Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1960, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
41
Lega Björgvinjarbrautarinnar í nágrenni Björgvinjar og hin fyrirhuguðu jarðgöng gegnum fjallið Ulriken, og gegnum
Arnanípa. Göngin stytta leiðina um 21 km. Við Arnavog, og í dalnum þar suður af, á að rísa upp ný borg, allt að
40 þús. manna byggð ,ef allt fer eftir áætlunum.
an í hánorður unz komið er að
Sörfjorden, sem er grein af fjörð-
um þeim sem kvíslast margvíslega
frá Sognsæ. Svo liggur brautin í
ótal smákrókum inn með firði
þessum áleiðis til Voss. Myndin
sýnir einnig hvað nú er fyrirhug-
að til þess að stytta brautina. Far-
ið verður frá Björgvin gegnum
fjallið Ulriken til Arna við Ama-
vog, sem er vogur við Sörfjorden.
Þaðan er svo farið aftur þveraust-
ur gegnum fjallið Amanípa til
Tunestveit við Sörfjorden, svo sem
sjá má á myndinni.
Miklar jarðfræðilegar rannsókn-
ir varð að gera áður en hægt var
að ákveða legu á göngum og braut
gegnum fjallið. Loks var valin leið-
in sem merkt er IV á myndinni.
Mestum vanda veldur að þarna
gengur daldrag inn í fjallið, upp
frá Björgvin, og þar eru smávötn
og tjarnir sem em aðalvatnsból
Björgvinjarborgar. Ekki má grafa
göngin þannig að leki komi að
vötnunum. Þó að Björgvin sé fræg
borg fyrir úrfelli og steypiregn, er
því samt þannig farið. að þar er
oft skortur á neyzluvatni og er
vatnsskorturinn eitt mesta vanda-
mál borgarbúa.
Hér er fleira stórt í efni en göng-
in gegnum Ulriken. Björgvinjarbú-
um þykir þröngt um sig undir
Flöyfjellet. Þröngt um sig við höfn
og haf, en á haf út stefnir hugur
þeirra löngum. Raunar eru út-
þenslu-möguleikar nægir suður
dalinn allt til Nestún og segja má
að þar byggist nú óðum allt með
borgarblæ. En þar eru ekki
bryggjustæði og skipalegur á
þurru landi. Því er til þess hugsa'5
1 Rieberplaninu um göngin gegn-
um Ulriken yfir að Arnavogi, að
þar við voginn rísi upp um 40 þús-
unda borg, eins konar útborg eða
bræðraborg Björgvinjar. Þar eru
næg hafnarskilyrði og byggðar.
Ætlunin er að grafa síðar bílgöng