Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
75
flugi fremur en fuglarnir. Fenginn
var maður, sem þekkir eyðimörk-
ina allra manna bezt. Það er Júgó-
slavi, lágur og dökkur yfirlitum.
Hann heitir Alexander Karadzic,
en er 'alltaf kallaður Kara. (Það
mundi þýða Svartur á íslenzku).
Hann var fyrirliði og leiðsögumað-
ur í flughernum á stríðsárunum,
en síðan hefir hann stjórnað flokki
manna, sem vinnur að því að grafa
jarðsprengjur upp úr eyðimörk-
inni þar sem barizt var áður.
Kara vildi fá flutningabíla með
stórum hjólum til leitarinnar. En
hvar átti að fá eldsneyti? Hann
var ekki í vandræðum með það,
hann vissi að árið 1941 höfðu ítalir
skilið eftir benzínbirgðir 300 km.
úti í eyðimörkinni. Og þar voru
þær enn.
Fyrsta merkið eftir flugmenn-
ina fannst 12—15 km. norðan við
flugvélarflakið. Það voru þrír
skór, og þeim var raðað þannig,
að þeir mynduðu ör, sem benti til
norðurs.
Nokkru norðar komu menn á
slóðir eftir 5 bíla. Kara gizkaði
þegar á hvernig á þeim stæði. Hinn
18. febrúar 1941 höfðu frjálsir
Frakkar, undir forustu Leclerc
hershöfðingja, ráðist á ítalska víg-
ið í Kufra. Fáeinir ítalir komust
undan í 5 bílum. Þessar slóðir voru
eftir þá. Bílarnir höfðu markað för
í mölina og smám saman hafði
fínn sandur fyllt förin. Og þarna
sáust enn samhliða rákir eftir 18
ár. Þær hafa þó sjálfsagt verið enn
gleggri árið 1943. Og hvað hafa svo
flugmennirnir haldið, er þeir rák-
ust á þessar bílaslóðir? Auðvitað
hafa þeir haldið að þær mundu
liggja til mannabyggða og óhætt
væri að fylgja þeim. Það var að
vísu rétt, að slóðirnar lágu til
mannabyggða, en hvernig áttu
flugmennirnir að vita að rúmlega
600 km. voru þangað.
Slóðin var nú rakin, og daginn
eftir fannst annað merki. Það var
gert úr fallhlífardúki og steinar
lagðir ofan á. Þetta var líka ör og
benti til norðurs.
Nokkru seinna fundu leitar-
menn sex björgunarvesti. Á einu
þeirra var nafnið Woravka, en 2.
flugmaður á árásarflugvélinni
hafði heitið John S. Woravka.
Annar var merktur Ripslinger, en
vélfræðingur flugvélarinnar hafði
heitið Harold S. Ripslinger.
Næstu dagana fundust enn sex
örvarmerki á leiðinni. Hjá því
seinasta fundu þeir andlitsgrímu,
gerða úr fallhlífardúki og höfðu
verið gerð á hana göt fyrir augum
og munni. Á þessu var auðséð að
flugmennirnir höfðu fylgt þeim
reglum, sem þeim höfðu verið
gefnar. Þeim hafði verið kennt, að
fallhlífarnar væri til margra hluta
nytsamlegar. Fyrst og fremst
mundu þær bjarga lífi þeirra, ef
þeir þyrftu að yfirgefa flugvél á
flugi. Ef þeir kæmi þá niður í ó-
byggðum, gæti þeir notað fallhlíf-
ina sem tjald. Úr þeim mætti
einnig gera skjólgóðar hettur fyrir
kulda, eða andlitsgrímur til að
verjast ofsahita sólar.
Þegar nokkuru norðar kom, brá
leitarmönnum í brún, því að þar
kom bílaslóð þvert á slóð ítalanna.
Þarna höfðu farið hvorki fleiri né
færri en 79 bílar. Það kom nú samt
upp úr kafinu, að hægt var að fá
skýringu á þessu. Slóðin var eftir
79 herbíla, sem Bretar höfðu sent
frá Kairo 27. desember 1940, til liðs
við Leclerc og frjálsa Frakka í
Miðafríku. Þeir höfðu farið stóran
krók suður á við, til þess að kom-
ast fram hjá framvarðasveitum
Rommels. Og þeir höfðu komizt til
Frakka í Tibesti-fjöllum.
En hvernig hafði hinum strönd-
uðu flugmönnum brugðið við, er
þeir sáu þessa þverslóð? Höfðu þeir
snúið inn á hana, og hvort höfðu
þeir þá heldur haldið til austurs
eða vesturs?
Leitarmenn slógu nú tjaldbúð-
um þar sem slóðirnar mættust,
mörkuðu af á korti 1000 fermílna
svæði fyrir norðan, og svo var
hafin skipulögð leit á þessu svæði.
Það kom í ljós, að flugmenn-
irnir höfðu haldið vestur á bóginn
eftir stóru slóðinni. En er þeir
höfðu skammt farið, beygði þessi.
slóð suður á við, og mun þeim þá
ekki hafa litizt ráðlegt að rekja
hana lengra. Þar fundu leitarmenn
áttunda merkið, sem þeir höfðu
skilið eftir — ör sem benti í norð-
ur. Þarna fannst líka poki merktur
Guy E. Shelley, en hann hafði
verið aðstoðar-vélfræðingur á
flugvélinni.
En skammt þarna fyrir norðan
tóku við sandöldur hins mikla
Calanscio-sandhafs, og svo tekur
við hver sandaldan af annarri,
hærri og hærri. Vera má, að flug-
mennirnir hafi haldið, að nú væri
þeir komnir nærri sjó, er þeir sáu
þessar sandöldur. Og það hefir þá
gefið þeim þrek til þess að kafa
yfir næstu sandöldurnar. Og svo
hefir sandurinn kaffært þá alla
níu, og þeir munu aldrei finnast
framar.
Sandurinn þarna er mjög fínn.
Arabar kalla hann „fesh-fesh“,
vegna þess að hann er á sífeldu
skriði. Hann hefir kaffært borgir
og vinjar og úlfaldalestir. Hann
færir allt í kaf.
Kona sá vita í fyrsta skifti á ævinni
og spurði bónda sinn hvaða hús þetta
væri. Hann sagði að það væri viti,
ljósið væri til að leiðbeina skipum.
Konan starði lengi á vitann stein-
þegjandi, en hrópaði svo:
— En þolinmæðin hjá þessum vita-
verði, þarna hefir vindurinn slökkt
ljósið hjá honum að minnsta kosti 20
sinnum á 10 mínútum, en hann kveikir
jafnharðan aftur.