Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Side 2
294 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS heldur lágt og fyrir ofan hann er hjalli og síðan mýrarsund, en þá taka við tveir og þrír stallar, hver upp af öðrum, grænir tilsýndar, en upp af þeim brött og grá grjóturð og þar fyrir ofan rísa svo stuðla- bergshamrar Bergsins. Þeir eru langir. Heiman frá bænum að sjá var sólin heila eykt, eða þrjár stundir, að fara yfir Bergið. í vit- und minni var það stórkostleg höll og hjallarnir fannst mér vera sem þrep upp að þeirri höll. Það var yndislegt að fara um þessi þrep, þegar leið á sumar. því að þar voru krækiber, bláber, aðalblábcr og hrútaber. En í urðinni var geita- skóf og litunarmosi, og hvort tveggja til nytja. Úr litunarmosan- um var litað, eins og nafnið bendir til, og þegar efnið var tekið upp úr litnum var það fagur-móbrúnt og litaðist aldrei upp. En þótt fagurt væri í brekkun- um, þá tók þó yfir þegar komið var upp á Bergið í fögru veðri var dýrleg útsýn þaðan. Þar blasti all- ur Hvammsfjörðurinn við með skerjum og eyum og sundum. í norðri var Fellsströndin með háum fjöllum og glampaði sól á bæaþil meðfram ströndinni. Svo sá inn til Dala, suður um heiðar og mikinn hlut af Skógarströndinni. Það var dásamleg sjón! Vondir fuglar — Var ekki æðarvarp þarna og fugl í Berginu? — Nei, blessaður vertu, Emmu- berg á hvergi land að sjó, enda er hér komið inn fyrir allar eyar á firðinum. Jörðinni fylgir mjög tak- markað land undir Berginu, aðal- land hennar er uppi í heiði, fyrir ofan Bergið. Þar eru búfjárhagar og slægjulöndin. Enginn sjófugl heldur til í Berginu, en þar urpu hrafnar, valir og smyrlar, og uppi í heiði áttu ernir sér bústaði. Þetta voru allt vargar, sem áttu í stríði við mennina, og mennirnir i stríði við þá. Hrafninn lék sér að því að kroppa augun úr nýbornum lömbum, og svo kom annar vargur utan af firðinum, svartbakurinn, og hann réðist á nýborin lömb og reif þau á hol. Eg man eftir lömb- um þannig útleiknum eftir hann, að þau drógu garnirnar. Þess vegna var okkur illa við þessa fugla. Þeir settu svartan blett á tilveruna, sem annars var björt og fögur. En máske björtu litirnir skírist betur vegna andstæðunnar? Gaman var aS vera smali — Þú hefir sjálfsagt verið smali? — Já, og margar hugljúfar minningarnar eru frá þeim árum. Það var nokkuð langt að reka ærn- ar, inn fyrir Berg og upp í heiði. En á þeirri leið var margt merki- legt að sjá. Nokkuð innan við bæ- inn sveigir hálsinn nær Berginu og verður þar djúp dæld norðan fram með hjallanum. Þar eru holt, snjóhvít á litinn. Það er eins og hvítum sandi hafi verið stráð yfir þau. En er þangað er komið, eru þar snjóhvítar hellur, sem rísa á rönd. Fannst mér þetta furðuleg náttúrusmíð og hafði gaman að ganga á brúnum hellanna. Þessar hellur voru stórar, sléttar og fal- legar. Fóstri minn sótti mikið af þeim og hafði þær undir torfþök. Var sagt að aldrei kæmi leki að húsi sem þakið var með þessum hellum. Enginn vissi hvað í þeim var fyr en Þorvaldur Thoroddsen kom þarna og sagði að þetta væri líparít, sem klofnaði svona fagur- lega. En hvíti sandurinn, sem okk- ur þótti svo merkilegur, var aðeins mylsna úr þessu líparíti, því að regn, frost og vindar möluðu það niður. En svo voru þarna líka kol- svartir steinar. Það var hrafntinna. Þegar innar kemur eru þarna í kvosinni tvö vötn, sem kallast Innravatn og Ytravatn. Mér fannst Innravatn alltaf heldur skuggalegt, en í því var þó ofurlítill hólmi, og þar áttu álftahjón hreiður á hverju sumri. Ytravatn fannst mér stórum* mun fegurra, því að það var svo skínandi bjart. Þarna meðfram vatninu er mikið af marglitum steinum, sem eg helt að væri nátt- úrusteinar Og marga yndisstund átti eg þarna er eg safnaði stein- um og álftafjöðrum og hlustaði á svanasönginn á vatninu. Eg hefi séð skráð, að engir merkissteinar sé til á Skógarströnd. Eg held nú annað. Þarna eru þessir steinar, hrafntinna og hvíta líparítið, og vestan undir Berginu finnst surtar- brandur. Hann kemur þar fram í lækjardragi og eru í honum all- stórir stofnar, sem eru orðnir flatir undan þunganum er á þeim hvílir, en samt er börkurinn enn á þeim. Þessi tvö vötn rnyndast af tveim- ur giljum, sem heita Hallargil og Hundsgil. En úr þeim rennur svo lækur, sem kallaður var Blankur, en sumir segja að heiti Blængur. Hann fellur í Laxá, sem kemur fram úr Laxárdal, nokkuð utan við Emmuberg, og rennur síðan út í Hvammsfjörð. Upp í ósinn gengur bæði silungur og lax, en þeir skilja fljótt, laxinn fer upp eftir Laxá, en silungurinn upp eftir Blank. Er stundum talsverð veiði í honum, einkum í svónefndum Búrhyl. Þar var veitt í net bæði frá Hólmlátri og Emmubergi. Fyrir mitt minni hafði fóstri minn haft í seli uppi í heiðinni í 15 sumur. Hann reisti selið og var það baðstofa, búr og eldhús. Þarna var fóstra mín á hverju sumri og hafði með sér dreng til að gæta ánna. Aldrei var farið með kýr í selið, enda var sjaldan nema ein eða tvær kýr á búinu og þurfti að ' nota mjólkina heima. Bergljót, systir fóstra míns, sá þá um heimilið. Var smám saman sótt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.