Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Blaðsíða 1
19. tbl. bófe Sunnudagur 29. maí 1960 XXXV árg. Ellin leitar á œskustöðvar Frásögn Ólafar Jónsdóttur frá Emmubergi — ÞVÍ FASTAR sem ellin sækir að, því ákafar stefnir hugurinn til æskustöðvanna, þar sem fyrstu sporin voru gengin og þar sem barnssálin skynjaði fyrst dásemd- ir náttúrunnar. Og þótt blindan banni mér nú að sjá dagsins Ijós, getur hún ekki hamlað því að hugurinn sjái bernskustöðvarnar, ef til vill fegurri og í enn meiri töfraljóma en fyrrum. Sumir segja að ekki sé fagurt á Skógarströnd- inni, en mér finnst að Emmuberg hljóti að vera dýrlegasti blettur- inn á landinu. Svo birtist hann mér bæði í draumi og skuggsjá endurminninganna. Eg vildi að eg gæti lýst því fyrir þér. Svo mælti Ólöf Jónsdóttir eitt sinn er eg heimsótti hana á Elli- heimilinu. Um leið birti yfir svip hennar. Horfið var ellimyrkrið og litla herbergið, en við innri sjón- um hennar blasti víðsýni og feg- Ólöf Jónsdóttir urð á vorlöngum degi heima á æskuslóðunum. — Já, blessuð, segðu mér eitt- hvað frá því, eg hefi aldrei á Skóg- arströnd komið, svaraði eg. Frá Emmubergi — Það er þá fyrst Bergið, sem bærinn er kenndur við. Nú segja Náttúrufegurð Merkisstaðir Dulheimar hinir fróðu menn að það heiti ekki Emmuberg, heldur Ymjaberg og nafnið sé dregið af því hve mikið bergmálar þar. Það ætti því að þýða sama og Hljóðaklettar í þinni sveit. En eg skifti mér ekkert af því. Mér var sagt í bernsku að bærinn væri kenndur við konu, sem hefði heitið Emma og reist þar byggð fyrst. Og neðan til í túnjaðrinum stendur enn stór, ein- stakur steinn, sem heitir Emmu- steinn og hann á að vera á leiði hennar. Emmuberg er næst innsti bær- inn í sveitinni. Landnámsjörðin Hólmlátur er aðeins innar og neð- ar. Á venjulegan mælikvarða var Emmuberg kot, jörðin aðeins talin 4 hndr. að dýrleika og engin kosta- jörð né hlunnindajörð. En í barns- augum mínum var hún sem kon- ungsríki og hefir landslag eflaust stuðlað að því. Bærinn stendur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.