Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 12
304 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS var eins og hún gæti lesið hugs- anir mínar, því að oft sagði hún einmitt það sem eg var að hugsa. Það var eitt sinn er við sátum að morgunverði, að ein sneið var eftir á brauðbakkanum. Eg var að hugsa um að taka sneiðina, en þá mundi eg eftir því að eg var að fitna ,svo að eg lét hana vera. Þá sagði Betsy: „Mamma, þú ert altaf að fitna“. Einu sinni þegar eg var að greiða Betsy, varð mér hugsað um sögu er eg hafði lesið nýlega og sagði frá því að í Indlandi væri það siður, að konur væri fluttar í úti- hús til að ala þar börn sín. Þá sagði Betsy: „Mamma, eg er viss um að eitthvert barn er að fæð- ast á þessari stundu“. Forboðar Hér er saga af nýgiftum hjón- um. Þau höfðu eytt hveitibrauðs- dögunum og ætluðu að halda heim. En þegar þau voru að stíga upp í járnbrautarvagninn, hrökk hún frá og vildi alls ekki fara. Hann stóð þar með farmiðana í höndunum, og gramdist þetta mjög, því að hún gat engu öðru borið við en því, að hvíslað væri að sér að hún skyldi ekki fara með þessari lest. — Tveimur stundum síðar rakst þessi lest á aðra, 20 menn fórust en hundruð meidd- ust. — Önnur hjón höfðu sezt að í gisti- húsi í Norður Karolína og ætluðu að vera þar um nóttina. Þegar kon- an var nýsofnuð, dreymir hana að sprenging verður í gistihúsinu. Hún hrökk upp með andfælum og var svo hrædd, að hún krafðist þess að þau færi þegar burt úr gistihúsinu. Hann maldaði eitthvað í móinn, en hún varð að ráða. Og um miðja nótt fóru þau þaðan. Rétt á eftir kom stór bíll hlaðinn sprengiefni. Hann rakst á húsið og varð svo mikil sprenging að húsið hrundi. Við höfum fengið fjölda bréfa með frásögnum af fyrirboðum stóratburða, svo sem þegar barni Lindbergs var rænt, þegar flugvél- in rakst á Empire State Building, þegar Titanic fórst og þegar Lusi- tania var skotin í kaf, og um mörg önnur stórslys og flugslys. Vel getur verið að sumt af þessu hafi fólk dreymt eftir að atburðirmr gerðust, en venjulega má sjá það á bréfunum sjálfum. Hugboð og firðáhrif Enginn hefir minnstu hugmynd um hvernig á því stendur ,að ein- hverjar hræringar í heilanum minna okkur konurnar allt í einu á það að nú sé kakan okkar að brenna í ofninum. Enginn getur heldur gefið fullnægjandi skýr- ingu á því, hvernig gömlum at- burðum skýtur upp í hugann. Sama máli er að gegna um hug- boð. Meðal hinna mörgu bréfa okkar eru mörg frá gáfuðum konum, sem skýra frá því, að þær hafi fengið hugsamband við aðra, að þær hafi séð atburði, sem gerðust langt í burtu, annað hvort á sömu stund og þeir gerðust, eða nokkuru áð- ur. — Hér eru sýnishorn af handa- hófi. — Móður dreymdi, að sonur henn- ar, sem þá var á vígstöðvunum í Evrópu, væri orðinn barn aftur, hefði dottið í á og væri að drukkna. Hún sá hvar hann barst með straumnum og hún sá ljósa lokka á kollinum eins og hann hafði haft í bernsku. Nokkrum vikum seinna fekk hún bréf frá syni sínum. Þar sagði hann henni frá því, að hann hefði fallið í á og veriðnærdrukkn- aður. Eftir því sem næst varð kom- izt, skeði þetta sömu nóttina og hana dreymdi drauminn. Það var einn sunnudagsmorgun, að hermaður sat í herskála sínum og var að skrifa bréf. Fann hann þá skyndilega sterkan ilm af rós- um, en rósir voru þar engar nærri. í næsta bréfi, sem hann fekk frá konu sinni, skýrði hún honum fra því, að þennan sunnudagsmorgun hefði hún farið í kirkju, lagt rósir að fótum uppáhaldls dýrlings síns og beðið hann að vernda mann sinn. Maður nokkur fekk óþolandi verk í kjálkann allt í einu, án þess að nokkur orsök væri til þess. Seinna fekk hann bréf frá móður sinni og sagði hún honum frá þvi, að einmitt á þessari sömu stundu hefði hún verið skorin upp vegna ígerðar út frá vísdómstönn. Konu nokkra dreymdi sama drauminn á hverri nótt í hálfan mánuð. Henni þótti sem maður hennar, er var flotaforingi, hefði fengið heimfararleyfi, tekið sér far með flugvél, en flugvélin farizt og allir sem í henni voru beðið bana. Svo leið enn nokkur tími, nokkrir mánuðir. Þá fekk flota- foringinn heimfararleyfi. Hann símaði þá til konu sinnar og kvaðst mundu koma með flugvél frá Kaliforníu. Hún bað hann blessaðan að gera það ekki, koma heldur með járnbrautarlest. Og svo var henni mikið niðri fyrir, að hann hét þessu. Hann afþakk- aði flugferðina og tók sér fari með lest. Þegar heim kom frétti hann að flugvélin hefði farizt og allir farþegar og áhöfn með henni. — Þannig eru margar sögurnar óvéfengjanlegur vitnisburður um sálræna hæfileika manna, sem eru alveg eðlilegir, en menn skilja þó svo lítt. Framhaldslíf Fram að þessu hefir hugmynd- in um að maðurinn sé annað og meira en líkamsvél, stuðst að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.