Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
301
Steinhanginn mikli í Englandi
er vísindamönnum ráðgáta
Á SALISBURY sléttunni í Wilt-
shire, í miðju Englandi sunnarlega,
er hið forna mannvirki Stone-
henge, sem menn halda að sé um
3500 ára gamalt. Enginn veit þó
aldur þess með vissu, og enn er
það fornfræðingum að mörgu leyti
óráðin gáta. Hverjir reistu það?
Til hvers var það reist? Þeim
spurningum hefir ekki verið svar-
að enn.
Maður, sem Hennius hét, getur
þess fyrstur á 9. öld. Hann segir
að Bretakonungur hafi fengið
galdramanninn Merlin til þess að
reisa það sem minnismerki 460
kynborinna hermanna, er fellu þar
í orustu við saxneska innrásar-
manninn Hengist. Það er auðvitað
þjóðsaga. Á 17. öld kom fornfræð-
ingurinn John Aubrey fram með
þá tilgátu, að Drúídar hefði gert
þetta mannvirki. Það nær heldur
ekki neinni átt, því að Stonehenge
var orðið 1GG0 ára gamalt áður en
Það er hringlaga og 340 fet að
þvermáli. Yzt er gröf og veggui,
eða haugur og er hlið þar á gegnt
norðaustri, en frá hliðinu hefir
verið vegur niður að ánni Avon og
hefir hann verið um 2 km langur.
Innan við yzta hringinn kemur
annar hringur, um 100 fet að þver-
máli, og hefir verið úr gríðarstór-
um steinum, reistum upp á enda,
og hafa þeir alls verið 30. En milli
hverra tveggja steina var lagður
steinn svo að þarna mynduðust
eins og 15 hlið. Steinarnir, sem
Survlvlng Stonti
iliQ-fr
Drúídar komu til sögunnar. Sumir
gizkuðu á, að þetta hefði verið
dómhringur, aðrir að það hefði
verið Búdda-musteri. Nýustu til-
gáturnar eru þær, að þetta hafi
verið hvort tveggja í senn, graf-
reitur og stjörnurannsóknastöð.
Þarna eru margir afar formr
haugar, og þegar staðið er í miðj-
um hringnum markar hliðið þann
stað, þar sem sólin kemur upp
þegar lengstur er dagur. Og með
því að hnitmiða þannig sólarupp-
rásina á sjálfan sólstöðudaginn,
hafi menn reiknað út allan árs-
hringinn.
o—O—o
Mannvirkið er nú að hálfu leyti
í rústum, og sennilega er þriðjung-
ur af steinunum horfinn. Menn
hafa notað þá til bygginga og til
þess að gera úr þeim kvarnar-
steina. Þó má enn gera sér grein
fyrir hvernig það hefir verið.
: * s
Norfh Barrow
• Htl* Sl»n*
Sloughtor Stono,
-000 °o\\\
o r\o o
°oS(':£->.!Í°
• •
s •
ic \ •
•7 - •
•C \ 0
Æ*'
;= o 0°>..•%.<
%o °Xí'/oB
°0000°0
South Borrow
STONEHENGE — Hér sjást allú
hringarnir, steinaraðirnar og holur
eftir steina og stoipa. Svörtu blettirn-
ir í innstu hringunum sýna þá steina,
sem enn eru uppistandandi. 1 kverk
skeifunnar má sjá altarissteininn, í
hliðinu er Blótsteinninn og efst Sólar-
steinninn. North Barrow og South
Barrow eru fornar dysjar eða haugar.
— Talið er að um Blótsteininn hafl
Drúídar brotið þá menn, sem þeir
fórnuðu, eins og Þórsnesingar gerðu
seinna er þeir brutu menn um Þór*.
stein. —