Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Page 14
306 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Jónur hata áhrif á Rannsóknir hafa leitt í ljós að jákvæðar jónur eru skaðlegar heilsu manna, en neikvæðar jónur eru heilsuhætandi. JÓNUR í andrúmslofti geta haft ákveðin áhrif á heilsu manna og hegðun, að því er segir í fregn af ráðstefnu, sem nýlega var hald- in í Ameríku og læknar og lífeðlis- fræðingar sóttu. Þar kom það fram að tilraunir eða rannsóknir á áhrií- um loft-jóna á öndunarfæri manna leiddu í ljós að jákvæðar jónur hindruðu hreinsunarstarf öndun- arfæranna, en að neikvæðar jón- ur örvuðu það. Tekið var fram, að enda þótt örvun þessi eigi sér stað, þá jafngildi það ekki því, að lækn- ing á öndunarkvillum eigi sér stað En talið var að jákvæðar jónur gerðu menn móttækilegri fyrir al- varlegum áföllum af meiðslum og sárum og að þær yllu ertingu í slímhúð öndunarfæranna, og gæti slíkt aukið smitunarhættu er svo bæri undir. Á ráðstefnunni var einnig rætt um hve nauðsynlegt væri að taka tillit til þessa, þegar uppdrættir væru gerðir af klefum, þar sem rúm væri mjög takmarkað, svo sem í kafbátum og í fyrirhuguðum geimförum. Ríður á að þar safnist ekki fyrir jákvæðar jónur, sem geti haft skaðleg áhrif á heilsu og vel- líðan áhafnanna. Endurbætt mæli- tæki og aukin tækni sýna að raf- magn, þótt í litlum mæli sé, getur haft afdrifaríkar afleiðingar í þess- um efnum. Eiga frekari rannsókn- ir sennilega eftir að leiða margt í ljós á þessu sviði. Einnig var þess getið, að á ráð- stefnunni hefði komið fram uppá- stunga frá forstjóra verslunarfyr- irtækis eins um það, að komið vrði fyrir í verslunarhúsum tæki til að hlaða andrúmsloftið neikvæðum jónum. Skyldi það gert í þeim til- gangi að minna yrði þá um hnupl í sölubúðum. Hann vildi halda því fram, að ekki einungis heilsu held- ur einnig kendræn vellíðan og hug- arástánd færi eftir jónu-hleðslu loftsins. Og sú kenning er raunar ekki ný. Því var t. d. haldið fram árið 1931 að neikvæðar jónur væru heilsubætandi en jákvæðar skað- legar. Árið 1933 var sýnt fram á að neikvæðar jónur komu vissum líf- færum í líkama mannsins í eðli- legt ástand, þar sem aftur á móti jákvæðar jónur ollu oft höfuðverk og sýkingu í öndunarfærum. Árið 1947 var það sannað að loft hlaðið neikvæðum jónum átti meginþátt- inn í hinum heilsubætandi áhrif- um á sjúklinga í heilsuhælum en hvorki ölkelduvatn né loftslag Ár- ið 1950 komust menn að raun um að veirur eru hlaðnar neikvæðum jónum alveg eins og sellur í heil- brigðum líkamsvef. Ættu því heil- brigðar líkamssellur og veirur að verka fráhrindandi, hverjar á aðr- ar. En hafi líkamssella jákvæða hleðslu dregur hún að sér sýking- ar-veirur og þær sameinast. Samkvæmt allútbreiddri kenn- ingu er uppstreymi af „dauðu“ lofti upp úr gljúpum iarðvegi, þeg- ar loftþrýstingur minnkar. Þetta „dauða“ loft er mjög hlaðið já- kvæðum jónum. Á þetta sinn þátt í þreytu, æsingi og jafnvel höfuð- verk hjá sumum mönnum, þegar veðrabrigði eða stormur er í að- sigi. í Þýzkalandi og á Ítalíu hefur það lengi viðgengizt að dómstólar taki tillit til áhrifa svonefndra heilbrigði „fön“-vinda, en þeir eru jákvætt hlaðnir árstíðavindar frá Norður- Afríku og Alpafjöllum. Taka dóm- stólarnir vægar á þeim afbrotum, sem framin eru meðan áhrifa þeirra gætir. Lögreglustjórinn í San Francisco telur það sannreynt, að jákvætt hlaðið andrúmsloft valdi aijknum glæpum. Jákvæð jónun á bersýnilega sinn þátt í að veill persónuleiki brotnar alveg niður, sem kallað er. Um hundadagana, þegar jákvæða jón- unin vex, ber meir á taugaveikl- un en endranær. Sjálfsmorð og kynglæpir fara í vöxt, jafnframt því sem ofbeldisverk, rán og hnupl aukast og valda oft vandræða- ástandi. Verslunarstjórar ýmsra fyrirtækja eru sannfærðir um að minnka megi hnupl í sölubúðum með því að koma þar fyrir tækj- um, sem halda loftinu hæfilega hlöðnu neikvæðum jónum. . Loft jónast af sólargeislum, af kjarngeislum og af rafmagni í raf- segulsviði. Tæki, til að jóna loftið. hafa að geyma geislavirk efni, sem eyða jákvæðu jónunum úr loftinu, en skilja eftir þær neikvæðu. — Tækjum þessum er komið fvrir sem hluta í loftræstingarkerfum i verslunarhúsum. Lauslega þýtt og endursagt. I.+S. Vinkonur voru afi tala saman. „Mánuðum saman hafði eg ekki hug- mynd um hvar maðurinn minn var á kvöldin". „En hvernig uppgötvaðist það?" spurði hin og varð öll að eyrum. „1 gærkvöldi fórst spilámennskan fyrir, svo ég fór heim, — og þá var hann þar“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.