Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Qupperneq 8
76
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Þetta geröist í janúarmánuði
FORSETI ÍSLANDS ávarpaði þjóð-
ina á nýársdag: og bað henni vel-
farnaðar á nýbyrjuðu ári. Forsetinn
kvað útlit nú betra í alþjóðamálum
en undanfarið. Vonandi væri að við-
ræður forystumanna þjóðanna bæri
þann árangur, að friðsamur almenn-
ingur meðal allra þjóða gæti dregið
andann léttar (3.)
Alþingi kom saman 38. janúar.
Var þá nýtt fjárlagafrumvarp fyrir
árið 1960 lagt fyrir þingið, en frum-
varpið hafði verið tekið til gagn-
gerðrar endurskoðunar til sam-
ræmis við væntanlegar aðgerðir
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um. Gaf það nokkuð til kynna þær
ráðstafanir i efnahagsmáium, sem
ríkisstjórnin hefir undirbúið að
undanförnu. Tekjuskattur er feild-
ur niður af almennum tekjum, út-
flutningsbætur afnumdar, bæjar- og
sveitarfélög fá 56 milj. kr. af sölu-
skattinum og bætur almannatrygg-
inga verða hækkaðar verulega.
Niðurstöðutölur á sjóðsyfirliti eru
1.464.704.500, og er um að ræða
hækkun frá fyrra ári um 429,8
millj. kr., en það stafar að mestu
Ieyti af því að útflutningssjóður
verður lagður niður og tekjur hans
og gjöld færð á ríkissjóð (29.)
Samþykkt var á Alþingi frum-
varp þar sem ríkisstjórninni er
heimilt að stöðva alla toliaaf-
greiðslu þar til frumvarp það um
aðgerðir í efnahagsmálunum, sem
ríkisstjórnin hyggst leggja fyrir
Alþingi næstu daga hefur hlotið
fullnaðarafgreiðslu (30.)
VEÐRÁTTA
Veðurfar var með fádæmum gott í
mánuðinum um allt land, oftast frost-
laust og stundum hlýindi sem að vor-
degi. Sem dæmi um það má nefna að
blóm sprungu út í görðum á Húsavík.
Stormur hefir þó stundum verið nokk-
ur. Fléstir fjallvegir hafa verið færir,
en vegir stundum spillzt vegna aur-
bleytu. Fé hefir verið létt á fóðrum
vegna veðurblíðunnar og hefir víða
verið svo að jafnvel lömb hafa ekki
verið tekin á gjöf.
tTGERÐIN
Vetrarvertíð hófst þegar fyrstu daga
ársins. Frá stærstu verstöð landsins,
Vestmannaeyum, verða gerðir út 140
bátar (5.)
Togararnir hafa verið að veiðum
á heimamiðum nema tveir fyrri hluta
mánaðarins, sem voru ,ið Nýfundna-
land og öfluðu vel. Afli á heimamiðum
hefir verið með eindæmum tregur, en
veiðiveður oftast gott. Síðustu daga
mánaðarins fékk þó eitt og eitt skip
dágóðan afla.
Gæftir voru góðar hjá bátunum allt
fram um 20. janúar og afli yfirleitt
sæmilegur eða góður, en upp úr því
spilltist tíð og róðrar urðu stopulir.
Afli var þá einnig rýr. Aflabrögð í
janúar hafa þó verið góð, ef miðað er
við undanfarin ár.
Þrír fulltrúar frá Fiskimannafélagi
Færeya komu hingað til viðræðna við
LÍÚ um kjör færeyskra sjómanna, er
óskað hafði verið eftir á íslenzka fiski-
skipaflotann. íslendingar buðu Færey-
ingunum sömu laun og kjör og íslenzk-
ir sjómenn hafa, þeim væru tryggðar
minnst rúmlega 1000 kr. danskar yfir-
færðar á mánuði og síðan afgangur af
launum. Færeyingarnir kröfðust hins
vegar 1500 kr. danskar, og náðust ekki
samningar. Um 200 færeyskir sjómenn
starfa þó á íslenzkum skipum, en 800—
1000 til viðbótar vildu koma.
Átta togarar Bæarútgerðar Reykja-
víkur lönduðu hér á sl. ári 32,2 þús.
lestum af fiski (13.)
Nýa varðskipiff
„Öðinn" kemur
til íslands.