Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Blaðsíða 7
LESBÓK MORG'tJNBLAÐSINS 299 Kjartan L. Markússon; Vö/vu/e/ð/ð d Felli í ÆFISÖGU séra Jóns Steingríms- sonar er alllangur kafli um Völvu- leiðið á Felli og mikla deilu, sem varð milli séra Jóns og hrepp- stjóranna í Mýrdalnum, vegna gamallar hefðar, sem hvíldi á Fell- inu. Var það árlegt gjald, sem ábúendur jarðarinnar skyldu greiða til fátæklinga. Séra Jón segir svo frá: „Þessi tollur kom þannig til: Sagt er ein valva hafi búið á Felli í páfadómi og jafnvel átt þá jörð. Leiði hennar er sagt þar sé austur í brekkun- um, þar sól skíi\ fyrst á og fer síð- ast af. Hún skyldi hafa heitið á fátæka á einum pestartíma, að gefa þeim 30 álna toll, ef pestin dræpi engan á sínum bæ, af ungu fólki, hvað svo við borið hafði. Og svo var mikill átrúnaður á þessum tolli, að allt svo lengi sem hann væri goldinn mundi þar ei ung- barn deya og enginn vissi eða mundi nú á dögum að þar hefði nokkur unglingur dáið, meðan honum var útsvarað.“ Þegar séra Jón kom að Felli, sögðu hreppstjórar tollinn vera 60 álnir og galt prestur fyrst á ári hverju 100 fiska, en síðar sá hann í gamalli jarðarbók að tollurinn var í upphafi 30 álnir, eða 60 fisk- ar. Þó galt séra Jón í 10 ár 6 fjórð- unga af smjöri (30 kg.) á hverju ári. En þegar hann vildi fá tollinn lækkaðan niður í 30 álnir, eins og hann í fyrstu var, risu hreppstjór- ar upp með miklum ofsa og varð af löng og hörð deila milli séra Jóns annars vegar og hreppstjór- anna og Lýðs sýslumanns hins veg- ar, sem stóð með hreppstjórunum. Enn í dag má sjá völvuleiðið á Felli, á þeim stað þar sem séra Jón segir frá í sögu sinni. Er það mjög stórt, og vel upphlaðið, en þau ákvæði fylgja því, að ekki megi slá það eða í kringum það og munu flestir ábúendur jarðar- innar hafa látið það ógert og ekki veit gamalt fólk hér í Mýrdalnum nokkrar sagnir um að leiðið hafi verið slegið, nema af þeim eina ábúenda sem hér verður nú sagt frá. Skömmu fyrir síðustu aldamót kom að Felli presturinn Gísli Kjartansson. Hann var þá ungur maður, en hafði þó verið nokkur ár prestur Eyfellinga. Séra Gísli var kvæntur Guðbjörgu Guðmundsdóttur frá Háueyri. Var hún hvort tveggja, góð kona og glæsileg — og mátti hið sama segja um séra Gísla. Urðu þau bæði brátt vinsæl og velmetin hér í Mýrdalnum og veit eg ekki dæmi til þess að Mýrdælingar hafi verið þeim í nokkru mótsnúnir eða erfiðir í samskiptum, þó lengi hafi verið um þá sagt að þeir hafi verið vondir prestum sínum. Þegar séra Gísli kom að Felli, hefir hann, án efa, fljótt fengið að vita um völvuleiðið og ákvæð- in, sem því fylgja. En litla trú hefir hann vafalaust haft á þeim, en tal- ið hégóma og hjátrú. Sjálfum finnst mér ekki hægt að lasta prest fyrir það. Var það annars samrím- anlegt kristinni trú, að kona, sem dáin var fyrir mörg hundruð ár- um, hefði í öðru lífi, eins og það er kallað, vilja og mátt til að hefna fyrir, þó ekki væri hlýtt orðum hennar, sem hún hafði mælt meðan hún var hér á jörðu? Og hvað var þá orðið af þeirri trú og von, sem flestir bera í brjósti, að í dauðan- um losni menn við hið illa hér á jörð og andinn svífi til sælli og betri heimkynna? Svo var það eitt sumar, þegar vinnumenn prests voru að slá brekkuna sem leiðið er í, að hann sagði þeim að slá leiðið og hlífast ekki við, enda gerðu þeir eins og þeim var skipað. Eftir því sem ég veit bezt, var prestur búinn að vera nokkur sumur á Felli þegar þetta var og hygg ég að leiðið hafi verið slegið sumarið 1901. Liðu svo nokkrar vikur og bar ekki til tíðinda. En er sumri var tekið að halla, var það eitt kvöld, að ein kýr prestsins fannst dauð í skurði niður á engj- um. Var skurðurinn gamall og mjög saman gróinn og svo þröng- ur að kýrnar voru oft vanar að stíga yfir hann. Þá var vinnukona á Felli Vilborg Ásgrímsdóttir, sem 'seinna var húsfreyja á Norður- Götum. Sagði hún mér löngu síðar, að mest hefði hana undrað hvern- ig kýrin gat troðið sér ofan í skurð- inn, svo þröngur var hann. Liðu svo stundir fram, allt til jólaföstu. Fór þá að harðna veðurfar með snjókomu og var talsverður snjór á jörð, er leið að jólum. Á aðfanga- dag fóru tveir vinnumenn prests inn í Fellsheiði að hyggja að sauð- fénu og er líklegt að þeir hafi átt að smala því saman og reka að húsum. Annar þæsara manna var einkasonur Vilborgar Ásgríms- dóttur, 19 eða 20 ára, en hinn var ættaður frá Eyrarbakka. Leið svo aðfangadagurinn, en þegar kvöld var komið og störfum lokið heima á Felli, til að taka á móti jóla- hátíðinni, voru fjármennirnir ó- komnir. Þótti það með ólíkindum hve lengi þeir voru og þegar langt var liðið fram á kvöldið og þeir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.