Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Blaðsíða 2
I 166 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS cjCjóJh&fiíýéu incpar INNST INNI (MARGIT EKEGARDH) Min kennd, þú ert ekki af okkar heimi, þú ert árroði, kvöldstjörnnblik. Að faðma þig væru eiðrof ein og aldinna loforða svik. Ég ann þér og vildi þig vefja örmum, ég veit, þú ert holundum særð, en vil ei að ögri þér umkomulausri þau orð, sem þú skilið ei færð. »&• r£ I $ J J I | í ÖÐRUM GEFIN (GIRI GRÖNLUXD) (Lag eftir Ilmari 'Hannikainen). I huga minum tregaraddir ákaft á þig kálla, er einn í þrá og söknuði ég horfi iipj> til fjalla. en bak við þau ég veit að nú þú brúðarkjdiiiin saumar. og bjartar myúdir skiðaclds á héndur þinar falla. Ö, fagra, liðna stund, að mega dýrka þig og dá þig, en — drottning minna björtu vona — annar sveínn mun fá þig, þinn heita munn, þitt lokkásafn og aögun yndisbláu. og aldrei fá þær raddlr svar, er stöðugt hröpa á þig EINAR M JÓNSSON þýddi —V; upp lík prestsins, toku þeir að ræða um sín á meðal hve þeir skyldu að fara, eða hvern þeir mundu fá til að segja Oddnýu, prestsekkjunni, þessa sviplegu harmsögu, og varð engi þess skjótt búinn. Er þá sagt að svo bæri til, að Þorleifur prófastur Skaftason í Múla væri þá staddur í Húsavíkur verslunarstað, en hann liggur suð- vestan til og sjávar megin neðan- vert við Húsavíkurstað og túnið. Tóku þeir þá það ráð, að hitta Þor- leif prófast og inna honum allt svo sem til hafði borið og báðu að hann vildi verða til að segja Oddnýu tíðindin, og er mælt að hann væri til þess fús. En aðrir segja að hann væri orðinn nokkuð vínkenndur — sem ei er ótrúlegt — og byðist til að segja sorgarsöguna. Og svo fór að hann varð fyrstur til að segja henni. En er hún tók að gráta og berast lítt af, þá er mælt hann segði: „Vertu ekki að skæla þig og skíta á þig af því arna, Oddný' Ég skal eiga þig. Ég skal eiga þig aftur. eða er ég ekki fullgóður fyrir þig?“ En þá hafði Þorleifur prófastur skömmu áður misst Ingibjargar konu sinnar, er var bróðurdóttir Einars biskups. Og varð þetta orð að sönnu, að Oddný gekk með Þor- leifi prófasti, og hafði það í skilorði að hann kenndi sonum hennar, sem hann og gerði. L'm dauða Þorleifs prófasts fer ýmsum sögum, í 18. aídar Eftirmælum er sagt: „hann fell ’of- an um veikan ís á íæk og drukkn- aði 1748“, og ekki meir um það sagt. En í Árbókum segir frá dauða hans 1747 svo nær eins og í íslands sögu- ágripi mínu. En síðan eg þetta reit, hef eg fengið enn greinilegri skýr- ingu um afgang hans, beint svo sem hér eftirfylgir Sumarið 1747, um messnaleysið, réið Þorleifur prófastur að heiman frá Múla, ófan að Sílalæk, sem er sjóarjörð við botn Skjálfandaflóa og er kirkjujörð frá Grenjaðarstað, en Múlastaður á þar þó gilt reka- ítak, er nefnist Múlareki. Með hon- um Var einn húskarl hans, og hafði í för 2 eða 3 reiðingshesta lausa, ér hahn átti að taka trjávið up'p á af rekanuto. Greiddist þeim vel ferðin ofan að Sílalæk óg hafði prófastur þar aligóðar viðtökur, sem lfklegt mundi. Síðan fór hann með húskarlin- ítm ofan að sjónum, sem er þó æði langt frá bænum, og sá yfir rekann og sagði fyrir hvað heim skyldi flytja.-Ei er þess getið hvort'hann leggði hönd að að hjálpa manni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.