur, er þeir náðu honum (og mun af þessu, að hann flaut fyrir aftan bátinn, sprottin sú saga, að hann sykki aldrei í vatni, eins og Árbókin segir). En er þeir höfðu lent og borið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.