Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.1956, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
393
mennirnir ganga enn í eldrauðum
treyum, eins og fyrrum, og skera
sig úr hvar sem þeir fara í marg-
menninu á strætunum. .
Torgsölur hafa um aldir sett svip
í lífið í Höfn, og enn eru þær við
líði. Úti í Skovshoved, sem er á
milli Charlottenlund og Klampen-
borgar, hafa fiskimenn búið um
langan aldur, en konur þeirra fóru
með fiskinn inn í borgina og seldu
hann þar. Að vísu hefir útgerð
þessi dregist saman ög er hlutfalls-
lega miklu minni nú en áður var.
En fiskimennirnir hafa enn bæki-
stöð sína í Skovshoved og konur
þeirra koma á hverjum morgni inn
til borgarinnar að selja fiskinn á
torgi. Þær eru svipur af inni gömlu
Kaupmannahöfn.
Uppi undir Vötnunum svoköll-
uðu, rétt austan við Örstedparken,
er Grænmetistorgið og hefir lengi
verið. Þangað komu bændur áðúr
með grænme+i og ávexti í hest-
vögnum, eldsnemma á hverjum
morgni, og seldu ódýrt. En sam-
keppnin var mikil. Þar orgaði hver
í kapp við annan til þess að bjóða
vörur sínar. Torgið var fullt af
kössum og borðum, vögnum og
hestum og æpandi sölufólki, en
kaupendur tróðust þar á milli, þótt
varla yrði þverfótað. Þótti það
ævintýri líkast að koma á græn-
metistorgið þegar allt var þar í al-
gleymingi. Torgið er til enn, en er
fyrir löngu orðið altof lítið. Þess
vegna hefir það verið stækkað
mjög og bætt við það löngu svæði
milli Örstedparksins og Nörrevold-
gade. Og samt er of þröngt um það,
og þarna er það fyrir, svo að nú á
brátt að flytja það til Valby, og
hefir borgarstjórnin tekið þar frá
stórt land handa því.
Nú flytja bændur ekki lengur af-
urðir sínar á hestvögnum til torgs-
ins, allir eru með bíla. En þó hefir
torgið enn nokkuð af sínum gamla
svip. Þar eru sömu þrengslin og
áður, sömu ópin og köllin. Menn
koma þangað kl. 6 á morgnana og
mega selja til kl. 9, en verða þá að
fara. Þá er markaðnum lokið, en
ýmsir grænmetissalar hafa keypt
birgðir og eru að selja þær með
hærra verði á torginu allan daginn.
Þá eru hrópin minni, en þeir hafa
hjá sér spjöld með verði varanna
og leitast við að teygja kaupendur
að sér með þeim. Og þá kemur sam-
keppni í auglýsingum, eins og t. d.
þetta: Einn hafði hjá sér stórt
spjald og á því stóð með stórum
stöfum: „lbí kg. kartöflur fyrir 85
aura“. Skammt þar frá var annar
og hafði skráð á sitt spjald; „3 hálf-
kg. kartöflur fyrir 85 aura“ og var
staíurinn 3 geisistór. Þessi hefir
verið mannþekkjari og vitað að
fólk hélt að 3 hálfkg. væri betri en
IV2 kg.! Mest af því grænmeti sem
nú var selt, var úr gróðurhúsum.
Er orðið mikið um þau í Höfn víða,
og fjöldi gróðurhúsa er það fyrsta
sem maður sér þegar ekið er fra
flugvellinum til borgarinnar.
Við fórum eitt sinn snemma
morguns til torgsins, í þann mund
er þar var mest um að vera. Þar
rakst maður á mann milli bíla,
kassa og borða, og köll sölumanna
og kvenna gengu óspart. Þar rakst
eitt okkar á háan og þrekinn sölu-
mann og átti af tilviljun einhver
orðaskipti við hann. Heyrði sá
danski að hér var útlendingur og
spurði hvaðan hann væri. Og er
hann vissi að hér var íslendingur
kominn, bað hann fyrir kveðju til
bróðurs síns Michael Hassing
bónda í Berufirði í Reykhólasveit!