Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 8
300 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS komu ekki heim, fyllti ótti ogkvíði huga fólksins. Er hægt að hugsa sér hve döpur sú jólanótt hefir verið og þó einkum fyrir Vilborgu, sem beið og beið eftir því að einka- sonurinn kæmi heim. Séra Gísli var ekki heima. Hann var um kveldið við messugjörð í Reynis- kirkju. Hefði hann verið heima, hefði hann efalaust farið til næstu bæa og fengið menn til að leita að fjármönnunum. Á Felli var heima einn karlmaður, en hann var lítilsigldur mjög og vantaði nokkuð til að vera eins og fólk er flest. Fór hann um kvöldið að vita hvort hann yrði nokkurs var. Sagði hann síðar frá, að þegar hann var kominn alllangt inn með fell- inu að austan, hefði hann heyrt hljóð og vein, en varð þá hræddur og hraðaði sér heim. En heima sagðist hann einskis hafa var orðið. Á jóladagsmorguninn var hafin leit að mönnunum og fundust þeir báðir dauðir. Höfðu lent í snjóflóði og borizt langt niður eftir grýttri og klettóttri fiallshlíðinni. Úr" snjóflóðinu höfðu þeir þó losnað og komizt í lítinn helli eða skúta. Þar höfðu þeir svo lagzt til hvíldar, mikið. slasaðir og beðið dauðans á helgri jólanótt. Heyrði ég sagt að annar þeirra félaga hefði verið með klofna höfuðkúpu og hafði hann bundið vasaklút yfir um höfuðið. Þetta sorglega slys varð séra Gísla mjög þungbært og eftir það fór mjög að verða þess vart að hann var ekki andlega heill og ágerðist sá veikleiki svo mjög að hann varð að hætta prestskap sumarið 1903 og fluttist hann þá til Reykjavíkur. Mörgpm árum síðar varð hann þjónandi prestur í Öræfum og andaðist þar. Sökum þess, að ég var barn að aldri, þegar það gerðist, sem hér er frá sagt, en ég hefi engan fundið sem nákvæmlega kynntist öllum atburðum, þá er ekki víst að fra- Gvendarbrunnum bar mig aö bjarta sumardaginn, lék viö sólar blessaö baö blómum skrýddi haginn. Véðurbariö brunagrjót brekkuhallinn geymdi. Undan hraunsins hrjúfu rót hreina vatnið streymdi. Gvendarbrunnum geng ég hjá, guös með bœnarorðum. Guömundur hinn góöi þá gerði vígja forðum. Undan brjóstum fjallsins fjœr fram á lækjargrunniö, síöan hefur hrein og tœr heilsulindin runnið. sögn mín sé alveg nákvæm. Meðal annars veit ég ekki hvort farið var að bera á sjúkleika séra Gísla, áð- ur en völvuleiðið var slegið en víst er það að margir trúðu því að vanheilsa prests og mannskaðinn hafi verið hefnd völvunnar fyrir það, að leiðið var slegið. Eftir að séra Gísli fór frá Felli flutti þangað Hallgrímur Brynj- ólfsson frá Heiði og bjó þar full Hér viö fljótið hátt og lágt hollir vindar sveima, titrar vatnið töfrablátt, tærar lindir streyma. Sólarorku t sér ber, ilmblæ lofts og vinda. Reykjavík þitt vatnsból er vigt til heilsulinda. Heiðarlindin himin skyggð heilsu og líf þér gefur. Engin jaröarborg né byggð betra vatnsból hefur. Þessa brunna, borgin mín blessi þjóð og saga. Blessaö vatnið börnin þín blessi ár og daga. KJARTAN ÓLAFSSON 20 ár. Farnaðist honum ágætlega. hafði stórt bú og ól upp stóran hóp efnilegra og ágætra barna. En leiðið völvunnar sló hann aldrei og þegar synir hans höfðu náð nokkrum þroska hlóðu þeir vel upp leiðið og má enn sjá þess merki. Og það tel ég víst, að langt verði að bíða þess ábúanda á Felli, sem leiðið slær.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.